Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.03.1941, Blaðsíða 4
108 LESBOK MORGUNBLAÐsíNS Frá höfninni í Bergen. um einkennisbúningum á leið þeirra frá Narvíkur-vígstöðvunum. Árásir á spítala. Norðmenn kunnu því illa, að Þjóðverjar misnotuðu hvíta fána, sem oft kom fyrir á hinn svik- samlegasta hátt; þeim var heldur ekki um er Þjóðverjar gerðu loft- árásir á sjúkrahús, spítalaskip og sjúkrabíla, sem þeir komu auga á. Þetta var gert á svo skipulags- bundinn hátt, að síðustu tvær vik- ur ófriðarins í Noregi, var norsk- um hjúkrunarkonum og læknum, sagt að vera ekki með Rauða Kross merki á handleggnum og yfirleitt varast að sýna Rauða Kross flögg eða merki, vegna þess að það voru útvalin skotmörk þýskra sprengju- flugvjela og vjelbyssuskytta. Nokkur dæmi eru einkennandi. Þann 29. apríl var gerð sprengju- og vjelbyssuárás á spítalaskipið „Brand IV.“ í Álasundi. Skipið var málað og merkt á þann hátt að ómögulegt var að villast á því. Einn læknir, ein æfð hjúkr- unarkona, ein Lotta, einn sjúkra- bílsaðstoðarmaður og einn maður af áhöfn skipsins ljetu lífið og aðrir særðust. Tvær þj'skar sprengjuflugvjelar flugu í hringi vfir skipið, vörpuðu niður sprengj- um og ljetu vjelbyssuskothríðina dvnja á því. Þann 1. maí var gerð sprengju- árás á spítalaskipið „Dronning Maud“ við Gratangen. Það gerðu tvær þýskar sprengjuflugvjelar og tók^t þeim loks að kveik.ja í skipinu með íkveikjusprengjum. Ellefu sjúklingar ljetu lífið í árás- inni og níu. af áhöfninni. 33 manns særðust og ljetust nokkrir þeirra. Þeir, sem köstuðu sjer í sjóinn og reyndu að synda í land, urðu fyrir vjelbyssuskothríð þýsku flugmann- anna. Þann 7. júní, þegar herliðið var flutt frá Norður-Noregi, var ráð- ist á tvö spítalaskip og þeim sökt, það voru „Ariadne“ og „Prins 01av“. Fjórir menn ljetu lífið. . Árásir á varnar- lausa horffara. Kristianssund, óvíggirtur og al- gjörlega varnarlaus bær, þar sern aldrei hefir verið vottur af hern- aðartækjum, varð fyrir stöðugum loftárásum í þrjá daga og nætur. Aðeins eitt hús stóð eftir. Jafn- vel brýrnar, sem lágu út frá borg- inni, urðu fyrir árásum og 15.000 íbúar voru heimilis- og varnar- lausir. Á sama Hátt var ráðist á Molde, Reknes, hið stóra heilsu- hæli fyrir berklasjúklinga, varð fyrir sprengjum og eldur kom upp í því. Til allrar hamingju var bú- ið að flytja sjúklingana burt, því áhugi Þjóðverja fyrir sjúkrahús- um var þá orðinn kunnur. Þegar loftárásin var gerð á Bodö urðu 5000 varnarlausir borg- arar heimilislausir. Þýskar steypi- flugvjelar rjeðust á sjúkrahúsið og vörpuðu íkveikjusprengjum beint á Rauða Kross merkin á þakinu. Öll byggingin varð eitt eldhaf. Það voru 160 sjúklingar á sjúkra- húsinu. Það varð að bera þá út, og allmargir þeirra dóu. Vjelbyssuárás var gerð á konur og börn, sem voru að koma úr kirkju á sunnudagsmorgni, í Borg- und, fyrir utan Álasund. Þýsku flugvjelarnar flugu í hringi um kirkjuna. í Valders varð jarðarför, á leið til kirkjugarðs, fyrir samskonar árás. ★ Enn var það eitt, sem vakti reiði Norðmanna, en það var sá siður Þjóðverja, að binda karla og konur framan á bíla sína, neyða fólkið til að standa á aur- brettum bílanna, og nota það sem skildi fyrir þýsku hermennina í leiftursókn þeirra eftir vegum Noregs. Á sama hátt var ekki nóg með að þýskir fallhlífahermenn leituðu hælis í norskum bóndabæjum, heldur beittu þeir fyrir sig kon- um og börnum, er á þá var ráðist. Jeg minnist atburðar, er nokkr- ir þýskir hermenn, sem leitað höfðu skjóls bak við óbreytta borgara, voru handteknir. Yfir- maður norsku herdeildarinnar spurði .mig, hvort það væri leyfi- legt samkvæmt alþjóðalögum a^ skjóta þessa fanga. Jeg svaraði, að samkvæmt mínu áliti væri það ekki lögfræðileg spurning; vafa- laust fyndist Norðmönnum sjálf- sagt að skjóta alla Þjóðverja, sem handteknir væru í Noregi. Þetta væri stærðfræðilegt atriði. Hvor- um megin voru fleiri fangarf Þjóð- verjar höfðu tekið þúsundir fanga, en Norðmenn aðeins fáa, það virt- ist ekki vera hagsýnt að byrja á því að skjóta þýsku fangana, jafn- vel þó hver og einn þeirra ætti ekki betra skilið. Enginn þýskur fangi var skotinn. En mikill fjöldi þýskra her- manna ljet lífið í orustum. Blóðugar orustur áttu sjer stað á undanhaldi hersveita Hvinden Haug’s. Einkum í Hringaríki, upp eftir til Valders og Gövík. Liðs- foringjanemendahersveitin frá Osló, hermennirnir frá Sogni, sem sendir voru til Valders og hinir ungu hermenn í hjeraðinu vörð- ust vasklega,- og hver einastu deild á skilið að kveðið sje um hana hetjuljóð og hetjuverk þeirra skráð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.