Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Qupperneq 5
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS . 29 Á 400 ára minningu siðbótarinnar í Dann?örku. Skrúðganga bisk- upa og presta til Frúarkirkju. í skrúðgöngunni tóku þátt um 700 manns. Fremstir í fylkingunni gengu dr. Jón Helgason íslands- biskup og Sjálandsbiskup. um, er fylgdu hinni frjálslyndari stefnu, en jeg efa ekki, að alt hið sama megi segja um presta og söfnuði Kirkjuf jelagsins. Arið 1916 fór jeg til Danmerk- ur og hjelt þar fýrirlestra á há- skólanámskeiði, sem haldið var fyrir lýðskólakennara. Námskeið þetta var haldið á Dalum. Fyrir- lestrar þessir urðu undirstaðan að riti mínu „Fra Islands Dæm- ringstid“, sem út kom 1918. Árið 1919 hjelt jeg 6 fyrirlestra í Háskólanum í Höfn við góða aðsókn, um kristnisögu íslands. Urðu þeir upphafið að því, að jeg samdi bókina „Islands Kirke“. I sömu ferð var mjer boðið að halda fyrirlestur við háskólann í Uppsölum. Þar flutti jeg fyrir- lestur, sem síðan var gefinn út á sænsku og hjet Jslands Kyrka och dess Stállning i Kristenheten“. Þá var jeg gestur Nathan Söder- bloms erkibiskups. Viðkynningin við það mikilmenni varð mjer ó- glevmanleg. Árið 1923 hjelt jeg tvo fyrir- lestra við háskólann í Osló og ár- ið 1924 hjelt jeg fvrirlestur í háskólanum í Lundi og 3 ámm síðar í Gautaborg. Hafði jeg þá haldið fyrirlestra við alla háskóla á Norðurlöndum, nema í Stokk- hólmi. Þrisvar sinnurn hefi jeg notið þeirrar ánægju að sækja biskupa- fundi, í Danmörku 1924, í Noregi 1927 og á Finnlandi 1933. Bisk- upafundinn í Svíþjóð 1930 gat jeg ekki sótt vegna alþingishátíð- arinnar hjer heima. En skemti- legri fundi en þessa biskupafundi hefi jeg enga sótt nje uppbyggi- legri fyrir mann í biskupsstöðu. Og ógleymanleg er mjer sú alúð og það vinarþel, sem jeg hefi mætt af hálfu embættisbræðra minna innan Nopðurlanda-kirkn- anna fjögra. Sumarið 1929 sat jeg alþjóða- fund evangeliskra kirkna í Khöfn og 4 árum síðar annan í París. Þar var jeg viðstaddur, er vígð- ur var sænskur sjómannaprestur frá Hull. í veislu, er jeg sat á eftir vígslunni, var jeg kyntur konu hins nývígða prests. Varð jeg forviða, er hún ávarpaði mig á íslensku. Það kom þá upp úr kaf- inu, að hún var bóndadóttir vest- an úr Önundarfirði. Vinnugleði. — En hvernig hafið þjer feng- ið tíma til allra ritstarfanna, með biskupsembættinu, skrifstofu- störfunum, vísitasíunum og öðr- um ferðalögum utanlands og inn- an? — Það er ákaflega einfaldur hlutur. Jeg hefi notað ritstörfin til þess að hvíla mig frá öðrum störfum. Frá barnæsku vandist jeg við að sjá föður minn sístarf- andi. Og ungum kendi hann mjer sálmshendingarnar „ónotuð stund leið allmörg hjá, sem engum fram- ar gagna má“. Vinnugleði föður míns erfði jeg sem betur fór, og henni — ásamt heimili mínu — á jeg að þakka flestár ánægjustund- ir lífs rníns. — Hvaða rit yðar hafið þjer haft mesta ánægju af að semja? — Auk „Kristnisögu Islands“ má jeg þar telja prjedikanasafn mitt „Kristur vort líf“ og æfi- sagnfræðarit eins og Æfisögu Jóns Eiríkssonar, er jeg ritaði á dönsku, æfiminningu föður míns (í Prestafjelagsritinu), Meistara Hálfdán, Hannes Finnsson, og nú síðast Æfisögu sr. Jóns Halldórs- sonar, sem kemur fyrir almennings sjónir í sumar. Svo hefi jeg hjer fullskrifaða eina æfisÖgu í viðbót, segir bisk- up, og rjettir mjer tvö þykk bindi af handriti. Það er æfisaga Tóm- asar Sæmundssonar. — Höfum við þá minst á öll aðalatriðin í starfi yðar, síðan þjer komuð heim fyrir 45 árumV — Nei, svo er ekki. Því þó það hafi verið mikið skemtilegt og ánægjulegt það, sem jeg Ifefi talið upp, þá minnist jeg þess æfinlega, að ekkert starf hefir haft eins mikla þýðingu fyrir mig andlega og prjedikunarstarfið. t 14 ái' prjedikaði jeg launalaust hjer í dómkirkjunni annan hvorn sunnudag frá því um haustið 1894 þangað til um sumarið 1908. Því þó starf mitt hafi mest verið kensla, ritstörf og biskupsstörf, þá var það frá upphafi mín ein- lægasta ósk að starfa sem prest- ur — sem prjedikari. Og því starfi mínu, og hvernig því var tekið hjer í söfrmðinum, á jeg mikið að þakka. ★ ■ Við hættum talinu um hin margvíslegu alvarlegu störf dr. Jóns Helgasonar biskups, og tók- um upp ljettara hjal. Við virðum fyrir okk- ur gamlar Reykjavíkurmyndir eftir þenna 100% Reykvíking, sem þekkir deili á hverjum nefndar- Framh. á bls. 31.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.