Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS T 483 sem. Ólafilr Pái setti bæ sinn. Þar er enn fagurt sem forðuijt, þótt skógurinn sje liorfinn. Fjallahring- urinn er hinn sami og blálygn fjörð- urinn, og Laxá liðast niður dalinn rjett við túnið. Ræktunarskilyrði eru þar mikil, og þar er vel búið og reisulega. Fyrir sunnan ána, andspænis Hjarðarholti, eru Hösk- uklsstuðir, bær Ilöskuldar Dala- kollssonar. Vestan við túnið er blómum skreyttur hvammur. Lítill lækur niðar þar og hjalar við hóf- sóley. Ef hann fengi mál, mundi hann herma okkur sorgleg örlög írsku konungsdótturinnar, Mel- korku. 1 hvaunninum undi hún með syni sínum ungum og rakti honum þætti úr dapurri ævi sinni. Tilfinn- ingar hennar voru særðar og stór- lætið ósvcigjanlegt, þcss vegna hafði hún látist vera mállaus. 1 Búðardal söng kórinn við ágæt- ar undirtektir, og er kvöldverður hafði verið snæddur’í boði ung- mennafjelagsins, var haldið sem leið liggur vestur í Saurbæ. Nú för- um við um landnám Auðar djúp- úðgu, landnámskonunnar mikil- hæfu. Þcgar ekið er fyrir Hvamms- fjarðarbotn, er Hvammur, þar sem liún settist að, skammt fyrir utan fjarðarbotninn. Bærinn Hvammur, sem nú er kirkjustaður og prests- setur, stendur í allvíðáttumiklum dal. Þar er veðursæld mikil og gróðursælt. lllíðin austan megin dalsins er vaxin miklii og nokkuð stórvöxnu kjarri. Ðalurinn allur hefir efalaust verið skógi klæddur til forna. Mörgum þykir fagurt í Ilvammi. En fegurðin hefir verið meiri og fjölbreyttari, þegar Auð- ur djúpúðga nam þar land, og er ekki líklegt, að hún hefði gctað valið sjer hlýlegri bústað. Fyrsti bærinn, sem við förum hjá í Saui-bænum, er Bessatunga. Þar átti hann heima óðsnillingurinn Stefán fró Hvítadal, seinustu árinn, sem hann liiði. Langt til vegg.ja, heiði hátt, hugann eggja bröttu sporin, hefði jeg tveggja manna mátt, mundi jeg leggjast út á vorin, Kvað hann einhverju sinni. Jcg kynntist Stefáni aldrei, en jcg býst við, að hann hafi verið svo mikið barn náttúrunnar, að fátt hat'i lyft huga hans hærra í Bragaheiininum en töfrar sólar og sumars. Þegar við ókum niður Saurbæ- inn, mættum við svanahópi, sem heilsaði okkur með sínu fagra, al- þekkta kvaki. Það var kærkomin kveðja, er hlýleiki íylgdi og vin- arhugur frá æskustöðvunum. Þá varð eiuum hagyrðingnum í ferð- . inni að orði: Þegar Saurbæ svásan leit, sætir tónar klingja, hcilsaði fögur svanasveit svönum Breiðfirðinga. ]Jegar komið er í Saurbæinn, blasir við blómlcg byggð og gróð- ursæl. Jeg hefi óvíða komið, þar sem mjer líst fegurra og byggilegra um að litast en þar. A báðar hend- ur eru há og syipmikil fjöll, eins og þau eru tígulegust hjer á landi. Að sunnan og á vinstri hönd er fyrst Illviti, þá Þverfell með Múla- hyrnu og vestast Torffjall, sem gengur fram í Tjaldaneshyrnu. Að norðan og á vinstri hönd er IIvols- fjall með Brunnárhyrnu og Holta- hyrnu vestar. A Kirkjuhóli var fjöldi fólks saman komið til þess að hlýða á sönginn, þótt komið væri fast að miðnætti. Var honum vel tekið, cn að honum loknum var setst að kaífidrykkju í boði upgmennafje- lagsins „Stjarnan". Því næst hófst danslcikur í samkomuhúsi, sem er

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.