Vísir


Vísir - 13.06.1975, Qupperneq 2

Vísir - 13.06.1975, Qupperneq 2
2 Vlsir. Föstudagur 13. júni 1975 TÍSŒSm: Hvert stefnir landið? Björn Rasmussen, danskur nemi: — Islendingar hljóta a6 finna lausn á sinum efnahagsvanda, veröfall á afurðum er vonandi timabundið. Helgi Hallgrlmsson, strætis- vagnabilstjóri: — Ekki veit ég hvað er framundan og ástandiö viröist sifellt versna áháð hvaöa rikisstjórn er við völd. Marta Eyjólfsdóttir, húsmóðir: — Ég held bara að landiö sé að fara yfir. Dýrtiðin er svo óskapleg að fólk lifir ekki lengur af laununum. Steinar Steinsson, tæknifræðing- ur: — Þjóðarskútan marar i kafi eins og venjulega. Hins vegar hefur maður nú stundum séð það svartara. Vilhjálmur Eyþórsson, atvinnu- laus: — Ég eygi ekki hvar þetta ástand tekur enda og ég treysti sattað segja hvorki rikisstjórn né verkalýðsforustunni til að leysa vandann. Sigriður Kjartansdóttir, húsmóð- ir: — Allt er stefnulaust nú. Geng- isfellingar hafa ekkert hjálpað og þvi ætti að reyna einhverja aðra leið. Listaverkin „týnast ,,í Reykjavikurborg getur að lita ýmiss konar listaverk (minnismerki), sem viðkom- andi nefnd borgarinnar hefur valið stað viðs vegar um bæinn. 011 eiga þessi listaverk (minnismerki) það sameigin- legt, að þeim hefur verið valinn staöur á mjög svo smekklausum stöðum, með örfáum undan- tekningum þó. Stytta Jóns Sigurðssonar sómir sér að sjálfsögðu afar vel fyrir framan Alþingishúsið, og Ingólfur Arnarson horfir yfir sundin blá, þar sem hann eitt sinn kom að landi. Stytturnar fyrir framan Stjórnarráðið, af Kristjáni IX, og Hannesi Haf- stein, minna á sjálfstæðisbar- áttu okkar og Leifur heppni sómir sér vel á Skólavörðuholt- inu. Um öll þessi minnismerki er þó nokkuð „frjálst”, en þar með er lika allt upp talið sem vel fer i þessum efnum. Ef byrjað er i vesturbænum, og haldið austur eftir, svona eft- ir minni verður fyrst á vegi okk- ar ÚTILEGUMAÐURINN. Hér hefur illa tekizt til. Auðvit- að átti að byggja undir Otileg- umanninn að nokkru landslag öræfanna , þar sem hann bjó, grýtta urð, sem hafa mátti i eitthvað af þeim rúmlega 4 hundruð jurtum sem hin is- lenzka ,,fauna”okkarhefur upp á að bjóða I stað þess að „stilla” honum á klett. ÞORFINNUR KARLSEFNI húkir niður i tjarnarmýrinni og sést ekki fyrr en komið er fast að styttunni. Ekki langt þaðan eru þeir JÖNAS gamli HALL- GRIMSSON og THORVALD- SEN sálugi i felum innan um lé- legan birkigróður. Það hefði sannarlega þurft að lyfta þeim svolitið upp. Stytta ÓLAFS sál. THORS nýtur sin alls ekki þarna fyrir framan ráðherrabústaðinn, og heföi gjarnan mátt vera á meira áberandi stnð. Það er annars ekki svo siæm hugmynd að tengja styt.uÓLAFS, ráðherra- bústaönum, þvi enginn mun hafa verið i forustu islenzkra stjórnmála og verið oftar ráð- herra en hann. Möðurást NINU á sér ekki fallegan „bakgrunn” við Lækj- argötuna, og „stóðhestarnir” viö Hringbraut eru á klaufaleg- um stað. J AR NSMIÐNUM hans Asmundar hefur verið valinn þó nokkuð þokkalegur staður við Þorfinnsgötu, en VATNSBER- INN hans er á alveg fráleit- um stað, uppi á „Golfskálahæð- inni”. Menn bruna á bilum i báöar áttir eftir Reykjanes- brautinni, og enginn hefur tíma til aö lita á „Kerlinguna”. SALTFISKSSTÖFLUNINNI” hans Sigurjóns Ólafssonar var valinn staður á vatnsgeymis- holtinu, en þar voru fyrir allt að 50 árum STAKKSTÆÐI, þar sem saltfiskur var þurrkaður, en nú veit enginn lengur um þetta. Rétt hefði verið að láta eitthvað af „stakkstæðinu” standa, rétt svona til þess að minna okkur á horfinn atvinnu- veg. MIKLATÚN er verið að gera að nokkurskonar „Sigesallee” eins og i Berlin forðum. Einnig hér hefur illa tekist til. Stór- skáldið EINAR BENEDIKTS- SON snýr baki við allri „tækn- inni” á Miklubrautinni, og stendur auk þess það lágt að skömm er að. Styttu ÞOR- STEINS ERLINGSSONAR veit auðvitað enginn um, en hún er þarna I nágrenninu. KLYFJAHESTURINN hans Sigurjóns, þessi með „dönsku” fæturna, stendur á alveg fráleit- um stað. Stallurinn, sem hestur- inn