Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 28

Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 28
kœn<z tr-Q *-ti£o> itrojJDff <20trmtn 020 §otr- u.itujqo- j._m< a j-<*- 28 Þriöjudagur 23. desember 197.5. VTSIR Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 24. des. Hrúturinti 21. mars—20. april: Farðu varlega i allri jólaumferð- inni fyrir hádegi og varastu slysagildrurnar. Kvöldið ætti að veita þér mikla ánægju, en mundu samt að jólahátiðin hefst ekki fyrr en kl. sex. Nautiö 21. aprii—21. maí: Einhver vandræði með vin þinn ættu að geta leyst giftusamlega áður en hátiðin gengur i garð. Þá verður allt gott aftur. Mundu að siðasti möguleiki til að kaupa jólagjafir er á hádegi. m Tviburarnir 22. mai—21. júni: Áhrif sem þú hefur orðið fyrir breytast. Hafðu augun opin fyrir öllum breytingum og vertu varkár við meðhöndlun véla. Ein- beittu þér að jólahaldinu og hugs- aðu ekki um annað. Krabbinn 21. júni—23. júli: Vertu ekki of fastheldinn á skoð- anir sem þér hafa verið innprent- aðar, hlustaðu eftir einhverju markverðu, jafnvel þótt það sé ekkert sérstaklega spennandi, geturþað haft áhrif á llf þitt. Nt Ljóniö 24. júlí—23. ágúst/ Þér verður hugsað til ástvina þinna i fjarlægð, sem þér hefur alltaf verið óhætt að treysta. Kannski færðu einhverja óvænta' sendingu frá þeim. Farðu varlega i hálkunni. Meyjr>n 24. ágúst—23. sept.: Farðu snemma á fætur á að- fangadag og leggðu siðustu hönd á jólaundirbúninginn fyrir há- degi, svo þú getir slappað af eftir hádegi og horft á skemmtipró- grammið i sjónvarpinu. Vogin 24. sept.—23. okt.: Gættu þess að blanda þér ekki i neitt sem þér kemur ekki við, eða er heimskulegt. Ekki er vert að treysta um of á veröldina núna, en siðar i kvöld getur verið að þér berist óvænt, leynileg gjöf frá gömlum vini. Drekinn ________ 24. okt.— 22. nóv.: Má vera að þú lendir upp á kant við vin þinn eða kunningja á næst- unni. Ekki gefast samt upp, reyndu að fá fram skoðanir þriðja aðila á málinu. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Þótt þér finnist skammdegið drungalegt, máttu ekki gleyma þvi að jólin eru hátið hækkandi sólar, og áður en varir lengir dag- inn og framtiðin verður bjartari. Stcingeitin 22. dcs.—20. jan.: Stundum er i lagi að láta rök- semdir vikja fyrir tilfinningum og láta stjórnast af löngun en ekki skynsemi. Láttu slikt eftir þér i dag, svo lengi sem það særir eng- an. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Forðastu að sóa fé til einskis. Framkvæmdu hlutina að yfirveg- uðu ráði og láttu ekki glepjast af ágirnd nágranna þinna. Kiskarnir 20. febr.—20. inars: Bjánaleg vandamál kunna að risa af einskærum misskilningi. Þú skalt ekki einangra þig frá félög- um þinum, heldur reyna aö eyða misskilningnum. Allt er gott sem endar vel.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.