Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1948, Blaðsíða 1
Jfofgmifrlatoiit* 11. tölublað Sunnudagur 21. mars 1948 XXin. árgangur HJÁ SEXTUGUM ÍÞRÓTTAMANNI Sigurjón Pjetursson segir írá vakningarárum íþrótt- anna hjer EFTIR að ísland hafði fengið stjórn- arskrána 1874 er eins og þjóðin fari að losa margra alda svefn og upp úr aldamótum er eins og hún hafi núið stírurnar úr augunum, því að þá hefst hjer þjóðleg vakning á ölium sviðum, í athafnalífi, skólamálum, heilbrigðis- málum, líkamsment o. s. frv. — Þá vaknar iþróttahreyfingin hjer á landi Og það var áreiðanlega ungmennafje- lögunum mikið að þakka. Sú hreyfing kom hjer eins og gustur, og vakti „vormenn íslands“, æskuna í landinu, til starfs og dáða, æskuna, sem bygt hefur upp landið á rúmum 40 árum. Þjóðin stendur því í mikilli þakkar- skuld við ungmennafjelagshreyfing- una. Mann fram af manni hafði þjóðin dáð fornhetjurnar fyrir hreysti og íþróttir þeirra. Menn eins og Gunnar á Hlíðarenda, Kjartan Ólafsson, Kári Sölmundarson og Grettir voru dáðir í tali og ljóðum, og íþróttir þeirra tald- ar það hámark, sem enginn gæti náð lengur. En nú einsetti æskulýður Is- lands sjer að reyna að líkjast þessum mönnum, þótt menn þyrfti ekki að hugsa til þess að ná með tánum þar sem þeir höfðu hælana. En hvernig er nú komið eftir 40 ár? Hinir ungu íþróttamenn vorir eru komnir fram úr gömlu söguhetjunum. Svo mikið hefur áunnist. Þetta hefur gerst á svo stuttum tíma, að fyrstu Sigurjón Pjetursson. framherjar og brautryðjendur í- þróttanna eru enn á lífi. Og það má vera þeim mikið gleðieíni hvern ár- angur hefur borið áhugi þeirra og barátta við þá örðugleika, sem fyrst var við að stríða. Einn af nafnkunnustu forvígismönn um íþróttanna hjer á landi, Sigurjón Pjetursson, átti nýlega sextíu ára af- mæli. I tilefni af því átti Lesbókin tal við hann og bað liann að segja eitthvao frá frumbýlingsárum íþrótta hreyfingarinnar. Það er gaman að bera saman í huganum hvernig um- horfs var þá, og hvernig nú er komið, því að þá sjest best hvað áunnist hef- ur. Það er ekki til þess að kasta skugga á neinn af okkar ágætu íþrótta frömuðum þótt sagt sje, að íþrótta- hreyfingin á trauðla nokkrum ein- um manni jafn mikið að þakka og Sigurjóni Pjeturssyni, fyrir brennandi áhuga hans, fordæmi og framkvæmd- ir. Þess vegna ættu ungir íþróttamenn að taka hann sjer til fyrirmyndar. Þeir ættu líka að sjá á því sem hjer fer á eftir, að til meira verður að ætlast af þeim en af Sigurjóni og jafnöldrum hans, því að ólíka afstöðu eiga þeir. Og nú er best að Sigurjón segi sjálfur frá.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.