Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1931, Page 3
LESBÓK M0RGUNBLAÐSIN8
331
fiæðisfjeJagsins o. fl. opinberum
byggingum). Voru fundir haldnir
samtímis í öllum deddunum. —
Sótti jeg fundi í jarðfræðideildinni
•sem lijelt fundi í námudedd há-
skólans. Fyrir hverri deild voru
kjörnir forsetar og auk þess vald-
ar nefndir þeim til aðstoðar við
ýmsar ráðagerðir og framkvæmdir
í deildunum. Var jeg kosinn í eina
slíka nefnd í jarðfræðisdeildinni,
iíklega mest fyrir kurteisissakir,
heidur en von væri til að jeg gæti
orðið þar að nokkuru liði, alókunn-
ut starfsháttum fjelagsins.
Deildarfundirnir stóðu að jafn-
aði frá kl. 10 árdegis til hádegis
eða nóns, með stuttu matarhljei.
Þar voru fluttir fyrirlestrar og um-
ræður fóru fram um ýms vísinda-
leg verkefni í sjerfögum deildanna.
Það er og föst venja að forsetar
deildanna flytji forsetaerindi í
deidd sinni einhvern samkomudag-
inn. í jarðfræðideildinni var próf.
J. W. Gregory forseti. Var hann
um langt sksið ■ jarðfræðikennari
við háskólann í Glasgow; en hef-
ir nú látið af starfi. Hóf hann
fyrirlestra í deildinni með forseta-
erindi um ýmissar framfarir í
jarðfræðinni síðustu 100 árin, síð-
an Brit. Assoc. var stofnað. Var
fyrirlesturinn mjög fróðlegur og
skörulega fluttur. Þann dag voru
og þessi erindi flutt: Um jarðfræði
Lundúnahjeraðs (Mr. Dewey og
dr. Wooldridge). Mótun landslags
umhverfis Thamesfljót, var fyrir-
lesarinn ung, ljóshærð stúlka Mrs.
Ross. Hlaut hún vei útilátið lófa-
kiapp að launum. Samanburður
fornra sandlaga á Englandi (Mr.
Kirkaldy). Um fornar steingerðar
lcifar manna (Sir A. Keith).
Næsta dag (25. sept.) fóru fram
umræður um sannanir fyrir fram-
þróun lífsins, er steingervingar
jarðlaganna veittu. Tóku 8 jarð-
fræðingar og dýrafræðingar þátt
í þeim umræðum.
Síðar voru þessi erindi flutt:
Merki um jarðlagabyltingar í fom-
um jarðiögum (10 ræðumenn). —
Steintegundir nýlega fundnar á
Bretlandi (dr. Spencer). Um vatna
skel (eorbicu'la) í jarðlögum á
Vestur-Engiandi (dr. Jackson). —
Umræður um uppruna málmganga
o. fl. (5 ræðumenn). Um botn-
myndanir og sjávarstöðubreyting
við suðurhluta Indlands (Mr.
Swaminathan). Um kambríujarð-
lög (dr. Matley). Um basaltmynd-
ardr í Victoria í Ástralíu (Mr.
James og próf. Skeats). Umræður
um olíuþrær í jarðlögum og upp-
runa þeirra (5 ræðumenn). Þessu
líkt var því hagað í öðrum deild-
um, en jeg hlýddi á mjög fáa
fyrirlestra utan jarðfræðideildar-
innar.
Að deildarfundunum loknum
hvern dag, hófust heimsóknir til
ýmissa inerkra vísindastofnana í
Lundxinum (skóla, safna, rann-
sóknastofnana o.fl.) eða leiðangrar
til staða fyrir utan borgina. 1 jarð-
fræðideildinni gátum vjer valið um
12 jarðfræðisleiðangra tál jarð-
myndana fjær og nær borginni.
Á kvöldin fluttu nafnkunnir vís-
indamenn fjelagsins fræðandi fyr-
irlestra og höfðu aðrir en fjelags-
menn aðgang að sumum þeirra, t.
d. skulu þessir nefndir: Um dýra-
garða og þjóðgarða (Sir Mitchell).
Um ætt mannsins (Sir A. Keith).
Fyrir utan vetraibrautina (Sir
Jeans). TJm þráðlaus frjettasam-
bönd (Sir OHver Lodge).
Sunnudaginn 27. sept. fór guðs-
þjónusta fram í Pálskirkjunni, er
fundarmönnum var sjerstaklega
trygður aðgangur að. Stólræðuna
flutti biskupinn af Southwark.
Flest kvöldin meðan mótið stóð,
voru fulltrúar, gestir og mjög
margir fjelagsmenn boðnir ril ým-
issa kvöldgilda. 24. sept. vorum
vjer að boði hjá Royal Society í
Burlington House. Kvöldið eftir
sóttum vjer boð ríkisstjórnarinnar
í samkomusölum Lundúnaháskóla í
South-Kensington; tók mentamála-
ráðherrann og frú hans á móti
gestunum. 28. sept. bauð háskól-
inn oss td kvöldsamkomu. Voru
við það tækifæri 5 menn kjörnir
heiðursdoktorar háskólans. Þar á
ireðal hinn nýkjörni forseti Brit.
Assoc. Smuts hershöfðingi. Fór sú
athöfn fram með hátíðlegum seri-
moníum, svo sem títt er við enska
háskóla. Breska náttúrugripasafnið
í South Kensington hjelt hvöld-
veislu í húsakynnum safnsins 29.
sept. til minningar um það, að
liðin voru 50 ár síðan það var
flutt í hið veglega, mikla safna-
hús, þar sem það nú á heima. —
V'orum vjer boðnir þangað. Var
það stjórnarboð og tók forsætis-
ráðherrann og frú hans á móti
gestunum. Síðasta kvöldið (30.
sept.) sóttum vjer boð borgarstjórn
arinnar í ráðhúsi borgarinnar
(Guildhall). Tók borgarstjórinn
(Lord Mayor) Sir William Neal
á móti gestunum. Skemtu menn
sjer þar frá kl. 8y2 til miðnættis
við samræður, dans, hljóðfæraslátt
og söng. Þá voru líka til sýnis dýr-
mæt Ustasöfn, er fylgja ráðhúsinu
og auðug söfn af minjagripum og
fornminjum frá ýmsum öldum. —
Sjerstaklega fullkomið og merki-
legt er safn af margs konar forn-
minjum eftir Rómverja, sem fund-
ist hafa í jörðu í Lundúnum. Er
það geymt í kjallarasölum ráð-
hússins. Allmörg fleiri boð var og
um að velja.
Það var sameiginlegt við öll J»au