Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1946, Blaðsíða 2
374 % WSfPII LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Jóannes Patursson í skrifstofu sinni í Kirkjubæ. í skápunum á bak við hann eru ýmsir forngripir, sem
fundist hafa þar á staðnum.
sjúkleika nokkurs, svo að sumir
segja, að hann hafi eigi orðið full-
komlega samur maður síðan. Hann
rjetti þó vel við aftur og vann ó-
trauður að hugsjónum sínum í
ræðu og riti til æviloka.
Færeyska tungu talaði hann og
ritaði manna best, með þrótti og
orðkyngi svo að af bar.
Skáld var hann mikið og stund-
aði ljóðagerð allmikið nærfelt sex-
tigu vetra. Þar á meðal eru nafn-
kunn sagnaljóð, Gunnlaugs kvæði,
um Gunnlaug Ormstungu og Helgu
ina fögru, fjöldi tækifæriskvæða,
hvatningarljóð, ádeilur og jafnvel
sálmar, „einhverjir inir bestu á
færeyska tungu“. Sögðu andstæð-
ingar hans, að skáldgáfa hans ogi
stórhugur hefði stundum leitt hann
í gönur. Fár bregður inu betra, ef
hann veit ið verra.
Jóhannes bóndi Patursson var
mikilmenni, „Sannur Færeyjason-
ur frá blautu barnsbeini“. Hann
hneigðist þegar í æsku að þjóðleg-
um fræðum, sem gnótt var af í
eyjunum og kunni að meta alt slíkt.
Tók hann og snemma að yrkja
sjálfur, sem á var vikið, og hafði
jafnan „Yggjar full“ á takteinum
að aldurtila. Mun „Viðris fengr“
oft hafa verið honum „bölvabætr“
á löngum æviferli.
Jóannes bóndi var maður fjöl-
hæfur. Liggur eftir hann mikill
verki í skáldskap og bókmentum.
Hagvirkur var hann á það, er hann
lagði á gjörva hönd. Margan fagur-
legan trjeskurð hefur hann int af
höndum. Þó skipta mestu afrek
hans að stjórnmáium til þjóðlegr-
ar vakningar og frelsis fyrir land
sitt og þjóð.
Snemma beygist krókurinn.
Hann tók virkan þátt í stjómmála-
vakning þeirri, er hófst með fundi
á annan dag jóla 1888. Þá var hann
tuttugu og þriggja ára. Á þeim
fundi er talið, að lögð væri frum-
drög að sjálfstæðisbaráttu Færey-
inga og leiddi til þess að stofnað
var „Færeyingafjelagið“ árið eftir.
Skipar hann þar lengstum fremsta
sessinn.
En hugur hans beindist allmiklu
fyrr að frelsismálum eyjarskeggja,