Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Blaðsíða 1
Það er skemtilegt vera biskup. Samta/ við dr. Jón He/gason. ao Dr. Jón Helgason við skrifborð sitt. f skrifstofu dr. Jóns Helgasonar biskups í rauða húsinu hans við Tjarnargötu er margt að s.já og skoða. Hún er ekki stór. Hún er vinnustofa bókamanns og rit- höfundar. Hún er líka verustaður safnarans, teiknarans, sem hefir haldið saman gömlum myndum, ekki síst þeim, er liann sjálfur hefir gert. Á viðhafnarstað á miðjum vegg er hin alkunna mynd afans, Tómasar Sæmunds- sonar. Jeg kom þangað fyrir nokkrum dögum. Þá var þar fyrir aðkomu- prestur einn, sr. Magnús Guð- mundsson í Olafsvík. — Það er einkennilegt, sagði dr. Jón, að prestar utan af landi skuli heimsækja mig nú, alveg eins og áður, án þess að eiga við mig nokkurt erindi. — Jeg minnist þess ekki, sagði sr. Magnús, að jeg hafi nokkurn- tíma komið til Reykjavíkur án þess að heimsækja yður. Og jeg býst við að jeg lialdi því áfram, sagði hann. Svo fór hann í það sinn. En við dr. Jón Helgason „fyrverandi“ biskup Islands, eins og liann skýrt og skilmerkilega tók fram, tókum tal saman. Því erindið var að ræða við hann um starf það, sem hann nú nýlega hefir látið af. — Hvernig fjell yður biskups- embættið ? var min fyrsta spurn- ing, " — Það var mjer nokkuð erfitt fvrst í stað. Jeg hafði aldrei áð- ur á æfinni komið nálægt nokkru sem ætti skylt við „administra- tion“ eða stjórn á opinberum mál- um. Það var undir jól 1916. Þá hafði jeg lítið annað gert í 2214 ár en að kenna, alt frá því árið 1894. E11 þá kom jeg heim al- kominn, nýgiftur. Þá hafði jeg verið kandídat í 2 ár, en hafði fyrri kandídatsveturinn kent hjer við prestaskólann fyrir föður minn, sem var veikur. Kapellán á Sjálandi. Frá því í júní 1893 þangað til í febrúar 1894 hafði jeg verið óvígður kapellán hjá presti einum á Suður-Sjálandi, Peter Dahl í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.