Vísir - 13.06.1975, Side 16
vísm
Föstudagur 13. júnl 1975
GLÍMUKAPPAR:
Fó 450.
þúsund til
ferðarinnar
frá borginni
„Lágmarkskostnaöur viö utan-
för glfmuflokksins er um tvær
milljónir króna. Þaö kemur sér
þvi vel aö fá þennan 450 þúsund
króna styrk frá borgarráöi,”
sagöi Kjartan Bergmann hjá
Giimusambandi tslands í viötali
við Visi i morgun.
Þaö var á fundi borgarráðs sl.
þriðjudag, sem samþykkt var að
veita Glimusambandinu ofan-
greindan styrk til að senda tólf
manna glimuflokk til Kanada i
ágúst. Þar mun flokkurinn koma
fram á hátiðahöldunum að Gimli I
Manitoba minnst þrisvar eða
fjórum sinnum, en siöan leggur
flokkurinn upp i sýningarferð,
sem ekki hefur ennþá verið
skipulögö til fulls.
Þorsteinn Einarsson, iþrótta-
fulltrúi, mun stjórna flokknum,
en þetta er ekki i fyrsta skipti,
sem Þorsteinn fer með glimu-
flokk til Kanada. Hann stjórnaði
glimuflokki, sem fór héðan til að
sýna á heimssýningunni i
Montreal árið 1967.
-ÞJM.
Fótbrotnaði
í bílslysi
Sex ára piltur fótbrotnaði, er
hann varð fyrir jcppabil i
Hvassaleitinu klukkan sex í gær-
dag. Pilturinn hljóp i veg fyrir
biiinn með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Pilturinn var fluttur á Borgar-
sjúkrahúsiö.
— JB
Vinarkveðjur
til Vesturheims
Mikill fjöidi tsiendinga á bæöi
vini og vandamenn vestanhafs.
Um 1200 manns ætla nú I sumar
að leggja land undir fót og taka
þátt i hátiðarhöldunum, þegar
minnzt veröur 100 ára iandnáms
íslendinga þar.
Forráðamenn Lögbcrgs-
Heimskringlu hafa ákveðið að
gefa þeim, sem ekki komast, en
langar að senda kveðjur, kost á
að senda vinarkveöjur.
Blaðið hefur 5 þús. áskrifendur
I Kanada og viðar og kemur þvi
fyrir augu þorra manna af is-
lenzku bergi fyrir vestan.
Frekari upplýsingar eru veittar
i sima 28065. milli kl. 13 og 17 til
20. júni.
—EVI—
Anœgjulegar móttökur
I fylgdarliði konungs eru
nokkrir af æðstu embættis-
mönnum Svia, þar á meðal Sven
Anderson, utanrikisráðherra.
Svo skemmtilega vill til, að
hann er gamall nemendi frú
Astrid Brekkan, sem giftist
hingað til íslands fyrir meira en
50 árum.
Konungur hélt sig í einni af
stofunum og þangað gátu þeir
KONUNGUR LAGÐI TIL
STEIKINA OG VÍNIÐ
€arl XVI Gustav hélt
sína eigin veizlu i
Naustinu i gærkveldi.
Þangað var boðið 37
gestum. Aðeins þrjár
frúr voru i hópnum:
forsetafrúin, sendi-
herrafrúin í Svíþjóð og
eiginkona sænska
sendiherrans hér á
landi.
Um hálf átta kom konungur a
undan gestum sinum. Var hann
klæddur kjólfötum, allur orðum
skreyttur. 1 för með honum var
veizlustjórinn, sem skrýðzt
haföi þeim veglegasta ein-
kennisbúningi, sem sézt hefur
hérlendis um langt skeið. Þá
komu gestirnir hver á fætur
öðrum. Siðast komu forseta-
hjónin.
Snæddar voru hinar dýrustu
krásir. Sviakonungur hafði
komið með aðalréttinn með sér.
Það var fugl, ekki ósvipaður
rjúpunni okkar nema miklu
stærri. Vinið, sem veitt var,
kom einnig með Hugvél kon-
ungs. Borðbúnaðurinn, sem
notaður var, er i eigu Sviakon-
ungs. Hann er allur gullhúðað-
ur. Lá við, að glýju slægi fyrir
augu áhorfenda, er þeir litu hið
skreytta borð.
Starfslið Nausts átti annasaman sóiarhring, og undirbúningurinn hafði staðið lengi. Hér standa
Nausts-menn við hið konungiega veizluborð i gærdag.
(Ljósmynd Visis BG)
SLEPPT UR HALDI,
SEKTIN LÆKKUÐ ÚR
165 ÞÚS. í 25 ÞÚS.
Piltunum tveim, sem vcriö
hafa i haldi i Marrakech frá 16.
mai, verður sleppt I dag eða á
morgun. Danska sendiráðinu i
Kabat i Marokkó hefur tekizt að
fá sektina lækkaöa niður i sem
svarar 25 þúsund krónum á
hvorn piltanna og verður sú sekt
greidd i dag.
Piltarnir verða svo, aö sögn
utanrikisráðuneytisins, settir i
fyrstu lest frá Marokkó og halda
viðstöðuiaust heim til tslands.
-JB.
Erfíðleikar á rekstri veitinga-
hússins á Kjarvalsstöðum
Kekstur veitingarstofunnar á
Kjarvalsstöðum hefur gengið
fremur illa.
Forstööumaöur veitinga-
stofunnar taldi, að helztu or-
sakanna væri að leita i þvi, að
ekki væri hægt að ieigja salina
undir veizlur nema með sérstöku
leyfi hússtjórnar Kjarvaisstaða.
Hingaö til hefur almenningi eða
féiögum ekki gefizt tækifæri tii
að leigja saiina til veizluhalda,
aðeins Reykjavikurborg hefur
haft aðstöðu til þess hingaö til.
Við opnun Kjarvalsstaða var
seldur' hádegismatur á staðnum.
En vegna sýninga sem haldnar
voru I öllu húsinu, t.d. frimerkja-
sýningarinnar og þjóðhátiðar-
sýningar, þá varð að loka
veitingastofunni. Hættu þeir þá
að framreiða mat i hádeginu.
Kvaðst forstöðumaðurinn þess
fullviss, að ef haldið hefði verið
áfram að framreiða hádegismat,
þá hefði reksturinn getað gengið
betur, þvi að fólki fjölgaði sifellt,
sem þar vildu borða.
Nú er selt kaffi, kökur og smurt
brauð á Kjarvalsstöðum. Sagði
forstöðumaðurinn, að aðsókn
væri mismunandi eftir sýningum.
í sumar verður veitingastofan
opin alla daga frá 2-10.
-HE.