Vísir - 13.06.1975, Page 6

Vísir - 13.06.1975, Page 6
6 Vísir. Föstudagur 13. júni 1975 VÍSIR Ctgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 40 kr.eintakið. Blaðaprent hf. Ekki svo með öllu illt Þeir eru búnir að semja, þrátt fyrir alla bölsýn- ina, sem rikt hefur undanfarna daga. Allsherjar- verkfallið kemur að visu til framkvæmda, en einungis i einn dag. ótti manna við margra vikna verkfall hefur reynzt ástæðulaus. Sáttanefndin og samninganefndirnar eiga mik- inn heiður skilið. Þær hafa barið saman sam- komulag á örfáum dögum, þótt bilið milli deilu- aðila hafi fram á siðustu stund verið breiðara en dæmi eru um á undanförnum árum. Að sjálfsögðu lækna samningarnir ekki öll mein. Atvinnurekendur eru fremur svartsýnir. Spurningin er um hægan eða skjótan dauðdaga þeirra, sagði einn fulltrúa þeirra i gær. Ef þetta er rétt, hafa þeir valið hægan dauðdaga með þvi að semja. En hvað var hægt að gera? öllum mátti vera ljóst, að slagorðið um, að afkoma heimilanna væri i hættu, átti fullan rétt á sér. Og afkoma fyrirtækjanna varð að vikja fyrir afkomu heimil- anna, af þvi að samningar eru pólitik. Þessi siðasti og versti galli samninganna kem- ur meðal annars fram i þvi, að rikisstjórnin hefur neyðzt til að ábyrgjast fast verð á landbúnaðar- afurðum. Hún hefur tekið að sér að sjá um, að niðurgreiðslur verði auknar með sama hraða og Parisarhjól verðbólgunnar. Ákvörðun rikisstjórnarinnar um þetta efni er talin vera lykillinn að þvi, að unnt reyndist að brúa hið breiða bil, sem var á milli deiluaðila. Það er slæmur fyrirboði, að samningarnir skuli þurfa að byggjast á efnahagslega rangri ákvörð- un stjórnvalda. Nú lendir þjóðin i hinu gamla og sigilda dæmi, að kjörin breytast eftir allt öðrum lögmálum en samningar gera ráð fyrir. Það skiptir ekki máli, hvort samið hefur verið um hæstu krónutölu, sem um getur i samningum, eins og forseti Alþýðu- sambandsins talar um. Krónan hefur lag á þvi að skreppa saman eftir þörfum. Hún skrifar ekki beinlinis undir samn- ingana, þrátt fyrir öll visitöluákvæði. Hún hagar sér eftir sambandi þjóðartekna og launakjara á hverjum tima og lætur enga pólitik hafa áhrif á sig. Samningarnir byggjast á pólitisku mati sátta- nefndar á möguleikum aðstöðunnar eins og hún er núna. Á þessum grundvelli var unnt að berja saman samninga. En efnahagslegur grundvöllur samninganna er enginn. Réttmætt væri, að samninganefndirnar tækju sig saman um að leggjast á bæn og biðja fyrir fiskverðinu i Bandarikjunum. Þar er að sjálf- sögðu prófsteinninn á, hvort samningarnir eru alvörusamningar eða gervisamningar. Þvi miður fer verðið þar lækkandi á sama tima og samningamenn skemmta sér við hæstu krónu- tölur i manna minnum. Þeir hafa ekkert lært og engu gleymt. Allt þetta nöldur er þó litils virði i ljósi þess, að vinnufriður rikir. Hjól atvinnulifsins snúast al- ténd, þótt smurninguna skorti. Frestur á illu hef- ur náðst. Betra er að spila upp á lukkuna en að spila alls ekki. Biðskák er betri en töpuð skák. — JK Ban hyg\ daríki m • • n a meiri ItÁVÍfll á þi ngi Sameinuðu þjóé fanna Stjórnmálasérfræðingar hafa spáð þvi að Bandarikin hyggist taka upp miklu harðari stefnu I Sameinuðu þjóðunum en þau hafa rekið hingáð til. Þeir telja að þau ætli mun meira að beita sér gegn valdi þvi sem riki þriðja heimsins hafa náð i Sþ og muni ekkert til spara að koma sinum málum fram. Þau muni t.d. ekki hika við að beita pen- ingavaldinu, en Bandarikin greiða nú verulegan hluta af rekstrarfé samtakanna. Ástæðan: Nýr maður Astæöan fyrir þessum spám er hinn nýskipaði fastafulltrúi Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Daniel Patrick Moynihan. Moynihan er maöur umdeildur, enda hefur hann það fyrir vana aö segja skoöun sina hreint út, án þess að vera nokk- uð að klípa utan af, og það er ekki alltaf vel liðið. Hann hefur þegar gefið I skyn hvernig honum finnist Banda- rikin eiga að beita sér gegn þjóöum þriöja heimsins á vett- vangi Sameinuöu þjóðanna. Harða afstöðu 1 grein, sem Moynihan skrif- aði nýlega, gagnrýndi hann við- kvæmni Bandarikjanna og frið- þægingarstefnu gagnvart þjóð- um þriðja heimsins. í sam- skiptum við þær þyrfti aö beita hörku. Hann benti á að efnahagur þjóða þriðja heimsins væri I „upplausn” og að stjórnir þeirra væru ólýðræöislegar. Um það vildi hann