Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1946, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1946, Page 5
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 377 Hildur Kalman: BORGIRNAR HRUNDAR BONN er ekki mikið skemd. Þær skemmdir sem urou voru eft- ir loftárásir og voru aðallega á bökkum Rínar. Brúin yfir Rín hafði verið sprengd í loft upp, eins og vel flestar brýrnar. Það voru held jeg aðeins tvær brýr sem bandamenn náðu óskemmdum og var önnur hjá Coblenz og hin hjá Nijmegen. Bráðabirgðabrýr höfðu verið gerðar allstaðar. En þegar vetra tók og Rín varð vatnsmikiL og illileg voru þær hver annari hættulegri. Aðal hættan var að straumurinn í ánni tæki með sjer eitthvað að skips-skrokkunum á ár botninum eða brúarstöplana og sópuðu þeim með sjer. Oft og mörgum sinnum þurftum við að fara yfir ána og þá fórum við stundum á ferjum. Voru það flöt skip (eða bátar) og keyrðum við bílana um borð. Engin handrið voru í kringum þilfarið, en bílarn- ir keyrðir út á ystu brún til að koma sem flestum fyrir því að ferjurnar voru fáar. Ekki var laust við að jeg væri hrædd þá. Til Aachen (Aix-la-Chapelle) fórum við oft og hjeldum þá til þar í nokkrar nætur. Þar var mikið um eyðileggingu og í vetrarfrostunum hrundu fjölda mörg hús. Á leiðinni til Aachen fórum við 1 gegnum Julich. Þá skildi jeg til hlítar „jafn- að við jörðu“. Ef jeg man rjett þá hafði borgin tvisvar eða þrisvar verið tekin í orustum og því ekki að undra þótt skemdir væru miklar. — í Aachen fórum við og skoðuðum kirkju þá sem Charle- magne var krýndur í árið 812. Ein álma kirkjunnar var algjörlegá eyðilögð, en miðparturinn, sem sr Síðari grein rómverskur og elsti hlutinn, var næsta óskemdur. Múrað hafði ver- ið yfir krýningarstólinn, til vernd- ar gegn skemdum. Hann var á „efri hæð“(?) og sneri beint á móti altarinu, og veggirnir voru alsettir gyltum mosaik. Var næsta ótrú- legt að loft- og veggjaskreytingin væri 1100 ára gömul. Okkur var líka sýndur járnvarinn hluti kirkj- unnar (strong room?), þar sem geymdar voru allar gersemar kirkj unnar, svo sem eins og 12 mismun- andi klæðnaðir á líkneski Maríu meyjar, ísaumaðir perlum og de- möntum. Voru þessir klæðnaðir gjafir frá ýmsum konunglegum höfðingjum á ýmsum öldum. Þar var 1 íka undur fallegt gull-skrín sem á að innihalda jarðneskar leif- ar Charlemagne, en hann var dýrð lingur Aachen. Þarna var t. d. gull- kross, rúmlega fet á hæð, alsettur dýrum steinum. Sá stærsti þeirra, í miðjum krossinum, var fyrir stríð metinn á 2 millj. marka, sagði leiðsögumaður okkar. Það tók okkur meira en klukkutíma að skoða alla þessa dýrð, en þá var okkur líka orðið jökulkalt og við vorum fegin að komast út. Óneit- anlega var það skrítið að koma út úr þessu gullstássi öllu og gim- steinum og klifra yfir brotna stiga og göng til að komast út á götu. Frá Aachen fórum við stundum í lítið þorp nefnt Monschau. Það liggur rjett hjá landamærunum milli Belgíu og Þýskalands og var lengi belgískt. Það liggur í dal- verpi, milli snarbrattra fjalla. Læk ir renna niður fjallshlíðarnar og sameinast í straummikilli á, sem rennur í gegnum þorpið. Þegar snjóar á vetrum teppast allir vegir að og frá þorpinu. í fyrsta sinn sem jeg fór til Monschau með leikflokknum, fór- um við frá Aachen um eftirmiðdag í desember. Það var rösk tveggjja tíma keyrsia, en vegurinn afleitur, enda mikið skemdur eftir orust- urnar. Þarna keyrðum við fram hjá ónýtum skriðdrekum, sem lágu hjer og þar við vegkantinn. Mátti sjá á skemdunum á skóginum að þarna hafði verið barist mikið, og á skotgryfjunum og ónýtu her- gögnunum við veginn. Þar voru líka blettir hjer og þar, þaktir smá-krossum, og voru það her- mannagrafir. Á einstaka kross var hengdur hermannahjálmur, þýsk- ur, breskur eða amerikanskur. „Hjerna þekki jeg hverja þúfu og Laut“, sagði Michael. „Heldur ró- legra núna en síðast þegar jeg var hjer“. Meira sagði hann ekki. Á AÐFANGADAG fór jeg í bíl- túr niður í franska hernámssvæð- ið, sem tekur við ca. 20 mílur fyrir sunnan Bonn. Keyrðum við ca. 100 mílur þennan dag, en varla kom það fyrir að við mættum farartæki. Hestvagnarnir sem alsstaðar voru á breska svæðinu, með grindhor- uðum hestum fyrir, sáust varla þarna. Handkerrurnar sem klambr að er saman úr alsskonar trjebút- um, sá maður, en fáar. Það var eng- in umferð eiginlega og varla mann að sjá á götu. — Var mjer sagt að Frakkar hefðu engin farartæki fyr ir heimalandið, hvað þá setulið í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.