Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1926, Blaðsíða 7
14. mars ’26,
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS.
7
Bifreiðasýmug.
Hinn 21. febrúar var opnuð í Kaupmannahöfn einhver hin
stærsta bifreiða- og' biflijóla sýning, sem haldin hefir verið í Norð-
uráííu Er hjer mynd af sýningarskálanum, bæði úti og inni. Skáli
þessi stendur í Rosenörns Allé og getur tekið á móti þúsundum
sýningargesta í senn. Til þess er ætlast, þegar fram í síekir,
umhverfis skála þenna verði reistir minni sýningarskálar, og verð-
ur þessi skáli þá einskonar almenningur, því innangengt á að verða
úr honum í þá:
Silkolin,
Munið eftir að biðja
kaupmann yðar um hina
alþektu „Silkolin“ ofn-
sveru. Engin ofnsverta
jafnast á við hana að gæð-
um!
Anör. J. Bertelsen.
Sími 834. Austurstræti 17
sagt að stórtap sje að missa hest-
inn — sumir segja 30 þús. peseta.
Með þessu er hið svo nefnda
portúgalska nauta-at á enda. Það
er fátítt hjer í Barcelona. Jeg
hefi því verið heppinn að fá að
sjá það. Og nú byrjar spanska
nauta-atið.
Þar er Rejoneadorinn etóki með,
en í hans stað eru komnir 2 Pica-
dorar. Þeir minna á Sancho Pan-
za. Hestarnir eru húðarbykkjur,
og er bundið fyrir annað augað
á þeim. Hnakkurinn er þannig í
laginu, að afturbríkin nær upp
undir herðablöð á manni. ístöðin
eru líkust járnkössum. Hver Pica-
dor hefir 4—5 metra langt spjót
i hendi.
Svo eru Bandilleroarnir. Eru
þeir vopnaðir stuttum lensum, sem
þeir eiga að festa í nautinu. Einn
af Torrerounum hefir sverð í
hendi. Hann er nefndur Matador.
Hinir eru vopnlausir. Þeir eiga
að erta nautið og draga athygli
þess frá Matadornum.
Nautið kemur æðandi fram á
völlinn og flögra hin mislitu bönd
örvanna um háls þess. Torreroarn-
ir taka að erta það, en tilætlunin
er þó sú, að fá það til að ráðast á
Picadorana. — Picadorarnir eru
sjaldnast einfærir um að ríða
fram á völlinni. Verða þá nauta-
raenn að keyra hestana undir
þeim með höggum og barsmíð. —
Venjulegast staðnæmast svo hest-
arnir innan við girðinguna, og
þar ræðst nautið að þeim, rekur
hornin í kvið þeirra og lyftir þeim
frá jörðu, svo að framfæturnir ná
aðeins niðri. Picadorinn er í sjálf-
heldu upp við girðinguna; jeg sá
að það varð að bera einn þeirra
burtu. En takist þeim að sleppa
með heila limu, verða þeir að
stíga á bak aftur.
Viðureigninni er e-kki lokið fyr
en innýflin lafa út úr hestinum.
Er hann þá sendur iít, eða fram
að hliði, innýflunum troðið inn
í kviðinn aftur og sárin rimpuð
saman. Og svo er hann sendur
fram á nýjan leik, og sleppur
ekki fvr en hann fellur. Jeg sá
þrisvar sinnum saumuð saman
kviðsár á einum hesti. Og jeg sá
annan hest, sein líkt hafði farið
um, standa lireyfingarlausan
nokkra stund fram við girðinguna
og hníga svo niður steindauðan.
pað get.ur vel verið að þjáningar
hestanna sjeu ekki eins miklar og
þjáningar nautanna. En það er
viðbjóðslegt að horfa upp á hest-
ana, og yfirleitt er leikurinn gjör-
sneiddur öllu sporti. Hvert naut
er látið kviðrífa tvo hesta. Það
er alt og sumt.
Þá er meira gaman að horfa á
Bandilleroana, því að þeirra leik-
ur er mjög hættulegur og úí-
heimtir mikla fimi. Þeir hafa sitt
gaflok í hvorri hönd og ganga
framan að nautinu. Svo reka þeir
bæði gaflokin í herðakampinn á
bola, og þeim má ekki mistakast
eitt augnablik. Boli verður auð-
vitað enn verri í skapi en áður,
en verði hann eigi nógu vondur,
þá em festar púðurkerlihgar á
skiift gaflokanna, og tryllist boli
alveg þegar þær springa. Blóðið
streymir niður bógana og storkn-
ar í hitanum, svo að gljáir á.
Þegai' mesti gállinn er af bola,
ræðst Matadorinn á móti honum.
Hefir hann rauða dulu á korða
sínum og veifar henni að bola.
Era>gir Torreroar leggja nautið
að velli með einu lagi, en eitt
nautið fjekk sjö liig, áður en það
fjell.
Leikurinn fer nðallega fram for
sælumegin, þar sem heldra fólkið
situr. Og þar láta nautin lífið. ef
alt fer að óskum.
Þegar naut er fallið, eru tveir
hestar látnir draga það út af vell-
inum. Eru hestarnir skreyttir á
margan hátt. Tlljóðfæraflokkurinn
tekur að leika, og þegar hestarnir
nálgast hliðið, eru þeir reknir á
stökk. Hafi nautið varist vel,
hrópa áhorfendur húrra fyrir því.
Hafi Matador ekki tekist að
leggja naut að velli, kemur það
oft fyrir, að því er gefið líf og
fóstur.