Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Síða 4
428 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ISLENSKUR LISTA- MAÐUR Á 17. ÖLD SEINASTA heftið af Island ica prófessors Halldórs Hermannssonar fjallar um hin ýmsu handrit, sem til eru af Lögbók Islend- inga, sem venjulegast var nefnd Jónsbók. Fylgja aftan við 30 ljósmyndir af teikningum í þess- um handritum. Hljóta þessar myndir og skrautstafir að vekja furðu hjá þeim, sem lítt þekkja til fornra handrita, og munu víst flestir dást að því, hve mikil vinna hefir verið í það lögð, að skreyta handritin. Enn fremur mun margan manninn undra það, hvað þetta er haglega gert og með miklum listsmekk. Og víst er um það, að skrifarar nú á dögum mundu hvorki hafa eirð í sjer til þess að dútla við slíkar skreytingar, nje heldur mundu þeir færir um það. Þótt ljósmyndir þessar sje góð ar, gefa þær þó hvergi nærri fulla hugmynd um það, hve mjög hefir verið vandað til skreytingar handritanna, því að myndirnar eru í einum lit, en skreytingarnar eru með ótal lit- um og jafnVel fegraðar tneð, skíru gulli. Þegar maður blaðar í þessari bók próf. Halldórs Hermanns- sonar, vekur það fljótt athygli, hvað hánn hefir valið margar myndir úr einu handriti. Þær eru 10 alls, eða þriðjungur allra myndanna. Þessar myndir hafa allar á sjer ótvíræðan listasvip. Hyggja þeir prófessor Halldór og Matthías þjóðminjavörður Þórðarson, að þær sje eftir Björn Grímsson, sem kallaður var mál- ari, og að hann muni hafa skrif- að handritið. Á því er að vísu ekkert nafn, en ýmis rök eru færð að því þarna, að Björn muni vera listamaðurinn. Um það segir svo í bókinni: Fyrsti eigandi handritsins, eft ir því sem næst verður komist, hefir verið Þórunn ríka, dóttir Jóns Vigfússonar á Galtalæk í Rangárvallasýslu. Árið 1613 eða 1614 gifUst hún Sigurði syni Odds Einarssonar biskups. Hann dó 1617. Þórunn giftist aftur 1620 Magnúsi Arasyni frá ögri, og gaf hún honum handritið. En hann hefir aftur gefið það Jóni syni sínum, eftir því sem á hand- ritinu stendur: „Mínum unga elskulega syni Jóni Magnússyni eignast nú þessi bók með ást- semd, er hans dygðaríka móðir gaf mjer áður. Og bið jeg að ekki í burtu fáist til hans athuga aldurs“. Þrátt fyrir þetta gaf Magnús handritið aftur árið 1626 Magnúsi Björnssyni á Munkaþverá: „Mínum elskuleg- um vin Magnúsi Björnssyni er þessi bók af mjer Magnúsi Ara- syni til eignar og þakklætismerk is fengin Anno 1626“. Þetta má skýra á þann hátt, að Jón Magn- ússon (f. 1620) var á unga aldri fenginn Magnúsi Björnssyni til fósturs, og gekk Jón síðar að eiga dóttur hans. Sennilega hef- ir Magnús Arason gefið nafna sínum bókina um leið og hann fekk honum son sinn til fósturs. Þórunn var frænka Gísla Há- konarsonar lögmanns, og hann var svaramaður hennar þegar hún giftist í fyrra skifti. Gísli var af hinni nafnkunnu Hlíðar- endaætt, og hafði stundað nám víða erlendis. Mágur hans, Þor- leifur Magnússon á Hlíðarenda, hafði einnig stundað nám víða erlendis, þar á meðal í Amster- dam, að því er sumir segja. Það er þess vegna alls ekki ósenni- legt að þessir lærðustu menn í ættinni hafi átt hollenskar, flæmskar og aðrar erlendar myndabækur, og að þaðan hafi skrautritarinn fengið fyrirmynd ir sínar. Að minsta kosti hygg jeg að handritið sje upp runnið á þessum slóðum, og þar sem það er kunnugt að Björn Grims- son var þessum mönnum hand- genginn, þá er ekkert sennilegra heldur en að hann hafi skrifað bókina, eða að minsta kosti skreytt hana. Og ef trúa má sögu, sem um hann gengur, þá hefir hann dvalist á Hlíðarenda 1612. Upprunalega bandið er enn á bókinni og er á því útlent hand- bragð. Á framhlið er mynd af Judith og á bakhlið mynd af Jo- el, og á báðum ártalið 1614. Það getur verið að þetta hafi þá sjer- stöku merkingu, að Gísli Hákon- arson eða einhver af þeirri ætt hafi gefið Þórunni bókina í brúð argjöf, þegar hún giftist Sigurði. Til gamans má geta þess hjer, að sagt er að faðir Gísla hafi látið hann læra Jónsbók utan bók- ar.-------- Það sem hjer er sagt um hin- ar útlendu myndabækur, á við það, að á mannamyndum í bók- inni má sjá erlendan (flæmsk- « an) klæðaburð. Björn Grímsson var sonur síra Gríms Skúlasonar í Hruna, en hann hefir skrifað eitt af þeim handritum, sem enn eru til af Jónsbók, og sennilega tvö önnur. Nú vill svo vel til, að menn vita með vissu, að Björn Gríms- son hefir skrifað eitt af Jónsbók- ar handritunum. Það stendur á titilblaði þess, að hann hafi skrifað það fyrir systur sína ár- ið 1603. Skriftin á því er ekki al- veg eins og á hinu handritinu, sem hjer er um að ræða, en þó er munurinn ekki svo mikill, að eigi hafi rithönd manns getað breyst svo á 10 árum. Og merki- legt er það, að samskonar mynd

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.