Vísir - 30.08.1975, Blaðsíða 16
16 _____________________ _________________________________________________________________________________________Vísir. Laugardagur 30. ágúst 1975
1 íSAG | í KVÖLD | | í DAG | í KVÖLD | | ÍDAG 1
Framtlö Grjótaþorps I Heykjavlk? Þeir, sem ætla aö ræöa þessa
spurningu, eru þeir Hilmar ólafsson, forstiiöumaöur Þróunarstofn-
unar Reykjavlkur, Gestur Ólafsson arkitekt, Magnús Skúlason
arkitekt, ólafur Haukur Slmonarson rithöfundur, Höröur Ágústsson
listmálari og Aslaug Ragnars blaöamaöur.
Á myndinni eru talið frá vinstri Ólafur Haukur Slmonarson rithöf-
undur, Baldur Kristjánsson stjórnandi þáttarins og Hreinn
Valdimarsson tæknimaður útvarpsins. — Ljósm. JIM
Sjónvarp sunnudag kl. 18.50:
Dóra í Kaplaskjóli og
hesturinn Skuggi
Að þessu sinni fjallar mynda-
flokkurinn um Dóru og hestana
hennar i Kaplaskjóli um hestinn
Skugga en eigandi hans er óð-
alsbóndi nokkur i nágrenninu.
Þetta er stökkkeppnishestur, en
vegna þess aö dóttir óðalseig-
andans hefur farið mjög illa
með hestinn, m.a. bariö hann
iha, er hann mjög órólegur. Til
þess að róa hann og auka vellíð-
an hans er honum komið fyrir i
Kaplaskjóli hjá Dóru.
Skugga er stolið og hlýtur
myndin mjög óvæntan endi.
—HE
Myndin er af Dóru og bezta vininum hennar, hestinum.
Á ógústkvöldi kl. 20.45 laugardag:
LOKAÞÁTTUR
LEIKRITSINS
HVER MYRTI
LÍKIÐ?
— Sigmnr B. Hauksson sér um þóttinn
Eins og venjulega er þáttur-
inn A ágústkvöldi fulíur af
glensi og grini. Aö þessu sinni
ætlar Sigmar B. Ilauksson að
skýra frá mjög merkilegri frétt,
en hún er sú, að hagfræði verði
lögð niður I öllum háskólum I
heiminum. Af hverju? Það fáið
þið að vita, ef þið hlustið á þátt
Sigmars.
Siðan verður þátturinn „Orð á
borði”. Hlustendur geta hringt
til þáttarins og spurt um alls
kyns orð sem þeir vilja fá skýr-
ingu á.
Hvað er jarðfræðingur?
Þeirri spurningu verðúr einnig
svarað.
Þá verður lokaþáttur hins
stórbrotna sakamálaleikrits
eftir Siggu i Túni, sem er hin is-
lenzka Agatha Christie. Leikrit-
ið heitir „Hver drap likið?” Þar
segir m.a. frá Janis Bonde og
Diddu blaðakonu, sem eru að
reyna að komast á spor morð-
ingjans. En þau lenda I alls kon-
ar ævintýrum og misskilningi.
Að lokum verður viðtal við
Ole Normann, við vitum þvi
miður engin deili á þeim manni.
—HE
Systurnar Janis og Linda Walker eins og þær lita út I dag og eins og þær litu út, þegar Janis var fimm
ára en Linda þriggja ára.
Mynd þessi var tekin við upptöku á sjónvarpsþætti þeirra systra, sem sýndur verður I kvöld.
Sjónvarp kl. 20.55:
Systur syngja saman
— Janis Carol og Linda Walker syngja saman í fyrsta sinn
Þær systurnar Janis og Linda
Walker ætla að skemmta sjón-
varpsáhorfendum i kvöld. Þótt
þær séu þekktar söngkonur hér
á landi, hvor i slnu lagi, þá hafa
þæraldrei sungið saman fyrr en
i þessum sjón varpsþætti.
Reyndar tóku þær þátt i smá-
keppni, sem haldin var i
Lundúnum I tilefni krýningar
Elisabetar Bretadrottningar, en
þá var Janis tæplega fimm ára
en Linda þriggja ára. Janis söng
en Linda dansaði Búggý vúggý.
Þær systurnar unnu keppnina.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar. Linda syngur nú með
hljómsveit Hauks Morthens á
Hótel Sögu, en Janis hefur sung-
ið með þeim Drifu Kristjáns-
dóttur og Helgu Steinsson, en
þær vinkonurnar hafa kallað sig
Nunnurnar. Janis hefur sungið i
þeim poppsöngleikjum sem hér
hafa verið sýndir. Einnig hefur
hún sungið með ýmsum hljóm-
sveitum við miklar vinsældir.
Um framtiðaráætlanir þeirra
systra er það að segja, að Linda
hefur fengið tilboð frá Englandi
um að syngja þar i landi. En hún
hefur ekki ákveðið hvort hún
tekur þessu tilboði.
Janis ætlar að halda áfram að
syngja með „Nunnunum” i vet-
ur. Auk þess fer hún i Tónskóla
Sigursveins til að læra á pianó.
Hún mun halda áfram að syngja
með Pólýfónkórnum eins og
undanfarin ár.
Annars sagðist Janis hafa
mestan áhuga á að syngja jass,
og ef til vill færi hún frekar út á
þá braut.
Báðar eru þær systur giftar og
eiga bús og barna að gæta.
Lögin, sem þær systur syngja
ikvöld, eru úr ýmsum áttum, og
sögðust þær vona að allir hefðu
gaman af.
—HE
Hálftíminn kl. 19.35 á laugardag:
Opinberun íslenzku
frímúrarareglunnar
Er hægt að gera útvarpsþátt,
þar sem flett er ofan af starf-
semi frimúrarareglunnar á ís-
landi? Nei, það er ekki mögu-
legt, þar eð allir i þeim félags-
skap eru bundnir þagnarheiti og
enginn „kjaftar frá”, mundi
einhver segja. Þó ætla stjórn-
endur „Hálftimans”, þeir
Ingólfur Margeirsson og Lárus
óskarsson að lýsa þvi sem fer
fram innan reglunnar, siðum og
venjum og öðru sliku. Upplýs-
ingar sinar hafa þeir m.a. frá
dönsku frfmúrarareglunni, sem
hefur á undanförnum árum opn-
að starfsemi sina, þannig að
ekki er eins mikil leynd yfir
reglunni og áður. -HE
Við Heiðar Ástvaldsson dans-
kennari veljum danslögin til
skiptis á laugardögum, sagði
Hulda Björnsdóttir, sem einnig
er danskennari.
Við vinnum eftir ákveðnu
kerfi, þannig að við höfum fjór-
ar syrpur af klassiskum dans-
lögum og 3—4 syrpur af beatlög-
um. Þeir, sem vinna á tónlistar-
deild útvarpsins, ráða þessari
tilhögun, en við veljum lögin.
Ég reyni að hafa alltaf nýleg
lög I beat-syrpunni. Einnig hef
ég það til hliðsjónar, að góður
taktur sé I lögunum. Annars er
ekki mikið af nýjum danslögum
niðri í útvarpi að mlnu áliti.
Stundum hef ég lika syrpu af
gömlum dönsum, en þeir eru
alltaf vinsælir.
Ég hef verið á dansskóla i tlu
ár, þar af hef ég unnið sem
kennari I fimm ár. Það tekur
þrjú ár að verða danskennari.
Kenndi ég hjá Heiðari Astvalds-
syni jafnframt náminu, sagöi
Hulda að lokum.
HE
Danskennari velur
sunnudagslögin