Vísir - 13.06.1975, Síða 5
Vísir. Föstudagur 13. júni 1975
ap/ntEbR ^DÍ MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: Óli Tynes
ROCKIFELLER NEFNDIN
FALSAÐI QRD MÍN UM
MORDIÐ A J. KENNEDY
— segir þekktur bandarískur réttarlœknir
Þekktur réttarlæknir
hefur farið fram á, að
rannsókn nefndar
Rockefellers varafor-
seta á starfsemi CIA,
verði rannsökuð, þar
sem hún hafi ranglega
haft eftir sér það, sem
hann sagði um morðið á
Kennedy heitnum, for-
seta Bandarikjanna.
Dr. Cyril Wecht kveðst hafa
sagt nefndinni, að hann sé þeirrar
skoðunar, að tveir menn hafi
skotið forsetann. Dr.Wecht var
einn þeirra sérfræðinga, sem
kvaddur var til, þegar morðið
var framið.
Hann sagði, að Rockefeller
nefndin hefði farið ranglega með
vitnisburð sinn. Hún hefði tekið til
birtingar hluta af þvi sem hann
sagði og látið það lita út sem
hann væri sammála Warren
nefndinni, sem á sinum tima
komst að þeirri niðurstöðu, að
Lee Harvey Oswald hefði staðið
einn að morðinu.
,,011 þau gögn, sem lágu fyrir,.
læknisfræðileg sem önnur, bentu
til þess, að morðingjarnir hafi
verið tveir,” sagði dr.Wecht.,,Ég
lét það álit mitt i ljós við nefndina
á svo skýran hátt, að það getur
ekki veriö um neinn misskilning
að ræða. Nefndin getur heldur
ekki sagt, að þetta hafi verið utan
hennar sviðs, þar sem hún hafi
einungis verið að kanna ásakanir
um þátttöku CIA i morðinu. Hún
fór langt út fyrir þann ramma”.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu, að CIA hefði hvergi komið
nærri morðinu. Dr. Wecht hafði
ekkert við þá niþurstöðu að at-
huga, kvaðst aðeins sannfærður
um, að morðingjarnir hafi verið
tveir.
Rockefeller sýnir fréttamönn-
um skýrsluna, sem nú er orðin
mjög svo umdeild.
Geta eytt
hvort öðru
100 sinnum
Innan fimm ára verða
kjarnorkuvopnabúr Sovét-
rikjanna og Bandarikjanna
orðin svo full, að löndin
geta eytt hvort öðru
hundrað sinnum, segir í ár-
bók sænsku friðarrann-
sóknarstofnunarinnar,
sem er nýkomin út.
Árbókin segir að risaveldin tvö
eigi þegar meira en fjörutiu þús-
und „litlar” kjarnorkusprengjur,
þ.e. sem hermenn myndu nota á
vigvöllunum. Sprengikraftur
þeirra er jafn mikill og sjö-
hundruð milljón lesta af TNT.
Þar fyrir utan eiga þau svo
„stórar” kjarnorkusprengjur, i
eldflaugum og flugvélum. Eins og
menn vita, standa nú yfir viðræö-
ur um takmarkanir kjarnorku-
vigbúnaðar. Þegar risaveldin tvö
verða búin að koma sér upp öllum
þeim bombum, sem leyfðar eru
innan ramma þeirra, verða risa-
bomburnar i risaflaugunum orðn-
ar meira en 17 þúsund talsins. Og
þá eru ótaldar nokkur þúsund
stórar, sem fluttar eru með flug-
vélum.
Amin:
Hlýðið eðo við
Aðeins virðist
friðvænlegra i löndunum
fyrir botni Miðjarðar-
hafs, eftir fund þeirra
Fords forseta og Rabins
forsætisráðherra
ísraels, sem lauk i
Washington i dag. Talið
er líklegt, að Henry
Kissinger muni aftur
hefja „landhoppferðir”
sinar milli deiluaðila i
næsta mánuði ef
Egyptaland og ísrael
fást til að gera ein-
hverjar meiri til-
slakanir áður.
Kissinger er tregur til að
hefjast handa á nýj an leik nema
hann geti verið a.m.k. niutiu
prósent viss um árangur. Rabin
sagði á fundi með fréttamönnum,
að hann teldi að grundvöllur væri
fyrirTsamningum um Sinaiskaga.
,,Á milli Egyptalands og Israels,
sérstaklega er möguleiki á hæg-
fara breytingu,” sagði forsætis-
ráðherrann.
Hann sagði hins vegar, að
tsraelar myndu örugglega
krefjast þess að fá töluvert i
staðinn, ef þeir ættu að láta
Golanhæðirnar af hendi, rétt einu
sinni.
Námuslys
Tveir námamenn létu lifið,
einn slasaðist og þriggja er
enn saknað, eftir sprengingu
i kolanámu skammt frá
Barnsley I Englandi I gær-
kvöldi. Sprengingin varö á
400 metra dýpi og um hálfan
kilómetra frá opi námunnar.
Björgunarsveitir leita enn
þeirra þriggja, sem eftir eru.
Ekki er vitaö um orsök
sprengingarinnar.
skjótum
Brezka stjórnin er aö
reyna aö semja viö Idi
Amin, forseta Uganda um
að fá látinn lausan brezka
fræðimanninn Dennis Hill,
sem hefur verið dæmdur
til dauða. Honum er gefið
að sök sð hafa komizt
ókurteislega að orði um
Amin, í bók sem hann var
að búa undir prentun.
Amin hefur meðal annars kraf-
izt þess, að allir flóttamenn frá
Uganda, sem nú búa i Bretlandi,
verði reknir þaðan. Annars verði
Hill tekinn af lifi. Hiil hefur lýst
sig saklausan af ákærunni, sem
hljóðar upp á landráð, vegna þess
að hann talaði ekki fallega um
forsetann.
Fjórir sakborninganna i
B a a der-M ein hof f réttar-
höldunum voru leiddir út úr
réttarsalnum i gær eftir að
þeir ientu i slagsmálum við
réttarverði og hrópuðu svi-
virðingar um dómarann.
Réttarhöldunum var svo hald-
ið áfram i fjarveru þeirra.
Baader
Ólætin byrjuðu, þegar
réttarlæknir kvaðst telja, að
það hafi verið rangt að halda
þeim I einangrun i allan þann
tima, sem þau hafa verið þar.
Slikt færi illa með heilsu
manna bæði andlega og
likamlega. Hann kvaðst þó
þeirrar skoðunar, að þau væru
öll nógu heilbrigð til að koma
fyrir rétt.
Þessu vildi fólkið ekki una
o’g spratt á fætur til að ganga
út i mótmælaskyni. Það kom
til slagsmála og það æpti full-
um hálsi: „Svin!” að
dómaranum.
Hann missti ioks þolinmæð-
ina og lét leiða fólkið á brott.
Rabin:
MÖGULEIKI
ÍSRAELS 0G
A BREYTINGU MILLI
EGYPTALANDS
■
Ekki linnir látunum á trlandi. Þrfr biðu bana þegar þessi bifreið
sprakk I loft upp I Belfast I gærkvöldi. Lögreglan hefur máliö til
rannsóknar en veit ekkert um fórnarlömbin ennþá. Mögulegt er, að
þetta hafi veriö skemmdarverkamenn á leið á einhvern stað með
sprengju, eða þá saklaust fólk, sem einhver öfgahópurinn ákvað aö
myrða.