Lesbók Morgunblaðsins - 30.04.1939, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
131
einungis var skipað liðsforingjum
xir heimsstyrjöldinni. Þessi sveit
var sett I. R. A. til höfuðs og
átti að svara öllutn árásum og
ógnum í sörnu mynt og skjóta
meðlimi I. R. A. þótt einungis lík-
ur væru fyrir sekt þeirra. Og bar-
áttan geisaði áfram með aukinni
grimd og harðneskju á báða bóga.
En Englendingum tókst ekki þrátt
fyrir alt að ráða niðurlögum írskra
sjálfstæðismanna, sepi nú höfðu
sett upp sína eigin leynilegu rík-
isstjórn, „Irish Republican Govern
ment“. Um síðir varð stjórninni
í Downing Street ljóst, að aðrar
leiðir en harðstjórn og ofbeldi
væru affarasælii og írum voi’u
gerð friðartilboð. Ilin 26 hjeruð
(county) Suður-írlands áttu að fá
beina stjórn og þing í Dublin eu
hin sex hjeruð í Ulster áttu að
greinast frá Suður-írlandi og á-
fram að vera í föstum tengslum
við England.
Hægfara foringjar Ira, Mr.
Michael Collins og Mr. Arthur
Griffith, gengu að þessum samn-
ingum og í desember árið 1921
voru þeir undirritaðir af Mr.
Lloyd George og Mr. Michael
Collins. Þar með hafði Mr. Micha-
el Collins undirritað siun eiginu
dauðadóm.
Merihluti I. R. A., undir for-
ystu de Yalera, neitaði að viður-
kenna samninginn við England.
Hanu vildi stofna írskt lýðveldi al-
gerlega óháð breska heimsveldinu.
Mr. Collins, sem nú var orðinn
forsætisráðherra iiinnar nýju írsku
stjórnar, skipaði I. R. A. að leggja
niður vopnin. Liðsmenn I. R. A.
kærðu sig kollótta um skipanir
Mr. ColHus, Iijeldu sitt eigið þíng
í Dublin og stofnuðu sína eigin
stjórn. Eins og sakir stóðu átti
Mr. Collins einskis annars úrkost-
ar, en að hefja harða baráttu
ge£rn I. R. A. En lýðveldisherinn
galt honum andófið með því að
ráða hann af dögum ellefu mán-
uðum eftir að hann hafði undir-
r
skrifað samninginn við England.
Upp frá þessu hefst ógnaröldin
fyrir alvöru, því að Mr. Cosgrave,
sem tekið hafði við af Mr. Collins,
ákvað að láta hart mæta hörðu og
bannaði starfsemi I. R. A. En lýð-
veldisherinn starfaði engu að síð-
ur leynilega áfram, og undir for-
ystu Lian Lynch formanns herfor-
ingjaráðsins, Dan Breen og de
Valera guldu þeir stjórninni fang-
elsanir og aftökur með morðum
og árásum. Um eitt skeið lögðu
þeir t. d. sjerstaklega fyrir sig
að myrða þingmenn og brenna
hús þeirra. Á skömmum tíma rjeðu
þeir þrjá þingmenn af dögum og
einn skrifstofustjóra í innanríkis-
ráðuneytinu.
En stjórninni í Dublin óx smám
saman fiskur um hrygg og henni
tókst að koma á fót her, sem boð-
ið gat I. R. A. byrginn. í apríl
1923 voru Lian Lvnch og liðs-
menn hans hraktir á fjöll. Síðar
var hann handtekinn og tekinn ai
lífi ásamt Dan Breen og 69 öðr-
um foringjum I. R. A. De Valera
tókst enn sem fyr að komast und-
an, og nú gaf hann I. R. A. skip-
unina: „Ilættið að skjóta!“ En
sambandið milli Dev, eins og Ir-
ar nefndu hann, og I. R. A. var
nú farið að minka og sintu þeir
því ekki skipun hans, en hjeldu
ofbeldisverkunum áfram eftir
mætti.
Um þessar mundir fjell de Val-
era í hendur stjórnarinnar og var
dæmdur í 10 mánaða fangelsi. Er
hann kom aftur úi fangelsinu var
liann að mestu kominn úr sam-
bandi við I. R. A. Stofnaði hann
þá sinn eiginn flokk „Fianna
Fail“, sem á friðsamlegan hátt
vildi koma á fót sjálfstæðu írsku
lýðveldi.
Um stundarsakir dró mjög mátt-
inn úr I. R. A. Ljetu þeir aðeins