Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1928, Blaðsíða 8
LESBÓK MORötJNBLÁBSÍNS
5tí
Það stendur ekki einveldinu að
baki að tign og virðuleik.
Að konungsstjórn verði sett á
stofn á ný, t. d. með atkvæða-
greiðslu, er alveg óbugsandi. Það
er talað um, að Bayern geti sam-
einast Austurríki og tekið Rup-
preeht til konungs. Katólskt sam-
band gegn No'rður-Þýskalandi,
sem er mótmælendatrúar! Slíkt
leyfa stórveldin ekki. Hið eina
sem kynni að geta bjargað Ho-
henzollunum er nýr ófriðúr. En
hann yrði að koma nú þegar. —
Þess vegna er óviturlegt að leyfa
liinum afsettu þjóðhöfðingjum
dvöl innan Þýskalands. — Þeir
myndu ætíð vera fúsir til að blása
að kolunum ef til ófriðar kæmi.
Og sá ófriður myndi leiða til ægi-
legrar borgarastyrjaldar. 1 Þýska-
landi eru nú yfir 20 milj. lýðveld-
issinnar, sem myndu ekki láta sjer
lynda að stjórnarfyrirkomulaginu
væri breytt í gainla horfið án þess
að vopnin væru látin skera úr.
Þetta vita einveldissinnarnir og
óttast borgarastyrjöldina.
Þess væri að óska, að Hinden-
burg yrði 100 ára og gæti gegnt
ríkisforsetastörfum svo lengi. Það
er litið á hann sem eitt af stór-
mennum sögunnar. Er alveg óhugs
andi, að hann verði feldur við
næstu forsetakosningar. Hann verð
ur forseti til dauðadags. Þegar
hann fellur frá velja menn hvorki
hershöfðingja nje aðalsmann, held
ur einhvern úr millistjett, ef til
vill katólskan mann. Lýðveldinu
er tæpast nokkur hætta búin, því
að maður sá, er valinn verður,
stendur utan við alla flokka.
Þegar Vilhjálmur II. kom til
ríkis 20 ára gamall, var hann sinn-
isveikur og hjegómagjarn ungling-
uv. Þó að hann væri með visna
hönd, þótti honum sjer bera
skylda til að verða hermaður sam-
kvæmt erfðavenju Hohenzollanna.
Þýskaland stóð á hæsta stigi um
1890, hvað snerti stjórnmálaleg
völd og áhrif í verslunareínum
og var slíkt framar öllu fyrir fyr-
ir starfsemi Bismarcks^
Áðstaðan var svo glæsileg, að
ungi keisarinn hikaði ekki við að
láta „gamla leiðsögumanninn* ‘
fara og setjast sjálfur við stýrið,
Treysti hann því, að öllu væri
óhætt og að liann gæti reitt sig á
»
stjórnargáfu sína, og stjórnmála-
vit, sem smjaðurtungurnar við
hirðina sögðu, að hann hefði til að
bera.
Vilhjálmi keisara skjátlaðist á
sama hátt og flestum Þjóðverjum
yfirleitt. Hann lifði í þeirri trú,
að Friðrik mikli væri mestur allra
Hohenzollanna. í raun og veru var
það ekki Friðrik mikli heldur fað-
ir hans, sem lagði grundvöllinn
undir vald Prússlands á 18. öld,
og það sem gott er og heilbrigt
í fari Prússa má rekja til hans
beint og óbeint. Friðrik mikli var
hjegómagjarn, eins og afkomandi
hans Vil'hjálinur II., og vílaði ekki
fyrir sjeT að tefla landi og þjóð
í hættu til þess að skapa falskan
frægðarljóma um -sjálfan sig.
í 30 ár fekk Vilhjálmur II.
þýsku þjóðina til þess að trúa á
mikilleik sinn. En þegar hann
lagði á flótta frá ábyrgð sinni og
skyldum, 'sást loks, hvern mann
hann hafði að geyma, og það eru
engin líkindi til þess, að hann eða
afkomendur hans komist til valda
aftur. Saga Hohenzollanna er á
enda.
Smælki.
Norðmaður og Bandaríkjamaður
liorfðu á ógurlegt eldgos á Hawaji.
— Þetta er ekki til í Banda-
ríkjunum, mælti Norðmaðurinn.
— Nei, en í Ghicago er til
slökkvilið, sem gæti kæft þenn-
an eld á svipstundu!
Bifreiðakappaksíur.
I þessum mánuði fer fram
kappakstur bifreiða í Dayton
Beach í Ameríku. 1 fyrra varð
sigurvegarinn ensk bifreið frá
Sunbeam-verksmiðju. Fór hún
203 enskar mílur á klukkustund
eða um 380 kílómetra. Sam-
svarar það því, að ekið væri
hjeðan til Þingvalla á 8 mínút-
um. En þessi hraði nægir mönn-
um ekki. Nú hefir verið smíðuð
ný bifreið í Englandi, sem á að
geta farið 220 mílur á klukku-
stund. Er í bifreið þeirri Napier-
Lion flugvjelamótor, sem hefir
900 hestöfl. Aftur af bifreið-
inni gengur nokkurskonar stýri,
og er það til þess ætlað, að bif-
reiðin velti ekki um koll, þótt
hún taki krappar beygjur á
fullri ferð. — Bifreiðarstjórinn
heitir Malcolm Campbell.
Dempsey hæ/tur hnefaleik.
1 bardaganum við Tunney
fjekk Dempsey slæmt högg á
annað augað og sá ekkert með
því það sem eftir var bardagans,
því það sökk algerlega. Læknar
hjeldu þó, að þetta mundi
batna aftur, en sú hefir reynsl-
an ekki orðið. Dempsey hefir
altaf verið veikur í auganu síð-
an og nú nýlega hafa læknar
skoðað hann að nýju. Eftir skoð-
unina tilkynti Dempsey Tex
Richard, að hann mundi eigi
geta tekið þátt í hnefaleik fram
ar, því að læknarnir bönnuðu
sjer það vegna þess að meiðslin
á auganu væru miklu alvarlegri
en þeir hefðu ætlað í upphafi.
Skákþrantir,
V.
Eftir Þorstein Finnbjamarson.
Lausn
ó skákþraut nr. IV.
1. Kd6—c7 Kd4—c4
2. Rg3—f5 Kc4—b5
3. Rf5—d6 mát.
■gaawwBBff"
k.t.