Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 331 Stephan Stephensen amtmaður. sýslumanni í Vatnsdal er svo lýst, að hann hafi verið höfðingi „sem ætíð ljet drengskapinn verða snildinni samfara, og að sem vin- ur hafi hann verið tröllum trygg- ari, sem nágranni greiðvikinn, friðsamur og hjálpsamur. Heimili hans var rómað, fyrir alt sem eitt heimili getur prýtt, svo sem reglu- semi, þrifnað, frið og saklausa gleði“. Á þessu góða heimili að Höfða- brekku í Mýrdal, fæddist Magnús landshöfðingi 18. okt. 1836, og var þriðji sonur foreldra sinna. Höfðu hinir báðir verið látnir heita eftir Magnúsi konferensráði í Viðey, föðurbróður og fóstur- föður Magnúsar sýslumanns, en urðu mjög skammlífir. Lifði ann- ar fáa daga, hinn fáa mánuði. Þegar þriðji sonurinn fæddist, rjeðu ýmsir vinir sýslumanns hon- um mjög frá því, að láta hann heita Magnús því sýnt væri að það mundi ekki blessast. En mælt er að Magnús sýslumaður hafi svarað þeim ráðleggingum á þann veg, að hann skyldi aldrei láta af því, að láta syni sína heita eftir frænda sínum og fóstra, „og fyr mættu þá synir sínir allir fara“. En sem betur fór lifði þriðji Magnúsinn „og tókst þá óaðfinn- anlega að endurreisa nafn Magn- iisar konferensráðs' ‘ því Magnús landshöfðingi varð „laukur ættar sinnar og sómi“. Fyrstu 8 ár æfinnar ólst Magn- ús landshöfðingi upp með foreldr- um sínum á Höfðabrekku, en síð- ar í Vatnsdal í Fljótshlíð, því fað- ir hans feklr Rangárþing 1844. Og þó hann dveldi aldrei langdvölum í Rangárþingi, mun hann æfinlega hafa talið sig Rangæing, og órjúf- andi vináttu og trygð batt hann við ýmsa Rangæinga og ættmenn þeirra, (og eins systur hans Þór- unn og Marta), er hjelst alla æfi, alveg eins og faðir hans hafði gert við Skaftfellinga frá veru sinni þar. Ættmenn hans sumir, höfðu og búið í Rangárþingi mann fram af manni eins og áður er sýnt, og síðustu opinber störf sín vann liann í þágu Rangæinga sem full- tri'ii þeirra á Alþingi. * AGNÚS landshöfðingi var aðeins 13 ára þegar hann gekk inn í latínuskólann, og þá sjálfsagt vel undirbúinn þó ung- ur væri, því faðir hans hafði jafn- an haft ágæta kennara til að kenna börnum sínum, og fermdur var hann á öðru skólaári sínu 1851 af föðurbróður sínum sjera Pjetri Stephensen á Ólafsvöllum, og fekk hjá honum þann vitnis- burð að hann væri „afbragðs gáf- aður og siðsamur“. Eftir sex ára skólavist í latínu- skólanum, útskrifaðist hann það- an (1855) „með hæstri einkunn allra sambekkinga sinna“. Sama ár fór hann til háskólans í Kaup- mannahöfn og tók þar embættis- próf í lögum 4. júní 1862 með hárri 1. einkunn. Ári síðar varð bann starfsmaður við íslensku st j órnar deildina í Kaupmanna- höfn, og 1865 varð hann aðstoðar- maður þar hjá frænda símmi Odd- geir Stephensen, sem þá var stjórnardeildarforstjóri. Af brjefi sem Oddgeir skrifaði Magnúsi sýslumanni í Vatnsdal 1866, er helst svo að sjá, sem hann hafi ekki kært sig um að missa hinn unga frænda sinn til íslands, held- ur jafnvel viljað að hann settist að í Kaupmannahöfn, því hann segir að hann sje nú þegar kom- inn „hjer í svo góða stöðu“ (þ. e. við stjórnardeildina) að það sje mikið áhorfsmál fyrir hann að sækja til íslands, „nema amt- mannsembætti byðist", því etcki leist honum meira en svo á yfir- dómaraembættin af ótta við að ungur maður í þeim, legðist í leti, eða færi að slá sjer út í pólitílr, eða eitthvað annað embættinu ó- viðkomandi. En alveg var Odd- geiri Stephensen, sem þá var væri, þá þegar, fær um að „veita forstöðu hverju verzlegu embætti á íslandi sem vera skal“. Ekki hefir hugur Magnúsar landshöfðingja staðið til þess að ílendast erlendist. Heima á ætt- jörð sinni vildi hann starfa, þar vildi hann una æfi sinnar daga, og þangað hverfur hann undir eins og sæmilegt tækifæri býðst. Árið 1870 var hann settur yfirdómari við landsyfirrjettinn í Reykjavík, og ári síðar skipaður í það em- bætti. Fyrsti dómari varð hann 1877, og 1883 var hann jafnframt dómaraembættinu settur amtmað- ur sunnan og vestan, og gegndi hann þessum embættum báðum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.