Lesbók Morgunblaðsins - 14.08.1927, Síða 2
LÉSfcÓK MOÉGtTtfkLABSfNS
250
20 ára sunðkennaraafmæli
1 þessum mán. cru liðin 20 sumur
síðan ungfrú Ingibjörg Brands
byrjaði að kenna konum sund hjer
og eru það Inerkileg tímamót í
sögu íslenskra íþrótta.
Ingibjörg Brands.
Fyrir 20 árum var hugsunarhátt-
ur almennings allur annar en nú
er. Þá var íþróttum lít.ið' sint og
sund kunni aðeins einstaka maður,
og fæstum datt í hug að láta
krakka sína læra sund, síst stúlku-
börn. Eftir hugsunarhættinum þá
gátu krakkarnir lært eitt iivað
annað þarfara en að vera að busla
í vatni og læra að íleyta sjer.
Hjer v^' þá líka tæplega hægt
að læra sund, bæði vegna þess að
kennara vantaði víðast livar og
eins sundlaugar. Það sýndi því
dirfsku og áræði, meira en í meðal-
lagi, hjá ungfrú Ingibjörgu Brands,
er iiún rjeðst til þess að fara utau
og læra sund, með það fyrir aug-
um, að kenna það aftur hjer á
landi. Hún sigldi til Danmerkur
og stundaði sundnám á „Statens
Kursus“ í tvö ár. Var kennari
héunar frú Raben, sem þá var ein-
hver duglegasta sundkona í Dan-
mörku.
Árið 1903 kom ungfrú Ingibjörg
hingað til Rvíkur, að afloknu leik-
fimi og sundnámi. Ætlaði hún þá
að byrja sundkenslu fyrir ungar
stúlkur, en það var hægra sagt en
gert. Sundlaugarnar voru þá bara
forarpollur — gróf, sem vatni var
véitt í úr þvottalaugunum eftir
opnum læk, og var vatnið mis-
jafnlega hreint og þrifalegt eftir
því hve rnargar kerlingar eða
Fransarar voru að þvo í laugunum.
Páll Erlingsson hafði þá verið
sundkennari hjer um 15 ára skeið
og fjekk Ingibjörg hann og fleiri
góða menn; í lið með sjer um það
að fá hæjarstjórn Reykjavíkur til
þess að gera nýja sundlaug fyrir
bæjarbúa. Þetta var þó ekkert
áhlaupaverk, en samt tókst það
eftir 5 ár. Þá var Knud Zimsen,
núverandi borgarstjóri, nýlega
kominn hingað og hafði tekið aó
sjer, fyrir bæjarins hönd að gera
mannvirkin í þvottalaugunum, og
tókst hann á hendur að sjá um
byggingu sundlaugarinnar og mun
hafa verið mikill hvatamaður þess,
að húu væri ger. Var það árið 1908
að sundlaugin var talin fullger,
steypt og asfalteruð, með girðingu
umhverfis og klefum fyrir sund-
nemendur, og jafnvel stökkpalli.
Var þá vatnið leitt í trjepípu ofa'n
frá þvottalaugunum niður í sund-
laug og liafður útbúnaður til að
sía það, svo að menn þyrfti ekki
að baða sig í þvottaskólpi. Síðar,
þegar vatnsveitan kom, var lögð
vatnsæð til sundlauganna frá
Gvendarbrunnum, teknar upp trje-
pípurnar, sem heita vatninu var
áður veitt um niður í sundlaug
og settar járnpípur í staðinn. —
Þótti þetta mikil framför frá því
sem áður var, og mátti nú tempra
hitann í sundlauginni eftir vild.
Hinn 14. maí 1908 lióf Ingi-
björg Brands sundkenslu í hinm
nýju sundlaug og liefir síðan kent
árlega í þrjá máuuði á hverju
sumri.
Þátttakan var ekki mikil fyrst.
Nemendur voru aðeins 30 fyrsla
sumarið. Meðal þeirra var frú
Guðrún Indriðadóttir og b 'fir hún
iðkað sund í lauginni öll þessi ár
og nú síðustu árin komið þangað
með börn sín með sjer td. j)ess að
þau lærðu sund. Ýmsar fleiri kon-
ur, sem byrjuðu að læra sund hjá
ungfrú Ingibjörgu, hafa líka kom-
ið nú seinustd sumrin með börn
sín jmngað inneftir til að kenna
þeim sund og gefa þeim gott for-
dæmi með ])ví að synda sjálfar með
þeim. Þetta liefir ýtt mikið undir
áhuga á sundi liin seinni árin, og
eiga jjær konur, sem sýnt hafa
jjennan dugnað, miklar þakkir
skilið. Eiga þær sinn þátt í því
hvað sundíj>róttinni, íþrótt íþrótt-
anna, liefir farið mikið fram hjer
á landi að undanförnu.
Eins og áður eú sagt, voru nem-
endur Ingibjargar um 30 fyrsta
árið. Voru ]>eir frá 10—20 ára að
aldri. I ár hafa nemendur hennar
verið um 160, frá 5—50 ára aldurs.
Þessar tölur tala um það, live mjög
sundíþróttinni og áhuga fyrir
henni hefir fleygt fram meðal
kven])jóðarinnar síðan Ingibjörg
hóf kenslu hjer. Til frekari skýr-
ingar um afrek hennar í þágu
þessarar góðu og hollu íþróttar,
má geta þess, að á þessum tuttugu
árum, sem hún hefir haft sund-
kenslu á hendi, hefir hún kent 11
—1200 stúlkum að synda.
Það er hrein ánægja að því að
Nokkrir nemendur Ingibjargar í sundlauginni.