Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Blaðsíða 1
Islanö og önnur lönð. Eftir Ragnar E. Ruaran. Fyrir fáum dögum var þess get,- ið í stórblöðum Winnipegborgar, að þar vajri á ferð sænskur flug- maður, sem væri að búa sig undir flug til Norðurálfunnar. Blöðin höfðn tal af hon- um og gat hann þá þess, að ferðinni væri heitið frá Que- becfylkinu i Kanada, um Græn- land og ísland og þaðan til Kaup- mannahafnar. Þau ummæli ljet hann jafnframt fylgja, að nú mætti teljast áreiðanlegt, að innan fárra ára yrði þessi leið svo al- geng, að komnar væru á fastar reglubundnar ferðir. Skömmu áður en þessi Svíi var hjer á ferð, hafði stjórnarnefnd Þjóðræknisfjelagsins boð inni, til j/ess að gefa nokkrum mönnum kost á að ná tali af amerískum verkfra*ðing, Mr. Earl Hanson, sem staddur var í borginni, en um hann var ]>að kunnugt, að hann hafði ritað allmikið um Island í blöð og tímarit álfunnar. Höfðu menn veitt því sjerstaka athygli af hve mikilli þekkingu hann hafði ritað, og næmum skilningi á hátt- um og afstöðu þjóðarinnar. Var því þjóðræknum íslendingum for- vitni á að sjá hann og heyra. — Enda urðu þeir ekki fyrir neinum vonbrigðum. — Verkfræðingurinn flutti eftir kvöldverðinn hið skipu- legasta erindi um horfur íslenskra atvinnuvega, eins og þeir komu honum fvrir sjónir. Var þar margt prýðilega athugað. þótt hjer verði ekki frá skýrt. En fyrir þá sök er frá jæssu sagt, að hann gat þess, að hann hefði verið sendur af stærsta flugfjelagi Bandaríkj- anna til Quebec, til þess að at- huga þar ákveðna staði sem fram tíðar flugstöðvar. Skýrði liann frá j/ví, að nix væri með öllu ákveðið að taka upp fastar flugferðir til Evrópu frá Ameríku og væri eng- inn vafi á því lengur, hver leið yrði valin. Sjerfræðingum bæri saman um, að leiðin um Grænland og Island vrði afdráttarlaxxst sú öruggasta og hentugasta, sem unt væri að fara. Þeim, sem fylgst hafa með al- rnennum umræðum unx væntanleg- ar flugferðir yfir Atlantshafið síð- xxstu árin, keinxir þessi niðurstaða á engan h;lft á óvart. Margir xnunu t d hafa tekið eftir hinum stór- fróðlegu og skemtilegu ritgerðum Vilhjálms Stefánssonar í Iíarpers Magazine síðastliðið ár um land- fræðis hugmvndir að fornu og nýju. Færir hann þ.ar rök fyrir því, að því nær sem dragi heims- skautunum, þess öruggari sjeu allar áætlanir um veðráttufarið, og að flugferðir milli Ameríku og Asíu verði að sjálfsögðu vfir Norðurpólinn •— ekki einungis af því að það sje skemsta leiðin, eins og allir geta sjeð, sem líta á hnatt- mynd af jörðinni, heldur einnig sökum fxess, hve veðráttufarið sje langsamlega öruggara á þeirri leið, heidur en um tempraða beltið, svo sem be'na leið frá Newfoundland til Englands. Enginn geti sagt. fyr- ir um, hvenær fyrir mönnum verða hinir svonefndu loft-pokar á jxeirri leið, en þeir eru flug- mönnum hudtulegri en nokkuð ann að. Kveður oft við jxann tón eftir ferð Byrds og fjelaga hans, að það sje óðs manns æði að hugsa t,ii þess að nota leiðina yfir mitt Norður-Atlantshaf sem fasta far- jiegaleið fvrir flugvjelar. Fyrir þá sök hefir mönnum sífeldlega orðið tíðræddara um norðurleiðina yfir Grænland og ísland og má telja áreiðanlegt, að sxx leið verði yfir- leitt notuð af þeim, sem bxxa fyrir norðan lína, er lægi frá austri til vesturs vfir Chicago. En ýmsir telja líklegt og örugt, að önnur, tiltölulega örugg leið, muni verða si m xuest hvarfbaug. Fari svo. mun allmikið af farjxegaflutningi Norð- xxr-Ameríku sveigjast jxangað. Arerkfræðingurinn, sem getið hefir verið um, var svo sannfærður um, að fastar vikulegar ferðir um ísland stæðu fyrir dvrum, að hann komst svo að orði, að ef þær ekki hæfust á þessu ári, þá dræg- ist það ekki lengur en til næsta árs. Sagðist hann jafnan Iíta á þetta þeim augum, að endastöðvar flugleiðarinnar væri sjerstakur bær í Anstur-Kanada (Goehrane minnir mig að hann nefndi hann) cg ísland. Frá þessum bæ teygð- ust álmurnar vestur um Kanada, suður vfir Detroit t.il Ohicago. og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.