Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1929, Page 7
LESBÓK M0RGUNBLAÐ3INS
183
Mannætnr.
Nokkrir af hinum
hitta oft markifS, þe<rar hin há-
fley<ru ogf la’rÖn hverfa aðeins úf
í bláinn.“
Bunvans var ]>ess ve<rna að verð-
ugu minst á þriggja alda afmjeli
hans. Hin göfgandi áhrif hans —
sjer í lagi með .Piir Pílagrímsins“
— fa>r enginn niælt eða vegið. —
Víst. er um það, að hann hefir
snortið sálir miljóna manna. já,
ekki ósjaldan verið þar orkugjafi
og ljóss. . För Pílagrímsins“, sem,
óbeiníínis að minsta kosti, var
árangur hinnar bciskustu lífs-
reynslu, mun lifa; ræturnar að
henni liggja djúpt í mannshjart-
anu.
Stnttn kjólarnir.
Pyrir skömmu kom tvær ungar
stúlkur til kirkju í Feneyjum, en
þær voru reknar út og því borið
við, að þær væri í ósæmilega stutt-
um kjólum. Stúlkumar fóru en
komu aftur að vörmu spori í fylgd
með bræðrum sínum. Kröfðust þeir
þess að fá að vera við guðsþjón-
ustuna. En nú komst alt í upp-
nám. Skiftist söfnuðurinn í tvo
flokka og dró annar taum stúlkn-
anija, en hinn vildi verja þeim
kiíkjuna. Varð út af þessu svo
mikill gauragangur að prestur varð
að'hætta við prjedikunina og sein-
ast varð að sækja lögregluna til
þess að ryðja kirkjuna.
Viðkvæmni.
Prá því er sagt, að nýlega and-
aðist í Kowno í Lithauen efnaður
boígari, sem arfleiddi borgina að
ýmsUm listaverkum, þar á meðal
fallegri standmynd af Apollo. —
Myndin var eins og hin verkin sett
á listasafn borgarinnar. Nokkru
seinna kom nefnd, kosin úr kven-
fjelögum borgarinnar, á fund við
stjórn safnsins og mótmælti því
harðlega, að nakinn karlmaður
skvddi þannig sýndur opinberlega.
Eftir mikil heilabrot komust menn
að þeirri niðurstöðu, að ekki væri
forsvaranlegt annað en að hylja
mestu nekt. mvndarinnar á ein-
hvern, hátt. Og nokkrum dögum
seinna hafði verið sett sundskýla
á Apollo,
Pyrir skömmu var í Kaschau í
Tjekkoslóvaldu hafin málssókn út
a-1 glæpamáli, sem vakið hefir ó-
skifta athygli um allan heim. —
Zigaunáflokkur, 20 manns, hefir
verið ákærður fyrir morð á a. m.
k 6 mönnum. Rannsókn málsins
hefir staðið yfir í 2 ár og hefir
revnst afar erfið, vegna þess, að
sumir hinna ákærðu eru heimsltari
eu skynlausar skepnur. En versta
atriðið í málinu er, að Zigaunamir
liafa jetið flest af fórnardýrum
sinurh. Að nokkru leyti má kenna
þetta hungursneyð, sem um tíma
geysaði um alla Mið-Evrópu, en að
miklu leyti mun þetta að kenna
úrkvnjun.
Hve mörg morðin eru, vita menn
ekki, vegna þess að enn hafa söku-
dólgarnir ekki játað á sig nema 6
morð, sem teljast rnáttu fullsönn-
i.ð á þá. Yfir^öldin álíta, að mála-
reksturinn muni taka þrjár vikur
áð minsta kosti.
Allrar yarúðar er gætt til að
vernda sökudólgana, vegna þess að
skríllinn vill óður drepa þá án
dóms og laga. Það er merkilegt,
að í ákærunum er hvergi nefnt, að
þeir hafi jetið mennina. Það kem-
ur til af því, að stjórnin vill ó-
gjarnan, að slíku sje haldið á loft
um rjettarfarið, og hinu, að hvergi
í lögum er gert ráð fyrir þessum
glæp og því engin ákvæði um
ákærðu Zigaunum.
hann, enda morðin eiu nægar for-
sendur fyrir líflátsdómi.
Síðari fregnir herma, að fyrri
frásagnir um þetta mál sjeu mjög
orðum auknar. Við rannsókn kom
í ljós, að sá, er ákærður var fyrir
morðið, er öll málssóknin spratt
af, lá veikur í sjúkrahúsi allan
októbermánuð 1923, en á þeim
tíma yar morðið framið. Annar
hjelt því fram, fyrir rjettinum
og sannaði, að hann hefði verið
píndur til að játa upp á sig eitt
morðið. Eins og áður er tekið
fram, er fólkið alt einfalt og sumt
heimskt, og hræðsla við rannsókn-
ina, ásamt virðingu fyrir dómur-
unum hefir leitt það til að játa
liitt og þetta, sem enginn fótur
var fyrir.
Það hefir og komið í ljós, að
menn úr flokknum hafa mikið jil
logið þessu hver upp á annan, ,af
hvaða ástæðum sem það er.
Að minsta kosti eru horfurnar
þannig sem stendur, að ákærur
muni falla niður fyrir mikinn
hluta glæpanna.
Myndin hjer sýnir tíu menn úr
hintim alræmda Zigaunaflokki. —
Eins og sjá má á myndinni, berá
þeir nokkur einkenni glæpamanna,
cn andlit þeirra lýsa þó frekar
mikilli úrkynjun. Myndimar eru
teknar úr safni lögreglunnar í
Tjekkóslóvakíu.