Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1939, Qupperneq 1
JWorðwwMaj&siiiis
17. tölublað. Sunnudaginn 30. apríl 1939. XIV. árgangur.
litl«lifa>|mii«H)t b.f.
írski lýðveldisherinn
og hryðjuverk hans.
Eftir Birgir Kjaran.
London í mars.
inmunatið, þó enn sje vetur
eftir almanakinu, vorblíða,
10 stiga hiti, enda eru kirsuberja-
trjen farin að skreyta sig með
sínum fallegu bleiku blómum. Hjer
og J>ar gægjast marglitir krók-
usar upp úr moldinni.
Fólkið strevmir í samfeldum
hópum út í skemtigarða borgar-
innar til þess að njóta vorblíð-
unnar. Við Marbel Areh er iðandi
mannhaf. Þar mætist fólk úr
mestu umferaðrgötunum. Flestir
leita út í Hyde Park til þess að
njóta þar friðsældar úti í náttúr-
unni, hvílast frá skrölti og skark-
ala stórborgarlífsins.
Alt í einu heyrast þangað ógur-
legar drunur og brestir. Fólkið
skelfist. Hvað er á seiði? Hvaða
stórslys hefir nú komið fyrir í
heimsborginni: Hefir gasgeymir
sprungið? Flugvjel mist niður
sprengju? — Eða —??? Menn
veigra sjer við að liugsa þá hugs-
un til enda.
En undir eins og fólk hefir átt-
að sig hleypur hver sem betur
getur í næsta síma eða eitthvað
þar sem hann getur spurst frjetta.
Og helst er hringt í númer 999,
Scotland Yard. Þar er svarað:
„Tilraun var gerð til að sprengja
„Grand Union skurðinn“. Níi er
spurt og spurt. Hverjir gerðu
De Valera heldur ræðu á fjölmenn-
um útifundi.
sprengjutilræðið ? Hefir náðst í ill-
ræðismennina í o. s. frv. En Scot-
land Yard svarar engum slíkum
spurningum. Menn verða að láta
sjer nægja ágiskanir.
Svo koma kvöldblöðin. Þar var
sagan sögð. Það var I. R. A. sem
gerði tilraun til þess að sprengja
stíflugarðinn við Grand Union
skurð. Litlu munaði að garðurinn
gerspringi og stórkostlegur vatns-
flaumur flæddi yfir margra fer-
kílómetra svæði. Sprengingadrun-
urnar heyrðust í margra mílna
fjarlægð. Þetta sögðu fvrirsagnir
kvöldblaðanna, er almenningur
reif í sig úr höndum blaðasalanua.
Frjettin berst óðfluga um land-
ið, um heiminn. ,.Ein I. lí. A,-
sprengingin enn“, segja menn.
„hver og hvar verður sú næsta?“
En hvað er J)etta I. R. A.? í
Englandi vita menn Jmð — máske
alt of vel. Uti á Islandi hafa menn
heyrt um J>að, en margir sennilega
ekki gert sjer grein fyrir því sem
hjer liggur bak við, þekkja ekki
hina löngu sögu, hinn margra
alda gamla aðdraganda að þeim
sprengingum og skemdaverkum
sem uú ógna Bretum heiina í
Jieirra eigin landi.
Það stríð sem hjer er háð er
750 ára gamalt. En I. R. A. er
skammstöfun á nafninu „Irish
Republican Armv“ — írski lýð-
veldisherinn. Sá her er leynileg-
ur. En hann er mjög vopnum bú-
inn og lýtur herstjórn og her-
stjórnarlögum engu síður en þei(
sem vinna í dagsbirtunni.
En um hin löngu tildrög og
harmsöguna miklu um sambúð og
deilur Breta og Tra ætla jeg að
fara hjer nokkrum orðum.
★
Upphaf enskra yfirráða í Ir
landi var það ei Hinrik II. Breta-
konungur lagði landið undir sig'