Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1939, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
31
um karli, sem enn er á lífi. Jón
„yddú“ var hrekkjóttur í upp-
vexti, en svo fimur, að til þess
var tekið. Hann var og ágætur
vinnumaður til hvers er taka
þurfti, og eru fáeinar smásagnir
til um hann.
★
lafur hjet maður Sigurðs-
son. Hann bjó í Húsagarði
á Landi, ókvæntur var hann og
átti ábýlisjörð sína. Hann var að
langfeðgatali kominn frá Torfa í
Klofa og Lofti ríka (fæddur ná-
lægt 1848). Fremur var hann lít-
ill vexti og ekki mjög efnilegur,
tileygður og nærsýnn, hagorður
vel og fróður um margt, glettinn
og gamansamur og ágætur í við-
kynningu. Ólafur var vermaður í
Þorlákshöfn í margar vertíðir og
þótti allgóður háseti. Hann sagði
þeim, er þetta skrifar, svo frá —
þeir voru lagsmenn 1894 og 1895:
Að í Dalseli undir Eyjafjöllum
hefði verið kerling ein, sem Yil-
borg hjet. Hún hefði dáið um
1800 og verið þá talin 100 ára,
hefir eftir því verið fædd um
1700, líklega þó nokkuð seinna.
Hún hefði vérið fædd í hellinum
í Henglinum (Skeggjanum) og
verið dóttir einhvers af útilegu-
mönnum þeim, sem getið hefir
verið.
Hún hafði venð mjög undarleg
í skapi, vildi aldrei um útilegu-
menn tala, giftist ekki og átti
aldrei barn. Þegar húsmóðir henn
ar Ó1 börn sín, var kerling jafn-
an hin reiðasta og kvað maklegt
þó húsmóðirin fengi að kenna á
sínum hlut, því þetta væru sjálf-
skaparvíti, og verða þar að auki
að stríða við þessa óþægu krakka
í viðbót og hafa aldrei næði til
nokkurs hlutar.
' Ólafur trúði þessu um kerlingu
og kvaðst hafa þetta eftir þeim
mönnum, er vel inundu hana, en
hvort þar hefir verið rjett sagt
frá í alla staði, skal hjer ósagt
látið.
Hefi jeg svo engu við að bæta
Um hellirinn, því jeg hefi aldrei
orðið svo frægur að skoða hann,
því til þess þarf að gera sjer
sjerstaka ferð, ef vel ætti að vera.
En sjálfsagt hefir liellir þessi ver-
ið notaður oftar sem nokkurskon-
ar þrautalending í vaiidræðum,
þegar stór hegning eða líflát lá
við smávægilegum afbrotum.
Þ. S.
. Það er gaman að
vera biskup.
Framh. af bls. 29.
manni, sem í Reykjavík hefir ver-
ið alt frá dögum Skúla fógeta og
fram að síðustu aldamótum. En
að því kom, að Reykjavík yrði
svo mannmörg, að Jón Helgason
gat ekki þekt hjer hvefn mann.
Og ekki höfum við minst á alt
það, sem hann hefir skrifað um
Reykjavík fvr og síðar.
— Og hjer hafið þjer þykkar
teiknibækur með myndurn.
— Það eru kirkjur landsins.
Jeg gaf mjer altaf tíma til þess,
hvar sem jeg kom, að teikna
mynd af kirkjunni. Þetta tókst
svo vel, vegna þess m. a. hve
framúrskarandi heppinn með veð-
ur jeg var altaf á vísitasíuferðum
mínum.
Þá kvaddi jeg biskupinn og
fór. En þegar jeg gekk norður
Tjarnargötuna var jeg að velta
því fyrir mjer, að þarna hefði
hann í einni setningu sagt mest
um sjálfan sig og alt sitt starf.
Því hvernig í lifandi ósköpum
er hægt að ferðast á he'stbaki í
allar kirkjusóknir á Islandi —
og segja að afloknu því einstæða
ferðalagi, að maður hafi alla tíð
veijið svo einstaklega lieppinn
með ferðaveðrið. Sá maður, sem
lítur svo björtum augum á tilver-
una, hann á áreiðanlega ótæm-
andi sólskin í sjálfum sjer.
Skyldi það ekki vera sú birta,
það sólskin, sem hefir gefið þess-
unr manni þrek og dug til þess
að afkasta meðalmannsverki og
vel það í frístundum sínum, til
þess að „hvíla sig frá störfum"
upp á þann sjerkennilega hátt, að
vinna erfiðari og vandasamari
verk.
V. St.
Skák nr. 51.
AVRO Skakþingið.
Franski leikurinn.
Hvítt: R. Fine.
Svart: J. R. Capablanca.
1. e4, e6; 2. d4, d5; 3. Re3, Bb4;
4. e5, c5; 5. Bd2, cxd; 6. Rb5,
BxB+; 7. DxB, Rc6; 8. Rf3, f6;
9. Df4!, Rh6; 10. Rd6+, Kf8;
11. Bb5 !, Rf7; (Ef 11....Rxp?;
þá 12. RxR, og ef DxR; þá 13.
Rg6+ og hvítt vinnur drotning-
una) 12. RxR, KxR; 13. BxR,
pxB; 14. pxp, pxp; (Betra en
Dxp, vegna 15. Dc7+, og síðar
Dxc6) 15. Re5+, (Hvítt nær nú
peðinu sínu aftur og öðru peði að
auki. Auk þess á hvítt drotningu
og riddara á móti drotningu og
biskup, sem er talið betra) 15.
.... Kg7; 16. Dg3+, Kf8; 17.
Rxp, D7d; (Rangt væri að reyna
að valda peðið. Ef t. d. 17 ....
Db6; þá 18. Dd6+, Kg7; 19. h4!,
(Ógnar 20. De7+ og 21. h5+, eða
20. Hh3 og 21. Hg3+, sern er
hvortveggja eyðileggjandi fyrir
svart) 18. Rxd4, e5; 19. Rb3,
Df5; (Svart á peði minna og
slæma kongsstöðu, en hinsvegar
sterk miðpeð) 20. Dd3, d4; 21.
0—0, Ilg8; 22. f4, (Ekki gott. 22.
DxD, BxD; 23. f4, hefði að lík-
indum nægt til vinnings)
þá Hag8) 26. Rc5, Bxg2!!; 27.
HxB, Hag8!; (Capablanca berst
eins og ljón. Ef 28. Hxll, þá
DxH; 29. Khl, Df3+!) 28. He2!,
pxp; 29. Rb7!, Dd5; 30. IIxH.
HxII+; 31. IIg2, HxII+; 32.
DxH, f3; 33. Dh3, Dg5+; 34.
Dg3, Dcl+; 35. Kf2, De3+;
jafntefli.