Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1927, Page 6
374
LESBÓK MOBGUNBLAÐSINS
í lagi sýninguna á Alþingi hinu
forna og meðferð hrennumálanna.
Því sú sýiiing ein, ef vel og drengi
lega er um búið og alt til vandað,
gmti orðið til þess, að umskapa
þjóðlíf okkar Islendinga á hinum
næstrt áratugum. Þar koma fram
fiest stórmenni íslands á elleftu
öldinni í allri sinni glæsimensku
andlegs og líkamlegs atgervis, í
málum þeim, er mest hafa verið
talin á Alþingi íslendinga. Illa
mætti þar á lialda, ef áhrifin ekki
yrðu auðsjeð straks í hjörtum og
aðgjörðum landsmanna.
Einn forstjóri allra framkvæmda.
Að endingu vil jeg taka það
fram, að hversu vel sem stjórn og
nefndir og fjelög og rnenn starfa
að áætlunum og ákvörðunum fyr-
ir þjóðhátíðina, þá verður þó að
fela einum færum manni fram-
kvæmdavaldið í hendur, ef hún
ekki á að fara sem hið forna lýð-
veldi. Sá maður má ekki fást við
neitt annað þar til hátíðin er um
garð gengin, en starfa að fram-
kvæmdum á því, sem ákveðið verð
ur að gert skuli. Draga saman
störf hinna mismunandi nefnda
og fjelaga og samsteypa í eina
lieild til framkvæmda. Sjá um að
samtvinna hina ýmsu þræði í heild
arframkvæmdinni. Vekja áhuga
fyrir hátíðinni. Glæða starfið hjá
öllum aðilum. Vinna með ráðum
og dáð að því, að hvar sem hafist
sje handa sje leikur á borði. •—
Sameina að síðustu alla kraftana
og sjá um, að það sem ákveðið er
að gert skuli., verði framkvæmt
með svo raðskipuðu fyrirkomulagi,
að hvergi verði snurða á þræðin-
um, nje hik á hátíðinni. Þetta er
ærið starf einum manni þó dug-
andi væri. Er al-nauðsynlegt að
svo sje farið framkvæmdum, ef
nokkurt skipulag skal verða á
þessari þjóðhátíð, og við ekki eig-
um að bera skarðan hlut frá borði.
Ef alt á að lenda á nefndum, en
enginn garpur sem framkvæmda-
valdið hefir, þá má okkur eltki
undra þótt alþjóð leggi lítinn trún
að á giftusamlegan árangur þjóð-
hátíðarinnar.
Reykjayík 22. nóv. 1927.
Skýjaborg.
Hátt upp’ í skýjunum háreist er borg,
hrein eru þar torg.
Ungum var rnjer sagt, að þar engin þektist sorg,
að altaf væri glatt þar á hjalla.
Að aldrei yrðu kvöldin þar ömurleg og löng,
að óma heyrðu söng,
gleðidrulcnir þegnar urn dýrðleg hallargöng,
og dagarnir kveddu með brosi.
Síðan hef jeg þangað í dýrðina þráð,
og þessa jörðu smáð.
Mjer hefir hún fundist öllum hörmum háð;
hjvipuð í móðu af tárum.
En svo komst jeg að raun um, að suma þjáir hrygð
í sólarríkri bygð,
að gæfan verður aldrei á einum stað oss trygð,
að ormurinn skríður í leyni.
Sigurður Helgason.
--------------------
Frá Grænlandi.
Vegna þess hvað berklaveiki er að magnast í norðanverðu Græn-
landi, ætlar stjórnin innan skamms að láta reisa nýtt heilsuhæli hjá
Umanak. Verður það alveg eins og heilsuhælið, sem reist var fyrir
nokkru hjá Sykurtopp, og eingöngu fyrir börn. 'Á efri myndinni hjer
að ofan sjest heilsuhælið hjá Sykurtopp, en á neðri myndinni nokkrir
af sjúklingun nn sem þar eru. — Hvort heilsuhæli getur tekið á móti
20 sjúklingmp,