Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1936, Page 8
336
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Prestar með gasgr’mur. í hinum miklu æfingum, sem stöðugt fara fram í Japan til þess að
verjast loftárásum, er mönnum og konum á öllum aldri og af öllum stjettum kent að nota gas-
grímur. Hjer sjest fylking Búddapresta með gasgrímur á götu í Tokio.
Smœlki.
enginn maður.
*
— Allir hugsa um sig. Það er
bara jeg sem hugsa um mig.
*
— Er kærastinn þinn þag-
mælskur f
— Já, það má nú segja. Við
höfðum verið trúlofuð í þrjá mán-
uði án þess að jeg hefði hugmynd
um það.
— Jeg skal, svei mjer, segja öll-
um frá hvers konar maður þú ert.
— Reyndu það bara, jeg stefni
þjer undir eins fyrir það.
*
— Það er fallegur frakki, sem
þú ert í, en buxurnar þínar eru
mestu ræflar.
— Finst þjer það undarlegt?
Hefirðu nokkuru sinni heyrt, að
menn geti haft buxnaskifti í veit-
ingastofu ?
— Maðurinn yðar minnir mig
altaf á grískan guð á kvöldin.
— Hvem?
— Bakkus.
Faðir: En þær móttökur. Jeg
er varla kominn út úr lestinni fyr
en þú biður mig um peninga.
Sonur: Lestin var líka 20 mín-
útum á eftir áætlun.
*
Svíi: Jeg át síld um miðjan dag
og síðan hefir mig þyrst svo, að
jeg hefi orðið að drekka 15 bjóra.
Og svo segja menn að síld og
kartöflur sje ódýr matur!
*
Ung frú kemur í hattabúð.
— Þið auglýsið að þið hafið
fengið 500 nýtísku hatta. Má jeg
fá að máta þá?