Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27 Dr. Jón Helgason á vísitasíuferð. Myndin er tekin að Melstað í Miðfirði. Lengst til hægri sjest bisk- up og biskupsfrúin frú Marie. Þá frú Ingibjörg Briem og síra Jóhann Briem. Þá sonur biskups, Páll Helgason og loks Guðmundur Theodórsson, fylgdarmaður biskups í 7 sumur. lagið(!), en Björn hafði verið kos- inn í þetta 3. sæti í stjórninni. Hló Björn dátt er hann hevrði þessa skýringu mína. Jeg var háskólakennari frá því Háskólinn var stofnaður 1911 og til 20. des. 1916. Rekter Háskól- ans var jeg 1914—15. Starf mitt við Háskólann A'arð mjer í einu orði sagt óvenju skemtilegt. Biskup. Þegar Þórhallur Bjarnarson biskup fjell frá, var eigi, að því er jeg vissi, um aðra talað en mig, til að verða eftirmaður hans. Var jeg 20. des. settur biskup. Fjekk jeg veitingu fyrir em- bættinu 8. febrúar 1917 og 22. apríl var jeg vígður biskup. Það gerði Valdimar Briem vígslu- biskup. Hann hafði fyrir nokkru dottið af hestbaki og meitt sig í öxlinni, svo hann gat varía lyft hendinni. Hann sagði því við mig á eftir, að hann hefði vígt mig „með hangandi hendi“. Ritstörf. — Hvað getið þjer sagt mjer í stuttu máli um ritstörf yðar? — Það yrði langt mál, ef jeg ætti að tína það til alt, sem jeg hefi skrifað og látið frá mjer fara um æfina. Sumir menn eru „for- fallnir“ í tóbak og brennivín. En jeg er með þeim ósköpum fæddur að vera forfallinn í blek. — Á kennaraárum mínum gaf jeg út „Verði ljós“ í 9 ár, 1896— 1904. En hætti því síðan. Og það var vegna þess, að með því að fást viö slíka útgáfu fanst mjer jeg alveg vera að missa hæfileik- ann til þess að lesa stærri bækur. Allur minn lestrartími fór í að lesa blöð, og einkum tímarit. Ári seinna var jeg fenginn til þess að verða nieðútgefandi að „Nýju kirkjublaði“ með sr. Þór- halli Bjarnarsyni. En eftir tvö ár hætti jeg því. Á prestaskólaárunum gaf jeg út sögu fornkirkjunnar, er faðir minn hafði samið, en entist ekki aldur til að ljúka við. Samdi jeg síðasta heftið. Ennfremur gaf jeg á þeim árum út lrristilega sið- fræði eftir hann og ágrip af prjedikunarfræði, sem báðar voru notaðar við kensluna. Þá samdi jeg rit um sögulegan uppruna ^fyja testamentisins, er kom út árið 1904. Á árunum 1898—1906 vann jeg með Þórhalli Bjarnarsyni, Eiríki Briem og Hallgrími biskup Sveins- syni að útlegging Nýja Testament- isins, er prentað var 1906. En þessi ritlegging var síðan endur- skoðuð og gefin út ásamt þýðing Haraldar Níelssonar á Gamla testamentinu. Vann Haraldur að því með okkur að samræma þýð- ingarnar. Eftir að jeg varð lektor 1908 bvrjaði jeg að semja almenna kirkjusögu. Þar var ágrip af kristnisögu fslands tekið með. Síðasta — fjórða — bindið af þessari almennu kristnisögu kom ekki út fyr en árið 1930. En þegar jeg dró saman efni í íslenska þáttinn af þessu verki, lagði jeg um leið grundvöllinn að ítarlegri „kristnisögu íslands, frá upphafi til A7orra tíma“. Sú bók er í tveim bindum og kom fyrra bindið iit 1925, en hið síðara 1927. Áður hafði ltomið út eftir mig „Islands Kirke“ á dönsku, sem er kristnisaga íslands, samin fyrir útlendinga. Vona jeg, að sú bók hafi aukið noltkuð þekking manna á Norðurlöndum á sögu íslands og menningu. Fyrra bindi þessa danska rits tilemkaði jeg Guð- fræðideild háskólans í Kaup- mannahöfn í þakkarskyni fyrir að jeg var árið 1917 kjörinn heið- ursdoktor við Kaupm.hafnar há- skóla. Nítján árum síðar var jeg kjörinn heiðursdoktor af guð fræðideild okkar eigin háskóla. Stjórnarstörf. — En nú snúum við okkur aft- ur að biskupsstarfinu og hvernig vður fjell það? — Já, nú getum við vikið að því aftur. Fyrstu árin tvö fóru að miklu leyti í það fyrir mig, að kynna mjer rekstur biskupsem- bættisins. Varð það mjer erfiðara fjmir það, að jeg hafði engan vel kunnUgan til að leiðbeina mjer, þareð fyrirrennari minn Þórhallur Bjarnarson var dáinn, fimm dög- um áður en jeg tók við störfnn hans. Mikið af þeim skrifstofustörf- um, sem biskupsembættinu fylgja, eru vissulega ekki skemtileg, t. d.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.