Vísir - 13.06.1975, Side 4

Vísir - 13.06.1975, Side 4
4 Vlsir. Föstudagur 13. júni 1975 Mesta mildi að ekki varð slys: Af árekstrarstað á fœðingardeildina HNULLUNGUR ÞAUT GEGNUM RÚÐUR VIÐ HÖFUÐ FÓLKS Þarna skall hurö nærri hæium. Grjóthnuliungurinn straukst viö barnastólinn á ferö sinni gegnum hliöarrúöuna og afturrúöuna. „Ég er engan veginn búin aö jafna mig. Ég hrökk svo I kút, þegar steinninn þaut i gegnum bílrúðurnar”, sagöi Guðbjörg Ölafsdóttir, en Visismenn bar að garði í gærmorgun um 10.30, rétt eftir að grjóthnullungur hafði skroppiö undan strætis- vagni á ferð eftir Grensásvegin- um. Steinninn fór inn um hliðar- rúðu og út um afturglugga Fiat- bilsins, sem Guðbjörg keyröi. Hann kom aðeins efst við bamastól, sem var aftur i biln- um, og sagði Guðbjörg að það væri mesta mildi, að hún skyldi ekki hafa haft barnið sitt tæp- lega tveggja ára með sér i bfln- um. Óhætt er að segja, að þarna skall hurð nærri hælum, að ekki skyldi verða alvarlegt slys á mönnum, svo að ekki sé meira sagt. Rúðurnar voru auðvitað mölbrotnar. — EVI — Feikilega haröur árekstur varö á þvi mikla slysahorni — ■Gunnarsbraiit-Flókagata — um klukkan hálffjögur i gærdag. Þar skullu saman tveir japariskir bilar. Kona, sem ók bilnum, sem kom Gunnarsbrautina, virti ekki stöðvunarskylduna og ók I veg fyrir bil, sem var á leið um Flóka- götuna. Konan, sem var ein i sinum bil, hlaut taugaáfall og var flutt á slysavarðstofuna en þaðan beint á fæðingardeildina, þar eð hún var nokkuð komin á leið. Karlmaður, sem ók hinum biln- um, hlaut slæmt höfuðhögg. -JB. Eins og sjá má á myndinni er steinninn ekkert smásmföi. Fjærst á myndinni má sja fólksbflinn, sem steinninn fór f gegnum, 40 metra f burtu. FLUGÁHÖFN KONUNGSÞOTUNNAR „SLAPPAR AF ## Hún er ekki stór þotan sem Karl Gústaf flýgur meö. — ó meðan hans hótign stendur í stórrœðum ,,Við erum búin að fara i mjög skemmti- lega ferð að Gullfossi og Geysi. Ætli það verði ekki aðallega far- ið i búðir i dag og keypt eitthvað af ykkar fallegu keramikmun- um og lopaflikum.” Eitthvað á þessa leið hefst samtalið við áhöfn hans hátign- ar Karls Gústafs, er Visismenn fóru til að lita á farkost hans, litla 10-sæta þotu af Falcon gerð b ' Flugstjórinn i þessari ferð, Ingimar Ehrenström, hef- ur aðallega orð fyrir hinni 3 manna áhöfn. Auk hans eru i henni hinn finnskættaði flug- stjóri Urho Uusima og flug- freyjan Reneé Ahlstrand. ,,Hélt að þið vikingar væruð svo blóðheitir.” Þau þurfa ekki að fylgja kóngi eftir og njóta þess að taka sér það fyrir hendur, sem þeim dettur i hug i það og það skiptið. Raunar hefur Ehrenström komið hér nokkrum sinnum áð- ur, en aldrei haft viðdvöl svo lengi sem nú. Hann fræðir okkur á þvi, að hann hafi skellt sér i ff -l T \ u\m ií * ui 1 ^ 1 swá Flugfreyjan Reneé Ahlstrand er alvön aö fljúga meö tignum gestum. Ingimar Ehrenström flugstjóri og Urho Uusima flugmaöur um borö I þotunni sem flytur konung Sviþjóöar. sund i Laugardalslauginni og hafi verið hissa á þvi hversu vatniö i þeim var haft heitt. „Ég hélt að þið vikingarnir væruð svo blóöheitir.” Sjálfur hefur hann eigin sundlaug, sem hann notar óspart en vatnið i henni er aðeins volgt. Reneé Ahlstrand kom hér einu sinni áður að nóttu til i nóvember „Það var kuldalegt, og ég sá lítið af landinu”, segir hún. Núna hefur henni þótt mest til koma að sjá hver gjósa. Talið berst að verkfallsmál- um og það kemur i ljós, að þau hafa haft vaðið fyrir neðan sip og fyllt bensintanka vélarinnar þegar á fyrsta degi. Annars vill Ehrenström meina, að það sé lika töluvert um verkföll i Svi- þjóð og skemmster að minnast, að sorphreinsunarmenn fóru i hálfsmánaðarverkfall nú á dög- unum. Við vendum okkar kvæði i kross og næst á dagskrá eru þéringar, sem þau segja, aö séu nú óðum áð minnka i Sviþjóð, enda sé stefna yfirvalda sú. Við göngum um vélina og flugfreyjan sýnir okkur, að með litilli fyrirhöfn megi taka nokk- ur sæti úr til þess að setja sófa i staöinn. Salernið er aftur i og eldhúsið, sem nánast er aðeins tveir skápar og borð, er frammi i vélinni, ásamt fatahenginu. Þotan er i eigu Crownair Flugfélagsins sem aðallega er I leiguflugi. M.a. mikið með hátt- setta embættismenn og tigið fólk, eins og konunginn, en hann fer svoria 5 ferðir á ári. Þess má geta, að flugið til Stokkhólms tekur 3 klst. og héð- an fer Karl Gústaf seinni part- inn i dag. —EVI —

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.