Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 335 gæta aðbúð. Dvaldist hann þar í sex ár, hjarnaði við og náði þó nokkurum þroska. Vildi hann nú ekki vera lengur á sveitinni og rjeðist vinnumaður að Síðumúla. Þá um haustið fór hann í smölun fram í Selland. Kendi hann þá mikils verkjar í hægra fæti og er heim kom um kvöidið voru sokkar og skór blóðugir og fóturinn bólg- inn. Opnaðist svo sár á fætinum að nýju og gengu kjúkur út. Síð- an hafði Sæmundur altaf opin sár, þangað til nú. HÖRMULEG er saga um það, er hann fór veturinn næsta í kynnisför að Kalmanstungu. Hrepti hann þá stórhríð og voru mestu undur að hann skyldi ekki verða úti. Vetlingum sínum tap- aði hann, og skóinn af hægra fæti misti hann, er hann var að brjót- ast yfir kvísl. Síðan misti hanu sokkinn er hann braut klaka í skorningum hjá kvíslinni, og gekk nú eftir þetta berfættur á þeim fæti, sem sárið var á. Tók hann nú að kala, því að frostið var mikið. Að lokum náði hann fjár- húsi hjá Gilsbakka. Þá voru allar tærnar brotnar af hægra fætinum. Lá hann þarna til morguns að fjármaður kom. Þá var hann flutt- ur heim að Gilsbakka og hjúkraði síra Magnús Andrjesson honum svo vel, að hann helt lífi. VETURINN 1901 fekk Sæ- mundur boð frá Jóni hjer- aðslækni Blöndal um það að finna sig. Skoðaði læknir hann vand- lega, og kom nú í ljós að Sæ- mundur var holdsveikur. Þótti þó ekki stafa af honum nein hætta, ef hann væri altaf á sama bæ. En honum var líka gefinn þess kost- ur að fara suður í Laugarnesspít- ala, og eftir nokkra umhugsun tók hann þann kostinu, og hefir aldrei iðrað þess. Það eru nú 35 ár síðan hann kvaddi sveit sína. Var þá blind- öskubylur og mun honum hafa verið dapurt í skapi, eins og sjá má á þessari vísu, sem hann orti grátandi er hann lagði á stað: Gæfunnar er hverfult hjól, heimur mjer það svnir. Fokið er í flest öll skjól, fækka vinir mínir. Til sjúkrahælisins í Laugarnesi kom hann 19. nóvember 1901 og hefir hann dvalist þar síðan, eða í hartnær 35 ár. Nú er hann gró- inn sára sinna og á afmælisdag- inn hans 9. október gaf læknir- inn honum þá afmælisgjöf að nú mætti hann hvenær sem hann vildi heimsækja æskustöðvar sínar og Hvítársíðuna. EGAR Sæmundur kom til Laugarness kunni hann hvorki að lesa nje skrifa. En hann langaði mikið til þess, og var nú fenginn aldraður maður, Þórarinn að nafni, til þess að kenna honum og gekk það ótrú- lega vel. þótt lærisveinninn væri 42 ára gamall. Nokkurum árum seinna birtist Sæmundi í draumi einhver undra- fögur vera og segir: — Jeg kem þann 13., og þá áttu að segja ævisögu þína. Sæmundur vissi ekki hvað þessi draumur mundi merkja, en hitti Sigurð Kristófer Pjetursson heit- inn og sagði honum frá draumn- um eða vitruninni. Þetta mun hafa verið um áramót. Sigurður segir þegar við hann: — Þann 13. þýðir Þrettándann. Þá ætlum við að halda hjer skemt- un fyrir sjúklingana og fleiri. Treystirðu þjer til þess að segja ævisögu þína þá? Þessa spurði Sigurður vegna þess að hann vissi að Sæmundur hafði aldrei haldið ræðu, og var ekki mælskur. Sæmundur treysti sjer til þess. Svo kom Þrettándinn. Sæmund- ur hafði ekkert búið sig undir það hvernig hann ætti að segja ævi- sögu sína, og var viss um að hann þyrfti þess ekki. Samkoman hefst. Þar var 40 ipanns. Og nú á Sæ- mundur að taka til máls. Hann veit ekkert hvernig hann á að byrja, en stendur öruggur á fæt- ur, því að hann treysti hinni góðu veru, sem lofað hafði að koma. Og nú gerðist einn af hinum dularfullu atburðum í lífi hans. Um leið og hann reis á fæt- ur, horfði hann á hvítan dúkinn á borðinu fyrir framán sig. Sá hann þá íetur. á dúknum og var þar skráð upphaf ævisögu hans. Hann byrjaði að lesa og jafnótt sem hann las kom framhaldið, þangað til hann hafði sagt alla ævisögu sína skýrt og reiprenn- andi. Fanst öllum mikið um, og þó Sigurði Kristófer líklega einna mest, því á eftir skráði hann ævi- sögu Sæmundar, eins og hann hafði sagt hana. Birtist ævisagan fyrst í „Morgni“ og síðar sjer- prentuð (1929). SÆMUNDI hefir márgt birst í draumum eða vitrunum með- an hann hefir dvalist í Laugar- nesi. Hann hefir ekki haft þar neinn fastan verustað á þessum árum, heldur flust úr einni sjúkra- stofu í aðra. Og það er merkilegt, að hann dreymir ekki nema á viss- um stað. Er það í stofu þar sem eru 6 rúm. Hann hefir sofið í fjórum þeirra. 1 tveimur hefir hann ekki dreymt neitt, heldur í rúmunum, sem eru fram við skil- rúmið að ganginum. Annað rúmið nær út að glugga; þar hefir hann dreymt alla sína fegurstu drauma og kállar hann það draumahornið sitt. í liinu rúminu eru draumar þyngri. Nú er Sæmundur kominn í draumahornið sitt, eftir 6 ára fjarveru þaðan. Fyrir nokkuru lá hann þar, og fanst hann vera vak- andi. Þá sá hann til sín svífa kvenveru og ljek um hana fegurri ljóshjúpur en orð fá lýst. Hún klappaði á kinnina á honum og sagði: — Þakka þjer fyrir hann Gest minn. Svo hvarf hún, en Sæmundur kallaði: — Er hann Gestur hjer? Nei, Gestur var ekki hjer; hann var nýdáinn. Hann hafði einu sinni verið stofufjelagi Sæmundar. Sæmundur var víst milli svefns og vöku, en nú rann upp ljós fyr- ir honum. Gestur hafði verið tví- giftur, og einu sinni sýnt honum mynd af fyrri konunni sinni. Það var sama konan og hin fagra kvenvera, sem Sæmundi hafði birst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.