Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1935, Blaðsíða 2
218
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Kvenstúdentagarðurinn í Höfn.
Rysensteens Gymnasium,
þar sem ísl. kvenstúd. bjuggu.
af okkur þreytuna og drungann
eftir bestu getu, brosa framan í
þá, sem tóku á móti okkur, svo
að þeir sæi að við kæmum til
Kaupmannaliafnar eins og „ný-
slegnir túskildingar“, þrátt fyr-
ir hið langa og þreytandi ferða-
lag. Danirnir, sem tóku á móti
okkur, voru líka svo viðmótsþýð-
ir, og fagnaðaróp þeirra svo ein-
læg og hressandi, að við gleymd-
um þreytunni og hrópuðum
húrra á móti af fullum hálsi, svo
að undir tók alt nágrennið.
Síðan fór allur hópurinn til stú-
dentaf jelagshússins. Þar vorum við
hátíðlega innrituð sem þátttak-
endur í stúdentamótinu, okkur
vísað á gististaði, afhent snotur
l'efti með aðgöngumiðum að öll-
i in samkomum og hátíðahöldum
uótsins, ávísunum á mat o. s.
frv. En þegar öllum formsatrið-
um þessu viðvíkjandi var lokið,
urðu víst flest okkar fegin að
ganga til hvíldar.
Daginn eftir voru íslensku
stúdentarnir í heimboði lijá
Sveini Björnssyni sendiherra og
nutu þar í ríkum mæli gestrisnu
þeirra hjóna og hinnar alkunnu
alúðar þeirra.
Nú var einn dagur til stefnu.
Þann dag notuðum við til þess
að skoða borgina og hressa okk-
ur, því að veður var dásamlega
gott. Danmörk tók sannarlega
brosandi á móti okkur!
Hinn 23. júní hófst stúdenta-
mótið og var það í fjóra daga.
T'm 1400 stúdentar frá öllum
Norðurlöndum tóku þátt í því.
Þar af voru um 50 íslenskir stú-
dentar.
Jónsmessuhátíð stúdenta.
Við vorum svo heppin, að um
þetta leyti var verið að æfa sjón-
leikinn „Röverne fra Rold“ á
útisenunni í Ulfadölum og fór
aðalæfing fram 23. júní, sama
daginn og stúdentamótið hófst.
Þangað voru allir stúdentarnir
boðnir að tdhlutan „Berlingske
Tidende“ og framkvæmdanefnd-
ar mótsins, eftir að þeir höfðu
verið við hina hátíðlegu setningu
þess í ráðhúsi Kaupmannahafnar.
Það var nýtt fyrir okkur Is-
lendinga að horfa á leiksýningu
undir beru lofti, því að íslenska
veðráttan leyfir vart slíkar sýn-
ingar.
Aður en sýning hófst hélt N.
Blædel ritstjóri hjá „Berlingske
Tidende“ ræðu, og bauð alla stú-
dentana velkomna með skörulegri
ræðu.
Það var gaman að sjá hinn
mikla sæg norrænna stúdenta
saman kominn þarna í hinum
fögru Ulfadölum. Yfir hópinn
var að líta sem geisistóra breiðu
af Baldursbrám, sem bærast fyr-
ir hægum vindi og vagga sjer í
sólskini.
En þegar leið á leikinn, tók að
rökkva. Þá voru tendrað ótal blys
o g vörpuðu þau einkennilegum
hátíðablæ yfir samkomuna. Síð-
an var kveikt stórt Jónsmessubál,
og þar helt skáldið Hans Hartvig
Seedorf Pedersen bráðfyndna og
snjalla bálræðu.
Þessum fyrsta degi stúdenta-
mótsins lauk með því, að við geng
um niður að ströndinni. Þar biðu
okkar þrjú skip, sem fluttu okk-
ur til Kaupmannahafnar. Veður
var fagurt; í fjarska sáust ótal
Jónsmessubál, og á heiðskírum
næturhimni svam máninn yfir
liöfðum okkar, eldrauður á lit, og
speglaði sig í dimmbláu Eyrar-
sundi.
Stúdenta „Sp,ex“ í Dagmar-
leikhúsinu.
Hvað er „Spex“? Það er eins-
konar parodi, þar sem efni, mál-
færi og tónlist leiksins er túlk-
að af glaðværð en ekki galgopa-
skap. Hefir hann þá á sjer alt
annan blæ heldur en venjulega.
Nú efndu stúdentar til „Spex“-
leiksýningar á „Wilhelm Tell“ eft-
ir sænskri fyrirmynd, í Dagmar-
leikhúsinu hinn 24. júní. — Var
leikurinn fjörugur og skemti-
legur og húsið svo troðfult
af áhorfendum og hitinn þar
inni svo mikill, að annars eins
þektu íslensku stúdentarnir ekki
dæmi frá Iðnó. Þarna sátu karl-
mennirnir og stundu og þerr-
uðu af sjer svitann, þangað til
stúlkurnar sýndu það veglyndi
að leyfa þeim að fara úr jökkun-
um. Var því leyfi tekið með mikl-
um fögnuði og dynjandi húrra-
hrópum — og yfirleút voru
húrrahrópin aldrei spöruð,
Hrifning og fjörugur stúdenta-
bragur var í Dagmarleikhúsinu
þetta kvöld. Ahorfendur klöppuðu
leikendum óspart lof í lófa. Stund