stendur á, er allt of litill, og allt of lágur. Geirinn, sem myndast á milli Suðurlands- brautar og (gömlu) Suðurlands- brautar er það stór að listaverk- ið hreinlega „týnist” þarna. Svona mætti lengi telja, en þetta er svo sem i takt við allan lágkúruháttinn, sem alls staðar blasir við. Allt er komið niður á flatneskju meðalmennskunnar, og framkvæmdirnar fara eftir þvi. Götunum okkar fer lítið fram, og sumar enn miðaðar við 20 þús. manna bæ. Af þessum orsökum m.a. eru umferðaslys hér á Islandi allt of tið, enda þótt mikið sé gert að þvi að koma upp götuvitum með ærnum kostnaði. Lélega „hönnuð” gatnamót er aldrei hægt að lagfæra með GÖTUVITUM. Fyrir allmörgum árum var HALLGRIMI PÉTURSSYNI sálmaskáldinu góða reistur MINNISVARÐI. Hve rnargir af Ibúum borgarinnar skyldu vita hvar hann stendur,.eða þá hvað á honum stendur?, Sjálfsagt mjög fáir. Það er nefnilega ekki nóg að reisa minnisvarða, það verður lika að halda þeim við. Þetta hefur ekki verið gert við minnis- merkið um HALLGRIM. Ég skora á „söfnuð” IIALLGRIMS að láta mál þetta til sfn taka. Og svo þetta, þvi mátti ekki reisa HALLGRÍMSKIRKJU „beint” fyrir aftan styttu LEIFS HEPPNA ? Það er svo margt sem manni dettur (svona) i hug. 7877-8083” SÝNDARMENNSKA Skitt veri með haltan hest, hörku lúinn. Bara ef fögur svipan sést, silfur búin. Ranki. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Árelíus svarar bréfi Vilhjálms Einarssonar: „ER ÞAÐ ÞÁ LÍKA „BLÁEYGUR BARNA- SKAPUR" AÐ BANNA NOTKUN FÍKNILYFJA? Arelius Nielsson skrifar: „Hinn mæti maöur Vilhjálm- ur Einarsson ritar örstutt les- endabréf i Visi fyrir nokkrum dögum. Hann telur að sjálfsögðu, að áfengisböl sé „óaðskiljanlegur fylgifiskur áfengisneyzlu”. En hann segir fleira I fáum oröum. Meðal annars telur hann áfengisbann „bláeygan barna- skap”. Vel má svo vera út frá ýmsum sjónarmiðum séð. Samt ber öll- um, sem bezt muna bannárin hérá tslandi, saman um annaö. En sé „bláeygur barnaskap- ur” að banna nú neyzlu áfengis, hvers vegna er þá ekki sams konar barnaskapur að banna neyzlu fiknilyfja og annarra eit- urefna, sem eru þó ekki hótinu skaðlegri, þegar á allt er litið? Hvers vegna ekki að leyfa hinum „frjálsa Islandsblóma” að njóta sin sem bezt og sins á- skapaða vits, sinnar greindar og góðu handleiðslu frábærra for- eldra og ágætu kennara, sem eiga að „kenna þeim” átið og drykkjuna? Spyr sá sem ekki veit. Afengisbann er vafalaust illt, en áfengistizka nútimans er þó vafalaust verri. Ekkert nema slik tizka, svo blind áþján gæti leitt til áfengisbanns. En það var annars hin ágæta hugmynd okkar yfirlætislausa snillings, sem mér fannst svo athyglisverö. „Frjáls framtak og samtök gegn áfengistfzk- unni”. En hver á að standa þar fremst? Engir aðrir en þeir, seni fólkið og þó einkum æskan tekur tillit til. Iþróttahetjur, filmstjörnur, leikarar og eftirhermur. Þetta er fólkið, sem hugsaö er um, horft er á og reynt að likjast. Allir hinir, eða flestir sem hing- að til hafa reynt að vara við voð- anum, eru þar úr leik, löngu svi- virtir, hæddir, hrjáðir og taldir opinberlega asnar, bjánar og of- stækisfullar bullur, sem i hæsta lagi séu nothæfir til að herma eftir á gleðimótum öldurhús- anna, þar sem „fólkið I landinu” nýtur gleðinnar i glitrandi veig- um. A heimsþingi i Amsterdam i hitteðfyrra taldi glæsilegasti ræðumaöurinn, aö eina fólkiö, sem stemmt gæti á að ósi til heilla og skapað vinlausa tizku á gleðimótum væru feguröar- drottningar, filmstjörnur, stjórnmálaforingjar, knatt- spyrnuhetjur og skemmtikraft- ar dansleikjanna. En hver af þessu fólki vill nú ganga fram i „samtökum gegn áfengistizku”? Ég trúi tveim Vilhjálmum vel til þess og vissulega eru nöfn þeirra tákn- ræn fyrir vilja og varnir. En hverjir verða fleiri? Kannski kvenfólk finni köllun sina áriö 1975!” „Þaö eru skemmtikraftar dansleikjanna, sem eru bezt fallnir til forystu i samtökum gegn áfengistizkunni,” segir Arelius i bréfi sinu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.