Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Qupperneq 4
28 LESBÓK M0KGUNBLAÐ8INS þegar kemur til þess að skýra og greiða úr deilumálum um tekjur presta, afgjöld jarða, kúgildi, ítök o. fl., eða að endurskoða skýrslur frá próföstum, messu- skýrslur, fermingarskýrslur. manntöl o. þessh. En þegar frá leið kom jeg vinnu þessari í á kveðið kerfi, svo hún varð mjer auðveldari. Vígslur og vísitasíur, — Hve margir eru prestar og hve margar kirkjur á landinu? — Á mínurn biskupsárum hafa prestarnir verið frá 104—115, og eru nú 106. Af þeim hefi jeg vígt 75. Kirkjur voru 270 er jeg tók við embættinu, og eru nú 276. En tvo presta hafa vígslubisk- upar vígt síðan 1916. Sr. Geir Sæmundsson vígslubiskup vígði sr. Svein Yíking, en sr. Hálfdán Guðjónsson vígslubiskup vígði sr Guðmund Benediktsson að Barði í Fljótum. En auk þess hefi jeg vígt fjóra vígslubiskupa, sr. Sig- urð Sivertsen og sr .Bjarna Jóns- son fyrir Skálholtsstifti, og sr. Hálfdán Guðjónsson og sr. Frjð- rik Rafnar að Hólum. Þá hefir það farið mjög í vöxt hin síðari ár, að söfnuðir hafa óskað þess, að jeg vígði rtýjar kirkjur. Hefi jeg alls vígt 16. Hefir fólk lagt mikla áherslu á það, altaf komið míigur og marg- menni til þess að vera við kirkju- vígslurnar. Samkvæmt „ritualinu“ á biskup að vígja nýjar kirkjur. t kaþólskum sið var þetta föst venja. — Þjer hafið vísiterað allar kirkjur landsins? — Svo má það heita. Jeg hefi vísiterað allar, að undanteknum 5. Þetta gerði jeg á árunum 1917 —1929. Kirkjurnar sem útundan urðu eru þessar: í Furufirði á Ströndum, að Þönglabakka í Þor- geirsfirði. Það kom til af því, að Leirdalsheiðin var ófær, þegar jeg var á ferð þar norður frá, og það enda þótt þetta væri um mitt sumar. Að Ásmundarstöðum á Sljettu kom jeg ekki, vegna þess að sú sókn var að verjast veikindafaraldri, er jeg var þar á ferð, og báðust menn undan því að umferðabanni yrði afljett. Á Húsavík í Norður-Múlasýslu komst jeg ekki heldur. Og að Möðrudal á Fjöllum fyrirfanst engin kirkjan. Alls prjedikaði jeg á vísitasiu- ferðum mínum í 220 kirkjum. Og einu sinni prjedikaði jeg 20 sinn- um á 19 dögum. Það var í Húna- vatnssýslu. Menn kunna að lialda eftir á, að vegabætur og bílar hafi ljett undir ferðalag mitt. En þegar þess er gætt, að eiginlegar „j-firreiðir“ voru úti árið 1929, er auðsætt að jeg hefi farið tiltölu- lega lítið í bílum. Það var í Ár- nessýslunni aðallega, sem jeg fór með bíl, enda vísiteraði jeg þar einna síðast. Hin frábæra ffestrisni. — Það hefir sennilega gerst margt sögulegt í vísitasíuferðum yðar 1 — Jeg get bæði svarað því ját- andi og neitandi. Það útaf fyrir sig er sögulegt, að koma í svo að segja allar kirkjusóknir á þessu landi. En ef jeg á að lýsa þess- um ferðum í einu orði, þá má segja að þær hafi verið fyrir- taks skemtilegar. Ekki get jeg hugsað mjer elskulegri við- tökur en þær, sem jeg fjekk um land alt, jafnt á prest- setrum sem annarsstaðar. Áður en jeg lagði upp í ferðir þessar, hjelt jeg að jeg vissi hvað íslensk gest- risni væri. En jeg vissi það ekki til fulls fyr en jeg reyndi ]® ð sjálfur, hve fallegur þáttur hún er í íslensku þjóðlífi. Jeg minnist þess til dæmis á bæ einum á Vesturlandi. Jeg hafði verið þar í sólarhring með skrif ara og fylgdarmann og 7 hesta. Er jeg spurði húsfrevjuna — bóndinn var ekki heima—- hvað jeg mætti borga fyrir greiðann, komst hún þannig að orði: „Hing- að koma gestir á hverjum degi að kalla allan ársins hring. Veit jeg ekki til þess, að nokkurntíma hafi verið tekin af þeim borgun. Það sæti illa á mjer^að byrja að taka borgun af biskupnum yfir íslandi". Erfiðast var það í vísitasíunum að fá ungdóminn til að koma. \ríða voru unglingarnir smeykir við að láta biskup spyrja sig. Eitt sinn er jeg í vísitasíu bað unglingana að koma upp að alt- arinu, komu þar m. a. tveir full- orðnir karlmenn. Jeg ljet það gott heita og spurði þá. Þeir stóðu sig ágætlega. Það gat ekki farið hjá því, að jeg yrði dálítið útásetningarsam- ur sumstaðar. Og jeg geri ráð fvrir því, að margar aðfinslur mínar hafi gleymst þegar jeg var farinn. En ýmislegt var líka lag- fært, þegar von var á því að bisk- upinn kætni. Víða var þó ekki viljaleysi um að kenna, þó eitt og annað væri ekki lagfært, er viðkom kirkjunum, lieldur því, að eigi var fje fyrir hendi. Yfir- leitt verð jeg að segja, að viðhald kirknanna væri víðast sæmilegt, og sumstaðar ágætt. En hirðing er allvíða hörmuleg á kirkjugörð- unum. Á prestsetrunum hefir orðið mikil breyting á síðustu árum. Á einum sex prestsetrum á landinu eru enn torfbæir. Er það á Val- þjófsstað, Hálsi í Fnjóskadal, á Miklabæ í Blönduhlíð, að Glaum- bæ, Kvennabrekku og Hraun- gerði. Á 48 prestsetrum eru stein- steypuhús, en timburhús á 39. Þó vantar enn prestsíbúðir fyrir 8 presta (að meðtöldum Reykjavík- urprestunum tveimur). Mikið reikningshald fylgir biskupsembættinu, því sjóðir þeir, sem biskup hefir í sínum vörsl- um, nema . samtals um % miljón króna. Er kirkjusjóður mestur þeirra sjóða, nemur kr. 406.000. Utanfarir. En svo eigum við eftir að minn- ast é utanfarirnar. Síðan árið 1914 hefi jeg farið 12 sinnum til útlanda. Það ár fór jeg til Vest- urheims og heimsótti íslensku söfnuðina marga. Fjekk jeg þar nokkur kynni af starfi íslenskra presta vestra og get jeg ekki ann- að en dáðst að því mikla starfi, sem vestanprestarnir inna af hendi í dreifbýlinu vegua kristnihalds landa sinna, og mjer ínun óhætt að bæta við, fórn- fýsi safnaðanna vestra. Að vísu kyntist jeg þá aðallega söfnuð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.