Lesbók Morgunblaðsins - 28.01.1940, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGTJNBLABSINS
27
an. Hann og afkomendur lians
rjeðu ríkjum í Mexico í mörg ár.
Þeir voru að því leyti frábrugðn-
ir Indíánum, að þeir voru hvítir
á hörund, bláeygir með ljóst
skegg. Þetta bendir til þess, að
Atlantisbúar hafi verið Indoger-
manar eða forfeður Indogermana.
Um það leyti sem Spánverjar
komu, höfðu prestarnir spáð því,
að von væri á Quetzakoatl að
nýju. En þeir ljóshærðu sem komu
voru engir guðir, langt í frá.
Það undruðust Spánverjar mest,
að Aztekar tilháðu krossmarkið.
Þeir töldu þetta einskonar djöf-
ulsins töfrabrögð. En sennilegra er
að þetta hafi verið forboði þess,
að fagnaðarboðskapurinn yrði boð-
aður þar vestra.
Einkennilegast af öllu er það,
hve orðið sem merkir guð var líkt
í Austur- og Vesturálfu. Á sans-
krit er guð Dyaus, á latínu Zeus,
á grísku Theos eða Zeus, og á
mexicönsku Teo eða Seo. Þetta
bendir á samhengi og skvldleika
yfir hafið.
„Kvöldlandið“ í grísku sögun-
um bendir til Atlantis. Hesperidur
voru dætur Atlas. Garðarnir er
þær hirtu voru í fjarlægri eyju í
vestri. Er Atlantis sökk gerðist
einskonar „Eyðing Vesturlanda“.
En því sökk Atlantis? Vegna
þess að íbúarnir fóru illa með
gáfur sínar. Þeir vanhelguðu þekk-
ing sína með því að nota hana í
eiginhagsmuna skym til þess að
ná völdum, auðæfum og til þess
að auðmýkja aðrar þjóðir eða út-
rýma þeim. Dulrænar gáfur sínar
notuðu þær í þjónustu svarta
galdurs.
— Nei, þetta er ekki heiðarlegt.
Lánið mjer regnhlíf.
Undir dögun
Þótt ekkert jeg kunni að yrkja,
jeg ætla að reyna það nú,
er vilja þeir kærleik guðs kyrkja
og kenna að ónýt sje trú.
Að leikurinn hildar títt háður —
já, hver er sem veit ekki það? —
var grimmur og guðlaus oft áður,
en guð var þó sínum á stað.
Ef fullljóst þeim finst hann ei
sýndur,
þá fipast þeir hugdöpru menn
og halda að hann sje nú týndur,
í himninum býr hann þó enn.
Oft margur vann bræðravíg böðull
hjá bragningum fyrrum á tíð,
upp einhver þó reis af því röðull
í renningu dagsins um síð.
Þótt virðist oss mannúð og menn-
ing
nú molast, sem glatað sje alt,
og dragast sú dagshrúnar-renning
þú, dapri vin, muna þó skalt,
að drottinn veit fyrðum æ fleira,
þótt fari’ ætíð sjálfkosinn veg,
að guð sjálfur getur æ meira,
þótt gatan sje torkennileg.
Þótt hreiðist nú myrkviðris
mökkur
af morðum um höf öll og láð,
mun hirta það ragnanna rökkur
fyr’ rjettlæti, sannleik og náð.
Svo megi því ljettara linna,
þitt lið til þess veita mátt þú;
og viljirðu veg til þess finna,
þú veist hann er bænir og trú.
15. jan. 1940.
K. D.
Sóknarprestur einn hafði farið
út í kirkju til að sækja hók, sem
hann hafði gleymt í sakristíunni.
Á leið sinni heim á prestsetrið hitti
hann bónda, sem hafði orð á sjer
fyrir að vera orðljótur.
— Mjer er sagt að þú bölvir
og ragnir mikið, Jón minn, sagði
prestur.
— 0, já, það kemur fyrir, að
maður tekur fullmikið upp í sig,
sagði bóndinn. Presturinn prjedik-
ar líka öðru voru, en jeg held að
hvorugur okkar meini neitt sjer-
stakt með þessu.
Skák.
Alþjóðaskákþingið í Argentínu
1993.
Drotningarbragð.
Hvítt: Ásm. Ásgeirsson (ísland).
Svart: J. L. Astorias (Guatemala).
1. d4, Rf6; 2. c4, e6; 3. Rc3, d5;
4. Bg5, Be7; 5. Rf3, Rbd7; 6. e3,
0—0; 7. Hcl, c6; 8. Bd3, a6;
(Betra var pxp.) 9. cxd, cxd;
(Venjulegra er hjer exd; en
reynslan hefir sýnt að vörnin verð-
ur mjög erfið fyrir svart eftir
þann leik.) 10. Bbl, h6; 11. Bh4,
b5; 12. Re5, (Betra var 0—0.) 12.
.... Bb7; (Svart gat einnig, sjer
að skaðlausu leikið 12.....RxR.)
13. RxR, RxR; (Betra var 13. ..
.. DxR; og ef 14. BxR, þá BxB;
15. Dd3, Hfc8; og svart á ágætt
tafl.) 14. Dd3, f5; 15. Bg3, Hc8;
16. 0—0, Rf6; 17. Re2, De8?;
(Svart virðist óttast R—f4—g6,
sem er þó öldungis óttalaust. Ein-
faldast og e. t. v. best var 17. ..
.. Dd7; og skifta síðan upp hrók-
unum, eða taka yfirráðin á c-lín-
unni að öðrum kosti) 18. HxH,
BxH; 19. Hcl, (1-línan er
töpuð og þar með skákin.
Pramhald skákarinnar er ágætt
dæmi þess hvers virði það er að
ná yfirráðum á opinni línu.) 19.
.... Re4; (Tilraun til að bjarga
7. reitalínunni.) 20. Be5, Bd6; 21.
f3, BxB; (Þvingað.) 22. pxB; Rg5;
23. Rf4, Dd7; 24. h4, Rf7; 25. Rg6,
He8; 26. Dc3, Bb7; 27. Dc7, Hd8;
Hc8; 29. HxH, BxH; 30. Dc5!,
(Hótar bæði 31. Df8+, og síðan
Re7, og 31. DxB+. Db8 var líka
gott.) 30...... Dd8; 31. DxB,
DxD; 32. Re7+, og svart gaf
nokkrum leikjum seinna.