Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Síða 6
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Gróinn sára slnna eftir 56 ár. Sjúktingur! Holdsveikraspítalanum í 35 ár Einn af sjúklingunum í Holdsveikraspítalanum í Laugar- nesi, Sæmundur Stefánsson, átti nýlega 77 ára afmæli, og um sama leyti sagði yfirlæknirinn honum, að nú mætti hann fara allra sinna ferða og heimsækja æskustöðvarnar ef hann vildi. Hann var þá gróinn sára sinna eftir 56 ár. Sæmundur er þjóðkunnur maður, því að ævisaga hans hefir birst á prenti, og er hún svo átakanleg, að hverjum manni, sem les, mun hún verða minnisstæð. fræðimaður dr. Jón Helgason biskup hefir nýlega gert minningu Hannesar biskups Finnssonar, með hinni ítarlegu og ágætu æfi- sögu hans, því eins og Hannes biskup var einn af merkustu og mætustu mönnum hjer á landi á síðari hluta 18. aldar, bar frændi hans, Magniis landshöfðingi, höfuð og herðar vfir flesta sína samtíð- armenn einni öld síðar. Þeir hófu báðir hátt merki Hlíðarendaætt- arinnar, hvor á sinni öld, en hver vill verða til að lyfta því hæst á þeirri tuttugustuf Fjaðrafok. RJETT eftir flutningana í haust. Húseigandinn tilkynti öllum leigjendum að nú ætti að mála alla gangana, og bað að fara varlega um kvöldið. Einn kemur seint heim, og man þá eftir þessu. Skríður hann nú upp handriðið og upp á þriðju hæð, en þá man hann eftir því, að hann hefir skilið skjalatöskuna sína eftir niðri í forstofu, og rennir sjer nú niður alt handriðið til þess að sækja hana. Svo klifrar hann aftur upp handriðið, másandi og blásandi, og ætlar að losna við málninguna. En þegar kann kemur upp á þriðju hæð, kallar konan ofan af næsta lofti: — Vertu ekki hræddur, Hans minn, þeir máluðu ekki annað en handriðin í kvöld. RANGEYGUR dómari átti að yfirheyra þrjá menn. Hann var svo rangeygur, að hann horfði altaf í kross. Hann spyr fyrsta manninn: — Hvað heitið þjerf Og hann svarar: Ágúst Jónsson. Þá sneri dómarinn sjer að næsta manni og sagði: — Hvers vegna getið þjer ekki haldið yður saman, þegar jeg spyr yðúr einkis! Þá svaraði þriðji maðurinn: — Þjer hafið ekki spurt mig neins, herra dómari. PEGAR Sæmundur var aðeins þriggja nátta gamall var lagt á stað ineð hann fátækra- flutning ofan úr Hvítársíðu til Akraness. Yar þá kalsaveður og frost, en ekki var búið betur um hvítvoðunginn en svo, að tærnar stóðu út iir reifanum. Til átta ára aldurs ólst hann upp á ónafngreindum bæ á Akra- nesi. Hann man eftir sjer frá því hann var fjögra ára. Átti hann þá slæmt atlæti. Altaf var hann berfættur, í einum buxnalörfum og peysugarmi. Rúmið hans var heybæli, rúmfötin: seglgarmur, sem hann lá í og torfusnepill í stað kodda. Aldrei fekk hann al- mennilegan mat og var hýddur á hverjum degi. Var þessi meðferð að lokum kærð fyrir hreppstjóra og var drengnum þá fenginn ann- ar samastaður, og batnaði mikið um. Var hann nú í ýmsum stöð- um þar til hann var 14 vetra. Þá var hann orðinn mjög veikur, hafði fengið mikinn bjúg og var blásvartur í framan. Allur líkami hans var með hörðum þrimlum og rauðir blettir um holið. Var nú leitað ráða til Lárusar Pálssonar homopata. Ráðlagði hann drengn- um að drekka pela af tjöruvatni á fastandi maga, hafa baun í báð- um fótum og tjöruplástur yfir baununum. Ekki mætti liann hafa neinn gang, og síst af öllu vaðal. Var farið að ráðum þessum og batnaði Sæmundi dag frá degi. Bjúgurinn og þrimlarnir runnu af honum og hann fekk eðlilegan holdslit. Sæmundur Stefánsson. (Myndin tekin á 77 ára afmæli hans). N ekki stóð þetta lengi. Var honum nú komið fyrir á bæ, þar sem hann varð að hafa mik- inn vaðal. Fóru þá að koma kaun á hendur og tær og leið ekki á löngu uns hann fór að missa kjúk- ur bæði úr höndum og fótum. Sextán vetra gamall var hann fluttur lireppaflutningi aftur á fæðingarhrepp sinn. Var hann lát- inn standa yfir fje um veturinn og fekk bæði ilt fæði og af skorn- um skamti. Misti hann alveg þrótt og var boðinn upp á hreppaskil- um þá um vorið, en enginn vildi taka hann. Varð það úr að hann var settur niður hjá Stefáni í Kalmanstungu. Var hann svo reiddur þangað, bundinn á dróg- ina, því að hann var svo máttlaus að hann gat ekki haldið sjer, og teyma varð undir honum. í Kalmannstungu fekk hann á-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.