Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Side 6
182 LESBÓK MORGUNBLABttlN* þá í þögli heimskautsnæturinnar. heimi þessum og hafa ekki annað En norðaustast á henni eru tv;er samband við umheiminn, en hinar loftskeytastengur. Þar hafast við ósýnilegu loftskeytaöldur. einhverjir afskektustu menn í Bunyan og ,För pílagrímsins'. Eftir Richard Beck. „Jeg gekk aldrei á skóla til Aristótelesar eða Platons, en var uppalinn í föðurhúsum við hinn þrengsta kost, meðal fátækra al- þýðumanna1 ‘. Þessi er vitnisburður Johns Bunyans um æsku sína og ment- un. En árið sem leið — á þrjú hundruð ára afmæli hans — hylti hinn mentaði heimur hann sem afburða ritsnilling og andans niann. Fögur blóm vaxa stundum á hinum ólíklegustu stöðum; ekki ér' ósvipað um hverskonar snilli- gáfu, hún kemur stundum fram þár sem hennar var síst von; og fúllnaðárskýring hennar er enn ófundiii; hún er nærri þ'ví eins ínikill leyndardómur og uppruni lífsins sjálfs. Hver fær spáð hve- nær, hvaðan eða hvar annar Shakespeare, eða annar Matthías, kunni fram að koma? Árið sem leið var eigi aðems þriggja alda afmæli Bunyans; þá voru einnig tvö hundruð og fimm- tfú ár frá því liðin er út kom fyrsta prentun hins mikla meist- araverks hans „F'arar Pílagríms- ins“. Megi dæina gildi bóliar eft- ir útbreiðslu hennar og áhrifum, þá er þetta rit Bunyans eitt hið merkasta, er nokkru sinni hefir skráð verið. — Útgáfur þess eru nærri óteljandi; það hefir farið 1011^.]^ lönd jarðar, að kalla má. Úm það kemst einn útgefandi svo m orði: „Þ@ð hefir oftar verið þrentað, Jesið og þýtt, en nokkur önnur bók, að undantekinni Heil- agri Hitning“. Tvisvar hefir það verið gefið út í íslenskri þýðingu. Um John Bunyan hefi jeg rit- að nokkru nánar í „Almanaki ÓI- afs S. Thorgeirssonar“ fyrir nú- líðandi ár og vísast þangað. Þá er og ágrip af æfisögu Bunyans framan við þýðingu Eiríks meist- aia Magnússonar á „För Píla- grímsins“, en sú bók mun nu upp- seld. Kom hún út 1876; hin þýð- ingin4 eftir *síra .0. V. Gíslason, kom út á árunum 1864 og 1865. Fátt er íróðlegra eða hrífur hugaun meir, en að grenslast eft- ir því, hversu eitthvert snildar- verk, í listum eða bókmentuin, er li) orðið. Og f'rásögnin um það, hvernig Bunyan, óla.rður og menn ingarsnauður, skráði eina af fremstu bókum allra alda, innan fangelsisveggja, — sú frásögn ber fremur blæ æfintýris en raunveru- leika. í innganginum að „För Píla- grímsins“ fræðir höfundurinn oss um það, með hverjum hætti hann reit betta snildarverk sitt. Það var eigi árangurinn af gaumgæfilegri ílmgun eða löngum undirbúningi; hugmyndinni að því skaut skyndi- lega upp í sálu sháldsins. Hann kveðst Jiafa verið að rita aðra bók, en er þeirri var nærri JoJeið, þá liafi hann, áður en hann vissi, verið byrjaður á „För Pílagríms- ins“. „Sein neistaflug frá báli“ fjylvtust hugsanirnar og líkingarn- ar að honum. Ákvað hann að rita þær niður, aðallega til þess að þær tefðu ekki fyrir honum við samning bókar þeirrar, er hann var að vinna að, og sjálfum hon- um til hugarhægðar. Slcráði hann ritið alls eJíki til þess að þólínast öðrum; það fullyrðir hann. Á þennan liátt, undirbúnings- Jaust, af tómri tilviljun að því er best verður sjeð, varð „För l^ílagrímsins", til. Þó má eigi gJeyina því, að óbeinlinis að minsta liosti. var bókin árangurinn af lífsreynslu höfundarins; mun síðar að því vikið. Fram til þessa tíma Jiafði Búnyan verið íhaldssamur siðgæðispostuli. Nú gaf hann ímyndunaraíli sínu lausan taum- inn. Draumamaðurinn og skáldið urðu prjedikaranum og kennaran- um sterkari, eins og merkur mað- ur heíir hjer um sagt. Og nóg fanst sumum lireintrúar-vinum skáldsins um hugarflug hans og tilfinningahita; þeim fanst hann láta of mjög að skáldhneigð sin.ni. Þetta eitt er víst, ef segja má um íiokkra bók, að hún sje árangur- inn ai,' „skáldlegum innblæstri“, þá á það við um þetta merkisrit Bunyans. Og aldrei komst hann liærra f ritsnild. Sannarlega er það því bæði ó- venjulegt og aðdáunarvert hversu „För Pílagrímsins“ er til orðin, en eigi er hin geysimikla lýðhylli liennar síður verð aðdáunar. — Hverjar orsakir liggja til þessa? Bókin á erindi til allra. Hún hef- ir fundið greiðan veg að hjörtum manna af því að hún kom frá lijarta Bunyans sjálfs. Hann reit um það eitt, er hann þekti glögt; „hvert spor á göngu Pílagrímsins liafði Bunyan fyrst sjálfur stigið,“ segir Froude í æfisögu skáldsins. Og þrautaganga Kristinns er líka, að einhverju leyti, andleg píla- grímsför mín og þín, ef við erum a annað borð Jiugsandi mannverur. Þá má eigi gleyma raunsæi Buny- ans og snild Jians á skapgerðar- lýsingum. Persónur lians anda, lifa’ og hrærast; þær eru lioldi klæddar og blóði svo sem sjálfir vjer. — Heimskænn frá Holdshyggjuborg er enn vor á meðal; hið sama er að segja um Málgan, ekki er hans ætt útdauð ennþá. Svo er um all- ar liinar persónurnar í „För Píla- grímsins1 ‘; þær lifa ennþá eins og á tíð höfundarins. Ekki verður því heldur neitað, að Bunyan scgir prýðilega frá; að sönnu má finna útúrdúra í I rásögn lians, en liann gleymir aldrei hvert förinni er lieitið, ög m'eð vaxandi hraða nálgast sagaii liámark sitt — örlagastundina í lífi söguhetjunnar. Loksins má miiina á rithátt skáJdsins.Mál lians er blátt áfram, en fagurt og mátt- ugt. Hann hafði marglesið Heií aga Ritning og þar drukkið í sig hina hreinustu allrar hreinnar ensku. Regla Bunvans um orðaval er hin hollasta: „Auðskilin orð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.