Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1928, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSIKS
7
með þjóðinni síðán. Risavaxnar
framfarir hafa komist á á ýmsum
sviðum. Flokkadrættir hafa þó
verið miklir í stjórnmálunum. Og
nú um skeið liafa sósíaldemokrat-
ar setið við völd, uns þeir komust
í minnihl. í síðastl. inánuði og
bændaflokkurinn tók við.
Eins og nærri má geta, gat siíkt
eltki átt sjer stað, nema greini-
lcgur aðskilnaður væri milli sósí-
aldemokrata og kommúnista. Þjóð
in liafði svo hörmulega reynsiu af
valdi og vilja kommúnista í bylt-
ingunni 1917, að sá flokkur manna
getur þar vitanl. enga tiltrú haft.
Sunila,
hinn nýi forsætisráðherra Finna.
í augum Finna eru kommúnist-
ar bandamenn erkifjandans forna,
Rússa. Finnar vita sem er, að frá
Rússlandi er dýrkeyptu sjálfstæði
þeirra hætta búin.
Þó þjóðin sje tvískift, og djúp
mikið staðfest milli finskumælenda
og Svía á landinu, er þjóðin ein-
liuga um það, að efla og styrkja
samband sitt við Norðurlönd.
Eitt sinn vár þó hætt komið, að
vinátta Finna og annara Norður-
landaþjóða færi út um þúfur. Það
var er Finnar heimtuðu yfirráðin
yfir Álandseyjum.
Eyjarskeggjar eru sænskir að
ætt. Þeir vildu samband við Sví-
þjóð. En Finnar sátu við sinn
lteip, og heimtuðu yfirráðin yfir
eyjunum. Eyjarskeggjar biðu
lægra hlut. Sjálfsákvörðunarrjett-
urinn var þar sem oftar fyrir borð
borinn.
En Svíar sátu hjá með hógværð
og kurteisi, þó hinir vígreifu
Finnar brýndu sverð sín og raust.
Og sundurþykkja þessi varð eigi
til þess að spilla samlyndi til
langframa milli Finna og Norður-
landaþjóða.
Gefðu mjer eld.
— Delirium amoris. —
Gefðu mjer eld til að yrkja’ um í kveld
meðan útsærinn fellur og rís,
og stormurinn mjöllinni feykir um fjöll,
og fossarnir breytast í ís. — —
Þó að vetrarins hönd leggi heiminn í bönd,
þegar helkuldinn lýstur ’ans spor,
yfir söngvarans þrá, ef þú situr mjer hjá,
verður sumar og gróandi vor.
Er fyrst þú mig sást, mjer þú sagðir, að ást
væri sýn — — að hún væri’ ekki til,
að ’ún væri’ aðeins þrá út í vorloftin blá,
vernduð af draumanna yl.
Jeg man, að jeg hlð, og í harðbakka sló,
og þú heimtaðir sannanafjöld.
Þú hljóðnaðir fyrst, er jeg hafði þig kyst,
en — jeg hló ekki meira það kvöld.
Jeg dirfskunnar geld um hvert dimmviðriskveld,
þegar dagurinn hnígur í mar,
því að sigur er dýr, þegar friðurinn flýr,
og jeg finn, að jeg tapaði þar.
Og mitt eldheita blóð er sem gneistar úr glóð —
eða gjósandi eldfjallaland.
En um hugarins borg renna hrannir af sorg
eins og holskeflur brotni við sand.
Því að auga þíns bál er sem blikandi stál,
og það brennir mig lifandi senn, —
og ástin til þín er hið eitraða vín,
sem æsir og deyfir í senn.
Þó að vetrarins hönd leggi heiminn í bönd
skal jeg hylla þig, — kvæðisins dís.
Gefðu mjer eld til að yrkja’ um í kveld,
meðan útsærinn fellur og rís.
Böðvar Guðjónsson frá Hnífsdal.
1930.
Af því að Lesbók Morgunblaðs-
ins frá 13. f. mánaðar liggur fyrir
framan mig, er það ennþá ekki
^að bera í bakkafullan lækinn,
þótt lagt sje orð í belg, um hina
fyrirhuguðu minningarhátíð 1930.
Þótt nú að Lesbókin geri ráð fyr-
ir að eitt fyrsta mál á dagskrá
þjóðarinnar sje hátíðarundirbún-
ingurinn, þá eru þar víst nægar
undantekningar, því jeg minnist
þess ekki að lijer um Borgarfjörð
hafi á það verið minst, frá því á
sýslufundi í maí og miklu fremur
minst á annað og verið tíðrætt
um, svo sem: Hina nýju stjórn-
armyndun og sparnaðarafrek henn
ar!! En svo jeg snúi mjer að há-
tltfarnefndifipi, þá ijji segja að
undirbúningstillögur hennar gæti
alls hófs, og að því að mjer skilst
liggi sem uæst hugsanagangi al-
þjóðar. Þó er það sjerstaklega eitt
sem jeg vildi leyfa mjer að gera
athugasemd við
Erlendir gestir og fulltrúar.
Þar stendur: „Telur og nefnd-
iu rjett, að bjóða á hátíðina inn-
lcndum fulltrúum er mæti fyrir
hjeruð landsins.“
Að dómi ýmsra manna síðan til-
lögurnar hafa birst er þetta talin
mislukkuð stefna; bæði af því, að
þetta er ekki landsmálaþjóðfund-
ur og svo í annan stað geti orðið
úr talsvert vöndu að ráða, að eigi
kæmi hneyksli; því mannjöfnuður,
staða, skoðanamunur o. fl., eru
alt steinar, sem hægt er að steyta
fót sinn við; eins og það einnig
g»ti verið orsök til að draga ttr