kenna brezkum sósialisma sem hefði kennt mörgum þróunarlöndum að vera á móti kapitalisma, frjáls- lyndi og Bandarlkjunum. Ford forseta hafa auösjáan- lega fallið þessi sjónarmiö nokkuðvel i geð og hann skipaöi Moynihan fulltrúa hjá Samein- uðu þjóðunum. Hans eigin menn Þessi útnefning ber ekki endi- lega vott um að Ford sé óánægö- ur meö John Scali, sem Moyni- han tekur við af. En Ford er hrifinn af skoðunum Moynihans Ræða hans um „harðstjórn meirihlutans” I desember 1974 var I rauninni „uppúrsuða” hjá Bandarikjamönnum yfir þvl hvernig þingi Sþ er stjórnað. Hann talaði um vaxandi von- brigði Bandaríkjanna vegna pólitisks valds þessara þjóða sem eru ekki fulltrúar fyrir nema tiu prósent af Ibúum heimsins og leggja enn lægri prósentutölu fram til uppihalds Sameinuðu þjóðanna. (Bandarlkin greiða 25 prósent af kostnaðinum.) Bandarikjaþing að missa áhuga Bandarikjaþing er auðsjáan- lega að verða þreytt á Samein- uðu þjóðunum. I siðasta mánuöi hóf utanrikismálanefnd öld- ungadeildarinnar rannsókn á starfi þeirra. Það er fyrsta rannsóknin, sem gerð er á starfi þessara alþjóöasamtaka i 20 ár. Þingið samþykkti einnig að hætta þegar 19 milljón dollara árlegu framlagi til Mennta- og visindastofnunar Sþ eftir að fulltrúum ísraels var visað það- an á braut að undirlagi nokk- urra Araba- og Afrikurikja. Nokkru slöar neituðu Banda- rikin að taka þátt I stofnun sjóös sem átti að hjálpa þeim löndum sém „verst væru úti”. og honum er umhugað um aö litiö verði á rikisstjórn hans sem hans menn. Fulltrúastaðan hjá Sameinuðu þjóðunum er rikis- stjórnarstaða. Ford hefur þegar valið sér nokkra ágæta menn I þessum tilgangi, svo sem Edward Levi dómsmálaráðherra. Kom ekki á óvart Það kom ekki svo mjög á óvart, aö Moynihan skyldi nú lenda hjá Sameinuðu þjóðunum. Það var tvisvar áður búið að bjóða honum stöðuna, I stjórn- artiö Nixons. í fyrra skiptið neitaði hann vegna þess að fréttir um það láku út áöur en þáverandi fulltrúa hjá Sþ, Charles Yost, var sagt frá þvl. 1 siðara skiptið kaus hann heldur að verða sendiherra I Indlandi. Hann vann þar ágætt starf þótt hljótt væri um hann og tókst meöal annars að þurrka út stór- an hluta af skuld Indlands viö Bandarlkin fyrir matvæli sem send voru I kringum 1960. í vandræðum vegna ummæla um svertingja Moynihan er ályngur og reyndur stjórnmálamaöur. Hann var litríkur persónuleiki I stjórn þeirra Kennedys og John- sons, þar sem hann fór með verkalýðsmál. í stjórn Nixons var hann formaður nefndar sem fjallar um borgarmál og barðist farsællega fyrir tryggingu lág- markstekna. Hann lenti einnig i nokkrum vandræðum þegar hann lýsti þeirri skoöun sinni að svertingj- ar hefðu gott af tímabili „vin- samlegrar vanrækslu”. Harðstjórn meirihlutans” Daniel Patrick Moynihan er frægur fyrir að segja skoðun slna umbúðalaust. Hvort það er einmitt þessi eiginleiki sem þarf hjá Sameinuðu þjóðunum má deila um nú, þegar það eru þró- unarlöndin en ekki Bandarikin sem hafa meirihluta á þinginu. En I skoðunum slnum fer Moynihan I rauninni ekki nema einu skrefi lengra en Scali. Daniel Patrick Moynihan Bandarikin úr Sþ? Moy.nihan er ekki einn um að vera þreyttur á gerræði þriðja heims þjóðanna. Bandariskur almenningur er á sama báti. „Þáö er allt i lagi þótt þeir séu ekki alltaf sammála okkur. En að reka beinllnis andbandariska stefnu og berjast gegn öllu sem við stöndum fyrir, það er of langt gengið.” Það var sagt I háði meðan Vesturlönd flöðruðu upp um Arabarlkin I ollubanninu, að ef Arabar bæru fram tillögu um að jörðin væri flöt, yrði hún sam- þykkt með miklum meirihluta. Og þetta er alls ekki út I bláinn. Vald þriðja heims þjóðanna er orðið svo mikiö að Bandarikin urðu að grlpa til þess neyðarúr- ræðis að láta háttsetta embætt- ismenn hóta þvl að þau segðu sig úr Sþ og hættu öllum stuðningi viö samtökin, ef ísrael yrði rekið. Það eru þó sem betur fer ekki Hkur til þess að svo fari. Og þótt Bandarlkjamönnum gremjist oft við Sþ, er réttlætiskennd þeirra þó svo mikil að þeir viija fæstir hætta þátttöku. Nýleg skoðanakönnun sýndi að 75 pró- sent þjóðarinnar vildu áfram- haldandi aðild. Bandarikin verða þvl áfram I Sameinuðu þjóðunum. En með Daniel Patrick Moynihan við stjórnvölinn ætti að heyrast töluvert meira i þeim þar hér eftir.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.