Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Page 4
180 vakað fyrir þeim, sem að ein- hverju leyti hafa staðið fyrir málum, að lokið yrði upp augum sem flestra áhrifamanna fyrir því, sein eftirtektarvert væri og sæmd- arauki í sögu og fari íslenskrar þjóðar. Þeim þótti þess vegna mjög vænt um, er Háskólinn og margir mentamenn heima brugð- ust svo drengilega við tilmæluin um að rita flokk af ritgerðum, er íjelagsstjórnin kæmi svo víðsvegar í tíinarit álfunnar og gæfi síðan út í bók. Innan þriggja daga, frá því er þetta er ritað, er gert ráð fyrir að einn eða tveir menn fari hjeðan til þingstaðar Bandaríkj- anna, Washington, til þess að að- stoða flutningsmenn frumvarps um viðurkenningu Bandaríkjanna og vinarkveðju til íslands. En mestar vonir gera þeir sjer þó um árangur af sjerstökum afskiftum hjer- lendra manna af Háskóla Islands, sem komið hafa til umræðu, en eigi verður hjer skýrt frá að sinni. Jeg helcl .ekki að nokkurum mönnum sje það eins ljóst, eins og hinum bestu Islendingum í Atneríku, hvert lífsspursmál ís- landi er það, að eiga sem víðast vini og á rjettum stöðum í þessari álfu. Þetta er vitaskuld heldur ekki nema eðlilegt Þeir hafa að sjálfsögðu meira veður af því en íslendingar annarstaðar, hve óð- fluga miðstöð áhrifavaldsins í heimsmáhmum er að flytjast yfir hingað. Þeir hafa sannfæringu fvr- ir því, að ef takist að vekja samúð fyrir íslandi hjá rjettum mönnum hjer, þá muni það verðá meiri vernd og st.yrkur heldur en her og floti allstórrar annarar þjóð- ar gæti veitt. Þess vegná hefir einnig sú tilfinning orðið svo sterk í brjóstum ýmsra þeirra, að lík- ist ástríðu heitrar trúar, að þeir liafi brugðist einni alvarlegustu skyldu lífs síns, ef áhrif þeirra ljetti ekki þó eigi væri meira en eitt fótmálið á framtíðarferli ís- lensku þjóðarinnar. Þeir vita, að enginn getur sagt fyrir um, að hvaða gagni það kunni að koma Tslandi, að eiga marga vini og á jafu mikilsverðum stað, eins og þar sem t. d. Dr. Samuel Eliot er. Hann er í ráðgjafanefnd um ut- LESBÖK MORÖUNBLAÐSINS anríkismál (Advisory Committee on Eoreign Relations) í Washing- ton, og ber hinn hlýjasta hug tii íslands fyrir þá sök, að nokkurir menn íslenskir hafa kynst honum allnáið og vakið þann hug. En því miður verður við það að kannast, að ekki liefir tekist jafn- vei um ait, sem íslendingar hafa gert og miða heíir átt að því að auka kynni og virðingu hjerlendra manna fyrir ísiandi. Sumir, er hafa sagt frá iandinu eða ritað um það, hafa fallið í þá freistni að leitast við að gera það svo æfin- týralegt, sem þeim var unt, til þess að ná með því írekar athygl- inni. En hamingjan veit, að það er ekki veigerningur við þjóðina að tala um, að fólkið taki sjer steypibað undir hverunum, sitji annars í vorri gömlu rómantísku baðstofu, þar sem sje innangengt til blessaðra kúnna, og lifi í á- standi sgkleysisins við ljóðaiestur. Viljiun hefir áreiðanlega verið mik iii hjá sumum tii þess að veita fræðslu um ísland, en mátturinn einhverra hluta vegna ekki staðið í rjettu hlutfaiii við viljann. En sannleikurinn er sá, að hafi siíkt tal, sem þetta, áhrif, þá liefir það hættuleg áhrif. Það gerir ekk- ert til þó menn sjeu fræddir um það í sjerstöku hefti af „Scandi- navian American Review1 ‘, sem helgað er Isiandi, að lugólfur Arnarson hafi kastað út akuryrkjuverkfærum sínum er hann sá land, og numið þar land, er þessir plógar eða skóflur ráku að strönd, en það skiftir máli, er nútíma íslenskum lconum er lýst svo, að þær líkjast ekki nokkurum verum, sem hafa lifað á þessari jörð frá því að sög- ur hófust. Og til allrar hamíngju er sögu þjóðar vorrar svo háttað, að engin ástæða er til þess að falsa hana til þess að hún verði góðum mönnum hugþekk. Winnipeg 12. maí 1929. Skakt samband. Einkennilegt skaðabótamál. Maður að nafni Johnson, sem átti lieima í Brooklyn, lá íyrir nokkru í rúmi sínu og svaf svefni liinna rjettlátu. Um miðja nótt vaknaði haim við það, að síminn hringdi ákaílega. Hann fer á fæt- ur og svarar í símann. Skakt samband! Auðvitað varð Mr. John- son fokreiður og skammaði mið- stöð blóðugum skömmum fyrir það að vekja sig um miðja nótt. Svo skreið liann aftur upp í rúm sitt og ætlaði að sofna, en rjett í því að hann hagræðir sjer sem best, hringir síminn aftur. Þá varð Johnson reiður að marki. Hann hentist upp úr rúminu og fram á gólf. Þar flæktist gólfdúkur fyrir honum, svo að hann datt og stóð ekki á fætur aftur. Kona hans og dóttir ruku þá á fætur og fóru að stumra yfir honum, en hann var dauður — hafði feng- ið hjartaslag. Síminn hringdi í sífellu. Dótt- irin svaraði þá. Aftur var skakt samband I Pyrir þetta liafa þær mægðurnar stefnt símafjelaginu og halda því fram að það hafi valdið dauða Johnsons. Þær segja, að ef miðstöð hefði eigi gefið skakt samband mundi Johnson ekki hafa komist í hugaræsingu, og þá mundi hann ekki heldur hafa dottið og fengið slag — og það mundi ekki heldur hafa komið fyrir ef miðstöð hefði ekki gefið skakt samband öðru sinni. Heimta þær gríðarháar skaðabætur, og þykir mál þetta merkilegt, jafnvel í Ameríku, þar sem menn eru þó vanir sínu af hverju. Hvernig færi fyrir bæjarsíman- um hjerna ef hann væri látinn sæta ábyrgð fyrir í hvert skifti sem miðstöð gefur skakt samband? Presturinn: Getið þjer ekki fengið manninn yðar til að hætta að blóta? Konan: .Ei nei, það er nú ein- asta ánægjan hans, síðan hann hætti að drekka.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.