Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.1945, Side 9
LESBÓK MORGUNBLABSINS 489 Sýnishorn af hernaði skóg'arniaðksins í Bakskógum. Nú leggjum við land undir fót og göngum snemma dags sniðgötur upp frá bænum, upp á brún og norður í fellskinnina. Þar heita Bakskógar. Gengum við þar nokkra stund eftir lyngmóum, en fanst lít- ið að sjá svo að við fórum upp á Brúnir aftur og heldum Vestur J>ær þangað sem liæst ber. R.jett fyrir vestan Staðarfell byrja hengi- ílug í brúnunum og haldast óslitið vestur að Harastöðum. En þarna þar sem hæst er fjallið, tökum viö okkur gönguhvíld. Hjeðan er mjög víðsýnt. Á Efribygð blasa við bæ- irnir Túngarður, 1 lallstaðii’ og Svínaskógur, og s.jer enda til fleiri l)æja vestur. Tnn til Dala s.jest vel og út idt Snæfellsnes vestur að Eyr arfjalli, og þar í milli eyjamorið úti fyrir Hvammsfirði. Jeg fæ al- drei skilið ])á menn, seni dásama hve fagurt sje að horfa ýfir þessar eyjar. ,Tcg hefi horft á þær hjeðan jif Brúnum, frá TLnúki, af Helga- felli og úr lot'ti og mjer sýnast þær allar svartar og grettar eins 0 g sker. Allar nema Dimon. Það er falleg eyja. Þarna rísa Upp Úl’ skerjagarðinum tveir keilulaga klakkar háir og skrúðgrænir og það er regluleg hvíld fyrir augun iið staðnæmast við þá. Þetta er 1 íl-tii sögustaður. í Dímonarvogi var fal- ið skip Eiríks rauða áður en hann sigldi til Grænlands og á meðan fjandmenn hans leituðu hans um eyjarnar. Segir þjóðsaga að þá hafi verið svo mikill skógur í eyjuimi að greinar trjánna hat'i náð saman yfir voginum og þess vegna hat'i skipið ekki sjest, falið undir lauf- skrúði þeirra. En þetta mun tilbún- ingur einn. Þó er ekkert að því að hugsa sjer að Dímon hafi eitt sinn yerið svo ævintýrafögur. A meðan við hvíldum okkur þarna í lyngbrekku við grösugan hvanim, gerðuni við það að gamni okkur að athuga hvíið gróður væri þarna fjölbreyttur. Þegar rætt er og ritað um nátt- úru íslands, er það ven.julega hið stórbrotna og hátignarlega. sem verður efst á baugi, jöklar, háf.jöll, fossar, hrikaleg gljúfur, himingnæf andi standbjörg. jarðhitinn og hin sýnilegu tákn um hamfarir eldfjall- anna. Því næst er talað um.þá feg- urð, sem laðar huganh ntest, hin törfandi litbrigði. samstilling and- stæða í landslagi, birkislcógapa, fuglalífið. Þessu öllu kynnast menn í einum svip án þess að hafa meira fyrir en beita augum og athygli. En dásemdir íslenskrar nátturu eru eigi síður merkilegar og heill- andi í því smáa, sem flestum yfir- sjest,. Menn ganga hugsunarlaust framhjá þeám; vegna l)ess að þeir eru ekki læsir á smáletrið í lífsins bók. Þar er J)á fyi'st og fremst að nefna gróðurríkiö. Menn Jnirfa clcki endilega að vera grasafræðingar lil þess að hafa ánæg.ju af því að skoða J>að. Hverjum verður t. d. ekki hlýtt í hug við það að Ijla á brekku þakta blágresi, sóloyjar í túni og hið marglita l)lómsknið í skógunum. En til eru enn fegurri og Iitauðgari blóm, fjallablómin, sem felast í skjóli steina og alls staðar, þar sem nokkurt afdrep er að fá. Fegurð þeirra verður ekki greind með' berum augum. Þess vegiia er stækkunargler eitt hið nauðsynlegasta, seDi hver ferðamað ur verðumað hafa með sjer. Gaktu einhvern tíma upp í f.jalls- hlíð, sem virðist alveg gróðursnauð, og svipastu ]mr uni með aðgaúni. Það fer varla hjá því að ])ú s.jáir þá alla vega lil blóm hingað og þangað. Þau eru máske svo smá, að þau eru lítið stærri en sand- korn. En skoðaðu þau í stækkuiiar- gleri. Og .sú undra fegurð lita og samræmis, sem þú s.jerð þá, mun þj'er seint úr minni líða. Litiruij' á fjallablómunum eru yfirleitt miklu sterkari og skærari, heldur en á þeim blómum, sem vaxa í frjósöm- um jarðvegi, Þau lifa stutt og við erfið skilyrði. en það er eins og náttúran sjálf bæti þeim það upp n|eð því að gera þau fegurst allra blóma. % Þegar þú ert svo farinn að beita stækkunarglerinu til þess að kynn- ast þessum töfraheimi. þá mun ekki fará h.já því, að þú kynnist éinnig öðnun töfraheimi, heimi skordýr- aiina. og það er sjálfsagt miklu fróðlegra að kjmnast honum heldur en margur hyggur. Skordýrafræð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.