Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1931, Qupperneq 6
334
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Þegar á miðilsfundina koma
vitsmunaverur, sem staðhæfa að
þær hafi fyrir löngu lifað hjer á
jörðinni, kemur það þráfaldega
fyrir, að þær tala á latínu, eða
öðrum tungum eða mállýskum, er
miðillinn kann ekkert í og þekkir
ekki einu sinni að nafni. Ein-
liverju sinni hafði misskrifast eitt-
hvað í skilaboðum frá slíkri vits-
munaveru, en hún ijet þá leið-
rjetta það með „maculam delere“,
sem ýmsir prófarkalesarar þekkja,
en útilokað er að fátæk alþýðu-
kona í litlum bæ í Sljesíu, geti
liaft hugmynd um.
Einhverju sinni kom vitsmuna-
vera, sem þóttist hafa verið lækn-
ir og lesið læknisfræði um 1870.
Hann kom með þær sannanir fyr-
ir þessu, að bera fram ýmissar
lyfjafræðissetningar á latínu, sem
ekki eru notaðar lengur. Og einu
sinni kom hann með latneskt nafn
á sjúkdómi, og kannaðist dr. Kind-
borg ekkert við hann. En eftir
nánari rannsókn komst hann að
því að læknar 'höfðu áður notað
þetta nafn, Neuritis migrans ascen-
dens, um sjerstakan sjúkdóm.
Oðru sinni kom fram vitsmuna-
vera, sem þóttist hafa verið frægur
franskur má'ari. Reyndi miðillmn
þá að draga upp myndir, en þær
urðu ógreinilegar. Þá skrifaði hönd
miðilsins þessi tvö frönsku orð:
,,femme“ og ,,fenétre“, en sagði
þau um leið á þýsku.
Að lokum skal hjer skýrt frá
einu af blómaflutnings fyrirbrigð-
unum. Herbergið, sem miðillinn
var í, var eftir venju lýst með
daufu rauðu ljósi. En alt í einu
kom bjartur ljósgeisli ög líkt og
þruma, og glamraði þá glerkög-
ur á ljósahjálmi. Miðillinn varð
ákaflega hræddur og hjúfraði sig
upp að frú Kindborg og greip
dauðahaldi í hana. Og meðan á
þessu stóð rigndi gulum blómum
yfir þá, sem á fundinum voru. —
Blómin voru síðar rannsökuð í
smásjá á jurt.asafninu í Breslau.
Kom þá í ljós að þau höfðu hvorki
verið slitin upp nje leggirnir skorn-
ir, heldur höfðu leggirnir verið
brendir sundur á óskiljanlegan
hátt.
Ódýr flugvjel. Þýski frumherj-
inn á sviði svifflugsins, Hans
Richter, hefir ný'.ega smíðað nýja
svifflugvjel, sem kostar ekki nema
175 mörk og vegur aðeins 14 kg.
Ætti því nú að vera auðvelt fyrir
hvern mann að eignast flugvjel,
þegar þær eru orðnar ódýrari en
góðir reiðhestar. Hjer sjest maður
vera að hefja sig til flugs í þess-
ari nýju svifflugvjel.
Við fallbyssu. Mynd þessi er tek-
in um borð í einu af herskipum
Breta úr Atlantshafsflotanum, sem
nýlega varð að hætta æfingum sín-
um vegna þess að sjóliðarnir neit-
uðu að vinna. Myndin er tekin
meðan á æfingunum stóð og sýnir
tvo sjóhða, með gasgrimur vera
að hlaða eina af fallbyssum skips-
ins.
Sull funöið
meo óskakvicti'.
Á landamærum Belgíu og Frakk-
lands eru æfa gamlar -klausturrúst-
ir. Gekk sú saga í inunnmælum
um þær, að þar væri fólginn fjár-
sjóður mikill. Margir höfðu graf-
ið í rústirnar til þess að leita að
fjársjóðnum, en engum hafði
heppnast að finna hann'
En svo var það núna hinn 6. þ.
mán. að einhverjum hugkvæmdist
að fá þangað mann, sem frægur
er fyrir það, að gAa fundið vatn,
kol, járn og ýmissa málma í jörðu
með hjálp óskakvists.
Maðurinn kom til klaustursins
með óskakvistinn og nú gekk
hann þarna fram og aftur í
heila klukkustund. Loks kom hann
í gamla kjallarahvelfingu, sem var
all-langt frá klausturrústunum, og
í sama bili kipptist óskakvistur-
inn hart við í hendi hans. Maður-
inn staðnæmdist og sagði: Hjer
er gullið! Var nú þegar farið að
grafa þarna og eftir stutta stund
rákust menn á kistu, fulla af göml-
um guilpeningum, sem eru um
miljón franka virði.
En nú keinur dálítill bobbi í
bátinn, og fellur það í hlut lög-
fræðinga að skera iir því hver
gullið á að fá. Klausturrústirnar
eru á franskri grund, og kjallara-
hvelfingin, þar sem gullið fanst,
htfir verið í lar.dareign klaust-
ursins. En nú er hún hinum megin
við landamærin — í Belgíu.
Ferðalö^ í Noregi.
Ferðamannfjelagið norska á 19
sæluhús fyrir ferðalanga víðsveg-
ar um landið. Eykst aðsókn að
þeim á ári hverju. Voru þar alls
11.350 næturgestir í sumar, en
9.674 í fyrrasumai'. Hefir því að-
sóknin að sæluhúsunum aukist um
rúmlega 17%.
Til Jötunheima komu flestir
ferðamenn í sumar, eða 5.859, en
það sæluhúsið sem veitti flestum
húsaskjól, heitir Gjendesheim. —
Þar voru 2.206 næsturgestir í
sumar.