Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1930, Page 8
160
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Mynd þessa af Hindenburg á að reisa í bæ
einum í Slesíu nú á næstunni. — Er myndin
3meter á hæð og á að vera á 2 metra há-
um fótstalli.
Brúðkaup Eddu Mussolini. Hjer er mynd
af Eddu Mussolini og Ciano greifa, et- þau
ganga úr kirkju eftir hjónavígsluna. Svart-
liðar heilsa þeim að ítölskum hermannasið.
ýmist notuð sem matborð eða sem
spilaborð og þykja gefast vel.
Pyrir nokkru fæddist í Olmuetz
í Tjekkoslóvakíu barn, sem hafði
fjóra fætur, fjórar hendur, tvö
andlit á einu höfði og tvö hjörtu.
Það lifði aðeins í klukkutíma. Lík-
ami þe'ss er geymdur í læknisfræði-
safninu í Olmuetz.
Stúlka nokkur í Ungverjalandi
var svikin í ástum af manni, er
giftist skömmu seinna. Til að hefna
sín á honum, hengdi stúlkan sig
fyrir framan kirkjudyrnar, og var
hún dáin, þegar gestirnir komu úr
kirkju. Hún hafði skrifað á miða
orsökina að sjálfsmorði sínu.
Aljekkin, skákmeistarinn heims-
frægi, dvaldi nýlega í Noregi, og
tefldi þá fjölskákir við marga af
frægustu taflmönnum Norðmanna.
Þe'ss er til dæmis getið að hann
tefldi einu sinni við 35 Oslotafl-
menn í einu og vann af þeim 24
skákir, gerði jafntefli í 7 en tapaði
aðeins 4.
í Rúmeníu var verið að yfir-
heyra kommúnista einn, sem hafði
gert sig sekan í uppþoti. Tveir
kommúnistar aðrir brutust inn í
rjettarsalinn, köstuðu reykbomb-
um, og tókst þeim að hafa fjelaga
sinn á burt me'ð sjer.
Ungur bílstjóri í Vín var færður
á geðveikrahæli, eftir að lögreglu
maður hafði komið í veg fyrir að
hann fremdi sjálfsmorð. —• Hann
gaf þá skýringu, að sjer hefði ekki
tekist að fá flibbaun til að fara
vel um hálsinn á sjer, og hefði
sjer því fundist lífið einskis virði.
Maður nokkur í Prag var að
berja konu sína, svo að nábúar
hans sáu til. Vakti þetta athæfi
hans svo mikla gremju, að múgur
manns safnaðist að og myndi hafa
drepið manninn án dóms Og laga,
ef lögreglan hefði ekki skorist í
leikinn.
Herferð móti engisprettunum.
Yfir suðurhluta Rúmeníu geysar
nú hið mesta -eúgisprettufár. Engi-
spretturnar eru í stórhópum, svo
þykkum og miklum að þeir eru
sem stórir dökkir skýjaflókar til
að sjá. Þær hafa gert mikinn usla
eyðilagt trjálaufið á 300 hektara
landsvæði, svo að orðið hefir að
höggva skóginn á því svæði. Til
þess að stöðva hópinn, sem heldur
stöðugt áfram norður á bóginn,
hefir nú herdeild verið send suður-
eftir. Á h'ún að grafa þar langar
og djúpar grafir, ráðast síðan á
hópinn með hrísvöndum, þegar
hann fer yfir, og þvinga hann nið-
ur í grafirnar.
Gerhard Folgero
heitir norskur skipstjóri sem ný-
lega kom til Kúbu eftir að hafa
siglt frá Noregi yfir Atlantshafið
í litlum seglbát. Fe'rðinni ætlar
hann að halda áfram til megin-
landsins og sigla síðan upp Missi-
sippi til Minneapolis. — Hann er
einn á bátnum og lagði af stað 11.
maí síðastl. ár.
íaafoldarprentsmltija h.f.