Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1938, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1938, Side 7
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 207 manna, er þjónuðu skólanum og nemendum hans með sínum heið- virðu störfum. Þetta er þá hið fyrst upphaf að því, hvernig vjer gætum orðið endurreistir til hin's betra og hinn nýi gróður á akri kirkjunnar og hinn verslegi æsku- lýður deyi ekki þannig frá stofni og rót eða falli frá dygðum for- feðranna, heldur verði eins og græddur á stofninn og rótfestur í dygðinni, og eftirkomendurnir, þeir er eiga fyrir sjer að lifa eftir vorn dag, sem enn erum uppi, A æskulýðnum á fyrst og fremst að byrja, virðist mjer, vegna kom- andi kynslóða, þeirra sem eftir oss eiga að koma, því þeir sem nú eru fullvaxnir eiga erfiðara með nám, nema hvað þeir láta auðveldlega hrífast af aðdáun og gleði með sjálfum sjer yfir heið- virðri æsku, sem gefur fordæmi full góðra fyrirheita. Er nú ættir vorar, sem af hinum fyrri konungum hafa hafnar ver- ið til mannvirðinga og halda þeim mannvirðingum enn í dag á með- al íbúa landsins, ásamt öðrum gjöfum hamingjunnar, er þær hafa fram yfir alþýðuna, leggja þannig af kappi stund á dygðir og góða siðu, þá efast jeg alls ekki um, að hans allra skærasta konunglega hátign, vor allra mild- asti herra, endurnýi tignarstöðu þeirra og mannvirðingar og komi þeim til þeirra forna gengis. Það er samboðið góðum þjóð- höfðingja að reisa við fornar ætt- ir, er hnignað hefir eða eru komn- ar á heljarþröm og hjálpa þeim, því að eigi förum vjer að hætti þeirra samlanda vorra, er fyrir nokkurum árum lögðu stund á að endurheimta virðingarstöður for- feðranna af hans konunglegu há- tign einungis sjer og sínum til handa, en hneigðust til drykkju- skapar og drykkjuveislna og sýndu í hvívetna ruddalega háttu. Enda þótt vjer getum eigi tamið þá fullorðnu, þá getum vjer samt með tímanum, fyrir aðdáun á dygðinni og launum hennar, virð- ingunni, að minsta kosti mentað unglingana, sem auðvelt er að sveigja, hvert sem vill og hægt er að leiða sjer við hönd. Skák nr. 21. Amsterdam 25. nóv. 1938. Brotningar-indversk vörn. Hvítt: Euwe. Svart: Aljechin. 1. d4, Rf6; 2. c4, e6; 3. Rf3, b6; 4. g3, Bb7; 5. Bg2, Bb4+; 6. Bd2, Be7; (Aljechin segist gera þannan leik til þess að notfæra sjer að Bd2 stendur ekki vel). 7. Rc3, Re4; (Betra var að hróka) 8. 0-0, 0-0; 9. d5!, RxB; 10. DxR, (RxR var líka gott þar sem, það hefði neytt svart til að leika Dc8 til að gera við ógnuninni d6!) 10......Bf6; Hadl, (Betra var Rd4) 11......... d6; 12. pxp, pxp; 13. Rd4, BxB; 14. KxB, Dc8; 15. De3, BxR; 16. HxB, Rc6; 17. He4, (Hf4 var betra) 17.....Hf6; 18. f4?, (Skil- ur hrókinn eftir í pattstöðu. Hf4 var ennþá best). 18........ Dd7; 19. g4, (Euwe hefir valið ranga leið strax eftir byrjunina. AUri sókninni er beint gegn peðinu á e6, sem er óvinnandi, og hvítt set- ur loks eftir með óviðráðanlega stöðu.) 19....Haf8; 20. g5, (Til- gangslaust. „En skákin var þegar töpuð hernaðarlega sjeð“, segir dr. Aljechin). 20......Hf5; (Svart þarf ekki að valda peðið á e6. Ef 21. Hxp þá Re5 og hvítt tapar skiftamun.) 21. h4, Df7; 22. Hf3, Khl; 23. Dd3, d5; 24. Hxp, (pxp, pxp; 25. Ha4 var jafn vonlaust.) 24.......Rb4; 25. De3, Rc2!; 26. Dd2, DxH; 27. PxP, Df7; 28. DxR, Hxf4; 29. Dd3, Dli5; 30. HxH, HxII; 31. Dh3, Hg4+; 32. Kf2, h6; gefið. Fjaðrafok. Skemtiferðabát í Sovjet-Rúss- landi hvolfdi nýlega. Ekkert benti til þess, að um skemdarverk væri að ræða, en til vonar og vara var samt skipstjórinn tekinn af lífi og aðrir skipverjar settir í fangelsi. ★ Lögreglustjóri einn í Plorida dæmdi nýlega tvo ökuníðinga til að sitja í ónýtu bílskrifli á fjöl- farinni götu. Er þeir höfðu setið þarna í eina klukkustund, ljet lögreglustjóri þá sleppa, í þeirri von, að þeim- hefði skilist, hve hættulegt það er að aka óvarlega. ★ Frú Esther Taylor í Liverpool átti um daginn fjórbura — þrjá drengi og eina telpu. Enskt blað hefir í sambandi við þessa fjór- burafæðingu gert þær athugan- ir, að börnin fæddust á 13 ára brúðkaupsafmæli hjónanna, börn- in fæddust 13. júní og húsið sem þau búa í er Ruginstreet 13. ★ 1C0.000 skinn af kálfum og öðr- um dýrum þarf árlega til að bmda inn biblíur, sem prentaðar eru við háskóla prentsmiðjuna í Oxford. ★ Fyrir nokkru síðan kom það fyrir í Brasilíu, að ungur maður lenti í hvirfilvindi, sem tók hann á loft og bar hann langa leið. Það varð piltinum til lífs, að hann fjell loks ofan í stöðuvatn. Gat hann synt til lands og þó hann hafi orðið nokkuð eftir sig eftir þessa óvæntu flugferð, varð hún honum ekki að varanlegu meini. ★ Á óperuhljómleikum í Covent Garden á dögunum kviknaði alt 1 einu í pappírsskrauti á leiksvið- inu og stórhætta var á, að eldur- inn breiddist út. Hinn frægi ít- alski söngvari Benjamino Gigli var að syngja aríu úr Boheme, hljóp út af leiksviðinu, náði í vatnsfötu og slökti eldinn. Flestir hjeldu að þetta tilheyrði leikrit- inu og menn vissu alment ekki fyr en eftir sýninguna, að söngv- arinn hafði afstýrt stórslysi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.