Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Side 5
LESBÓK M0KGUNBLAÐS1N8 485 Ferðafólkið við Flateyjarkirkju. (Ljósm.: Vignir). biðu flestir eftir sólaruppkomunni. Þessi nótt var einmitt Jónsmessu- nóttin. Þjóðtrúin segir. að þá sje hœgt að hreppa eina, ósvikna ósk, ef yjettir siðir og saei'ingar eru við hafðar. Og hver vill ekki falla í þann lukkupottf En sólarupprásin í Flátey var dásamleg og niinnis- stæðasti þáttur ferðarinnar. Fvrst sást sólin eins og örlítil rönd eða geii'i yfir Vestfjarðahálendinu. Ilún stækkaði ört. og elfur ljóss og lita óx stöðugt. Geislarákiii sindraði i haffletinum, og sáum við greini- lega hvernig hún breikkaði um leið og sólin hækkaði á lofti. Birtan og litbrigðin breyttust sífellt og tóku á sig slíka fegurð og töfra, að undr- un sætti. Við áttum erfitt með að slíta okkur frá þessum stórfeng- lega sjónleik vornæturinnar. En að lokum gengum við þó til hvílu, sennilega hvert með sína ósk í huga. Það er fallegt í Flatey. Eyjar og sund blasa við hvert sem litið er. En staðurinn ber merki fornrar vel- megnunar og fjölbýlis, en ýms mannvirki virðast vera að ganga úr sjer. Það stafar sennilega af fólksleysi, enda sagði mjer einhver. að fólkið hefði fækkað þar um helming á síðast liðnum 20—30 ár- um. Ilið sama mun vera upp á teti- ingnum með aðrar ey.jar. á Brefða- firði. Þær eru að leggjast í eyði vegna skorts á vinnukrafti. í Flat- ey er knýjandi þörf fyrir frysti- hús, og þar þyrfti að rísa upp fiski- mjölsverksmiðja eða einhver annar fiskiðnaður, því að sjórinn cr auð- lind eyjarinnar. Sunnudaginn 24. júní söng kór- inn í Flateyjarkirkju kl. tvö síð- degis. Fjölmenni var og undirtekt- ir ágætar, og að einu leyti var dag- urinn óvenjulegur þar. Það var al- ger nýlunda, að fjörutíu manna hópur heimsækti eyna með söng. Strax að honum loknum, hurfum við frá.Flatey, þakklát eyjaskeggj- um fyrir elskulegar móttökur, og skyldi þá haldið til Stykkishólms. Þegar við fórum frá Flatey út. Breiðafjörð, var sjór spegilsljettur og veður fagurt, enda kom það sjer vel. Við vorum svo heppin, að einn kórfjelaga er ágætur harmoniku- leikari. Ilann Ijek nú dillandi dans- lög suður Breiðafjörð, en við döns- uðum á þilfarinu á „Baldri“. Um kvöldið voru tvær söng- skemmtanir hafðar hver eftir aðra í samkomuhúsi Stykkishólms. Þeg- ar síðari sörigskemmtuninni lauk. var setst að kaffidrykkju í boði Stykkishólmshrepps. En því næst hófst dansleikur í samkomuhúsinu. og skenímti fólk sjer þar hið besta fram undir morgun. Stykkishólmur stendur á nesi, sem gengur nokkuð lit í Breiða- fjörð, skammt fyrir utan mynni ílvammsfjarðar. Ncs þetta er hið fræga Þórsnes, þar sem elsta þing á landinu, Þórsnesþing, var haldið. Bær er á nesiu, ekki laugt frá Stýkkishólmi, er heitir Þingvellir. Þarna mun þingið hafa verið háð.Á Þórsnesi er einnig hið fornfræga höfuðból, llelgafell, Þjóðtrúin seg- ir. að sá, sem gengur upp fellið í fyrsta skipti, eigi aldrei að líta til baka á leiðinni npp, og geti hann þá óskað sjer hvers sem hann fýsi, er upp kemur. ilelgafell var um langt skeið bær Guðrúnar Ósvífurs- dóttur. Þar bjó einnig Snorri goði. Hann þótti spakur að yiti og ieit- uðu margir ráða til lmns. Það var hann sem svaraði ádeihuu heiðinna manna á alþingi hristnitökuárið með hinum alkunnu orðum: „Ilverju reiddust goðin. þji er jörð brann, þar sem nú stöndum vjer.“ Á Ilelgafelli var .spðar stofnað mik- ið og auðugt munkaklaustur. Mánudaginn 25. -jmri, . sem var síðasti dagur ferðurmnar,,. var lagt af stað úr Stvkkishóhui sköinmu eftir hádegi og ek-ið setn Icið ligg- ur til Reykjavíkur. Er þangað kom fúr hver heim til sín með ógleymaulegnr írrinriingar um skemmtiiega för. Allt stuðlaði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.