Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 1
NUNNURNAR VILJA
SELJA LANDAKOT
S|Q
baksíðufrétt
BLAÐIÐ í DAG:
Blaðið i dag er það seinasta fyrir jól og þvi stærra en venju-
lega eða 32 siður. Visir kemur svo aftur út mánudaginn 29.
desember og þriðjudaginn 30. Fyrsta blaðið eftir áramót kemur
út föstudaginn 2. janúar.
Af efni blaðsins má nefna dagskrá útvarps- og sjónvarps fimm
næstu daga ásamt myndskreyttum umsögnum um það helsta,
sem verður á boðstólum. Sjá bls. 20-21-22-23.
Þá birtir Visir einnig haldgóða dagbók, þar sem er m.a. að
finna opnunartima bensinstöðva og ýmissa verslana, læknavakt,
ferðirstrætisvagna ogannaðþar fram eftir götunum. Sjá bls. 18-
19.
Kvikmyndagagnrýnandi Visis hefur séð þrjár af jólamyndum
kvikmyndahúsanna og lýsir áliti sinu á þeim á bls. 24.
Jólaspilfyrir alla fjölskylduna er á bls. 15ogá bls. 6 er kross-
gáta og verður dregið úr réttum úrlausnum og veitt þrenn
verðlaun. Þau hæstu eru tiu þúsund krónur.
Sfðast en ekki sist viljum við vekja athygli á þættinum
,,Kirkjan og þjóðin”, en hann er á bls. 4-5.
Herfylking vðni-
bíla stöðvaði
vinnu í Eyjum
Viðlagasjóður sagður
hjólpa til við verkalýðsbrot
Þrír harðir skjálftar í morgun
„Gosið annaðhvort
búið, eða ekki
byrjað
ff - segir
Svembjörn
Björnsson
„Skjálftavirknin er ennþá i
fullum gangi, það komu þrir
kippir I morgun ansi stórir, um
eða yfir fjögur stig,á timanum
frá 5.20 til 6.19. Héöan frá
Reykjavik virðast þeir eiga
upptök sin i Kelduhverfi og þar
norður af, fólkiö hlýtur að hafa
vaknað þar við lætin,” sagði
Sveinbjörn Björnsson jarðeðlis-
fræðingur hjá Raunvisinda-
stofnuninni i viðtali við Visi i
morgun.
„Það var tiltölulega rólegt frá
miönætti í nótt og fram til
fjögur, en eftir það byrjuðu
skjálftar og sá stærsti var
klukkan rúmlega sex.
Það var samhengi milli
hræringanna þarna norður frá
og hreyfinga á Leirhnúks- og
Mývatnssvæðinu, þótt þar séu
minni skjálftar. Skjálfta-
munurinn stafar e.t.v. af mis-
munandi bergi, það eru mýkri
jarðlög suður frá og þvi átökin
e.t.v. ekki eins mikil þar.
Stærri skjálftar gætu orðið,
en meðan þeir eru undir fimm
. stigum valda þeir ekki spjöllum
á mannvirkjum nema þá á mjög
þröngu svæði, við sprungur eða
nálægt upptökum skjálftanna.
Um framhaldið er erfitt að
spá, gosið i Leirhnúk virðist
dottið niður. Ef litið er til fyrri
gosa.þá erannaðhvortaðþetta
verður ekkert meira, eða þá hitt
að gosið sé alls ekki byrjað.
Ég held nú að menn verði að
búa sig undir seinni mögu-
leikann, og að það geti liðið
vikur og mánuðir þar til það
verður,” sagði Sveinbjörn
Björnsson.
Hjá veðurstofunni fengust
þær upplýsingar að stærsti
kippurinn i morgun hefði mælst
4,2 stig en tveir aðrir tæplega
fjögur stig.
-EB.
Talstöðin nær
ekki til Húsavikur
Kelduhverfið virðist nú vera
aðal-hættusvæðið norðanlands
vegna hinna miklu og tiðu
jarðskjálfta.
Miðstöð almannavarna i
Kelduhverfi er i simstöðinni i
Lindarbrekku, undir stjórn
simstöðvarstjórans og hrepp-
stjórans. Sýslumaðurinn á
Húsavik hefur hins vegar yfir-
stjórn almannavarna i Þing-
eyjarsýslu með höndum.
Meðan allt er i lagi i Keldu-
hverfi næst samband við alla
gegnum simstöðina. En við
miklar náttúruhamfarir 'má
gera ráð fyrir að simakerfið fari
úr lagi. Talstöövar eru hins
vegar ekki komnar á bæina i
Kelduhverfi. Talstöð kom á
simstöðina i Lindarbrekku i
gærdag. En sú stöð nær ekki til
Húsavikur, þangað sem stjórna
á aðgerðum. Fjórum mönnum
tókst ekki að koma á talsam-
bandi i gær. Tilraunum verður
haldið áfram i dag.
— ÓH.
Vörubilafylkingin stöðvar finnu vinnu i sandgryfjunni. (Mynd GS)
Þrjátiu og einum
vörubil var beitt til að
v
stöðva tvo i Vest-
mannaeyjum i fyrra-
dag. Það var
vörubilstjórafélgið
Ekill sem þar var að
taka til bæna tvo félaga
sina, sem þeir telja
vera að brjóta félags-
lög og i sumum tilfell-
um með dyggri aðstoð
Viðlagasjóðs.
— Við höfum þriggja manna
nefnd, sem hefur það hlutverk
að deila verkefnum jafnt niður á
félagsmenn, sagði Magnús
Guðjónsson, formaður Ekils,
við Visi i morgun. — Félagið
hefur einkarétt á seldum akstri
á svæðinu, og i lögum þess segir
að menn verði að taka sin verk-
efni i gegnum það.
— Þessir tveir félagsmenn hafa
hins vegar fengið sér gröfur til
ámoksturs og boðið i verkefni
upp á eigin spýtur. Þeir hafa
jafnvel farið niður fyrir félags-
taxta. Við höfum margsinnis
lagt að þeim að hætta að brjóta
þannig félagslög, en þeir hafa
ekki látið segjast.
— Þeir hafa tekið að sér ýmis
verkefni, þar á meðal fyrir
Viðlagasjóð. Við höfum mót-
mælt við stjórn sjóðsins og jafn-
vel átt með henni fund, en hún
hefur hundsað tilmæli okkar um
að hætta. Ef hún ekki breytir af-
stöðu sinni munum við fara i
fjölmiðla með það og ýmislegt
annað sjóðnum viðkomandi.
— Nú, þegar ljóst var að þessir
tveir félagsmenn ætluðu ekki að
hætta, tókum við okkur saman
og ókum allir upp i sandgryfju
til þeirra Þar stöðvuðum við
verkið með bllum okkar. Það
voru alger samtök um þetta.
— Við höfum ekkert á móti þvi
að þeir geti nýtt þessar gröfur
sinar og höfum sagt vinnuveit-
endum að okkur sé sama þótt
þær séu notaðar til að moka á
bila félagsmanna. Hins vegar
liðum við ekki undirboð og
starfsemi eins og þessir menn
hafa stundað. -ÓT.