Lesbók Morgunblaðsins - 15.07.1945, Side 6
374
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Annáll heimsstyrjaldarinnar
1939:
Sept. 1.: Kl.,5,45 ráðast Þjóðverj-
ar inn í Pólland og leggja það und-
ir sig á tæpum mánuði.
Sept, 3.: England og Frakkland
segja Þvskalandi stríð á hendur.
Sept. 17.: Rússar ráðast inn í
Pólland.
Sept. 28-: Rússar fá Eistlendinga
og síðar einnig Letta og Lithaua til
að láta af hendi flota- og flugbæki-
stöðvar. Þetta er upphafið að al-
gjörri inlimun þessara rík.ja í Sov-
vjetsambandið. sein gerist sumarið
eftir.
Nóv. 30.: Rússar ráðast á Finn-
lqnd.
1940:
Mars 13.: Finnar og Rússar seinja
frið í Moskvu. I’ar láta Fir.'ar
Rússa hafa stór landsvæði í suð-
austur Finnlandi.
Apríl 9. : Þjóðverjar ráðast inn í
Danmörku, en Danir leggja þegar
niður vöm. Þjóðv. ráðast ínn í Nor-
eg, sem gefst upp eftir tvo mánuði.
Maí 10.: Þjóðverjar ráðast inn í
Holland. Belgíu og Luxemburg. —
Hollenski herinn gefst upþ eftit
fjóra daga, en sá belgiski eftir 18
daga. Þjóðverjar halda áfram sig-
urför sioni inn í Frakkland.
, Júní 10.: Italir seg.ja Englending-
um og Frökkum stríð á hend.ur.
Júní 21.: Hin nýja stjórn Frakk-
lands með Petain marskálk í for-
sætinu, semur frið við Þjóðverja,
sem hernema norður og vesturhluta
landsins. De Gaulle, hershöfðingi
tilkynnir frá London, að baráttunni
fyrir frjálsu Frakklandi muni verða
haldið áfram.
Okt. 28.: ítalir ráðast inn í Grikk
land, en eru hraktir til baka.
1941:
Apríl 6: Þjóðverjar, sem hafa
fengið Ungverja, Rúmena og Búlg-
ara til fylgis við sig. ráðast inn í
Jugoslaviu. Jugoslavar og Grikkir
gefast brátt upp, en skæruliðana
geta Þjóðverjar ekki vfirbugað. —
Sama dag fellur Addis Abeba í
hendur Englendingum og þar með
er heimsveldi ítala í Austur-Afríku
liðið undir lok.
Júní 22.; Þjóðverjar, ásamt Finn-
um Fngverjum og Rúmenum ráð-
ast ii.n í Sovjetríkin, sem þeir áður
höfðu verið í bandalagi við. Inn-
rásin gegur að ósknm, meðan her-
irnir bruna vfir rússnesku sljetturn
ar. en er stöðvuð við Moskv.u.
Des. 7.: Japanar höggva stórt
skarð í ameríkanska Kyrrahafsflpt-
ann í óvæntri árás á Pearl Ilarbour.
Japanar leggja því næst á næstu
máuuðum undir sig næstum allar
eyjarnar á Kyrrahafi suð-austan-
verðu við tiltölulega litla mótspyrnu
sömuleiðis Austur-Indland, en Thai-
land gengur í lið með þeim.
Des. 21..: Hitler víkúr Brauchitsch
yfirhershöfðingja frá störfum og
tekur sjálfur að sjer yfirstjórn
hersins. #
1942:
Ág. 7.: Bandaríkjamenn ganga á
land á eyjunni Guadalcanar og hefja
þar með herferð til að ná aftur lönd
um þeim, er Japanar höfðu oinnið.
Nóv. 4.: Möndulveldin, sem frá
Libyu höfðu komist inn fyrir landa
mæri Egyftalands, eru gersigruð
við E1 Alamein og verða nú ekki
aðeins að láta af hendi það sem
þau höfðu unnið, heldur einrxig alla
Libyu. .
Nóv, 8.: Bandamenn ganga á land
í Norður-Afríku. Þjóðverjar geta þó
hindrað þá í því að leggja undir
sig Tunis.
1943:
Jan. 31.: Þjóðverjar. sem sumarið
áður höfðu lagt undir sig Suður-
Rússland, en verið stöðvaðir við
Staljngrad, bíða nú fullkominn ó-
sigur á þessuin slóðum. Rússar taka
91,000 fanga og byrja nú að vinna
aftur landssvæði þau, er Þjóðverj-
ar höfðu áður tekið.
Maí 12.: Síðustu leifar möndul-
herjanna í Afríku gefast upp og
bandamenn taka 150 þús. fanga.
Jxiní 10.: Bandamenn ganga á
land á Sikilev og mjakast síðan
smátt og smátt norður eftir ítalíu.
Júlí 25.: Mussolini er rekinn frá
völdum og settur í varðhald, en er
bjargað síðar fyrir djarflega fram-
göngu nokkurra þýskra hermanna.
11in nýja ítabka stjórn semur um
uppgjöf og géngur í lið með banda-
mönnum.
1944:
Jan. 3.: Rússar, sem á einu ári
höfðu tekið aftur næstum öll lands-
svæði, er fallið höfðu í hendur
Þjóðverja í Mið- og Suður-Rúss-
landi, fara nú yfir landamæri Pól-
lands.
Júní 4.: Róm hernumin af banda-
mönnum.
Júní 6.: Hin mikla innrás er gerð
! Xorður-I-'rakkland og skömmu síð-
ar önnur landganga bandamanna í
Suður-Frakkland. Þjóðverjar veita
í fyrstunni öfluga mótspymu, en í
ágúst fara þeir mjög halloka og
næstum alt Frakkland og Belgía
losna undan oki þeirra. í september'
hægist um á vígstöðvunum.
Ág. 23.: Parísarbúar gera upp-
reisn og frelsa borgina með hjálp
hersveita bandamanna.
Sama dag gefast Rúmenar upp
og ganga í lið með bandamönnum.
Sept. 2.: Finnar slíta stjórnmála-
sambandi við Rússa.
Okt. 5.: 1 »amlamenn <ranc:a á land
í Grikklancli og Þjóðverjar livera
(