Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1948, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1948, Qupperneq 5
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 345 PT GunnarshélTlr selför um sumarið og bygðu um vorið sel í Garnagili. Tildrög þessa örnefnis eru sögð þau, að eitt sinn fyrir löngu hafi orðið þar slys, mannýgur grað- ungur orðið stúlku að bana, og hafi garnirnar úr henni verið um horn hans er menn komu að. Konur þeirra bræðra voru í seli um sumarið. Og er þær voru þangað farnar skiftu þeir bræður verkum með sjer. Fór Bjarni kaUpstaðarferð fyrir báða, en Jón tók til sláttar fyrir báða og átti vinnukonan að raka á eftir honum. Kendi hún sjer einkis meins er hún gekk út. En er hún tók að raka þótti henni undarlega við bregða. — Henni fanst hrífudrátturinn eins og hljóð, svo skerandi sárt að henni þótti sem höfuðið á sjer mundi klofna. Fór hún þá inn, lagði sig út af og sofnaði. Dreymdi hana þá að kona kæmi að sjer, heldur reiðileg, og mælti: „Þú skalt gjalda húsbænda þinna fyrir umrótið, sem þeir gerðu í Garnagili. Á þeim sjálfum get jeg ekki hefnt, þvi á Bjarna vinnur ekkert nema járnið, en Jón er fæddur í sigurkufli og skírð- ur í messu.Hefndin skal koma niður á þjer og að nokkru leyti á konunum þeirra.“ Þá er stúlkan vaknaði sagði hún Jóni drauminn. Var hún þá fárveik, lá nokkra daga og dó síðan. Eigi þótti konunum gott í selinu. Þóttust verða fyrir ýmsum dularfull- um glettingum þar. Og þótt þær væri kjarkmiklar að eðli, þá urðu þær smám saman hræddar, og þá er heim var flutt úr selinu voru þær orðnar svo úrvinda, að þær náðu sjer aldrei aftur. Hvorug þeirra þorði að vera á Geirlandi áfram. Fluttu þeir bræður þaðan voHð eftir, Bjarni að Þykkva- bæjarklaustri, en Jón að Hlíð í Skaft- ártur.gu. Ragnhildur var s'ifelt geð- veik upp frá þessu, og var það á þann hátt, að hún þóttist mundu missa sjónina. Á hverju kvöldi var hún sann færð um það, að hún mundi vakna biind að morgni. Helt hún þó góðri sjón og vissi sjálf að ekki var með feldu um þessa hræðslu. En hún fekk ekki við gert. Kendi hún það huldu- fólkinu í Garnagili. Þessi kvíði lækn- aðist ekki fyr en hún var orðin göm- ul og fekk að bergja á álfakaleik Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð. — Þau Jón og Ragnhildur eignuðust mörg börn og eru þaðan miklar ættir komnar. Einn sonur þeirra var Ei- ríkur, faðir sjera Sveins í Ásum, föð- ur Gísla sendiherra. Drjúgan kipp upp með Geirlandsá, að austan, er bærinn Mörtunga. Sjest ekki þangað af veginum. Þar bjó fyrir aldamót maður sá, er Oddur Odds- son hjet. Hann var ógiftur alla ævi, en hafði ráðskonu. Oddur var helj- armenni að burðum og harðjaxl. Einu sinni var hann einn síns liðs um vetr- artíma að ganga við sauði uppi í fjöllum. Hrapaði hann þá vegna hálku hátt uppi í fjalli og kastaðist niður kletta og skriður alt ofan á jafn sljettu. Var hann allur marinn og brotinn, en samt gekk hann til bygða, og er það í annálum haft. — Þegar Oddur lagðist banaleguna vildi hann ekki fara úr fötum, en lá alklæddur uppi 'i rúmi með hatt á höfðinu. Nú dró smám saman af honum, og þegar ráðskonan sá að hann var að því kom- inn að gefa upp andann, fanst henni það ganga guðlasti næst ef hann Gosutindur skyldi deyja með hattinn á höfðinu. Hún ætlaði þá að draga hattinn af honum, en Oddur greip með báðum höndum á móti í hattbörðin og helt fast, og þarna sálaðist hann með hatt- inn á höfðinu og helt í hann sannköll- uðu dauðahaldi. Prestbakki stendur hátt uppi undir hlíð austan við Geirlandsá. Kirkjan er langt frá bænum, niðri á sljettri grund. Hún var einu sinni talin eitt- hvert fegursta guðshús á landinu, og um langt skeið var hún eina timbur- húsið á þessum slóðum. í túninu á Prestbakka er hóll, sem aldrei má slá, því að þá kemur ofsaveður, sem feyk- ir burt allri töðunni. Skamt fyrir sunnan Prestbakka er Breiðabólstaður og stendur hann hátt undir vesturhorninu á Keldunúpi og er þar Ijómandi fallegt. Fremst í tún- hólnum vestan við bæinn er kletta- hóll og nefnist Álfhóll. Nokkuð fyrir framan hann rennur lækur og er þar grund á milli og bæjarhólsihs. En þau álög liggja þarna á, að ekki má slá brekkuna undir klettinum og ekki heldur grundina meðfram læknum, því að það er engi huldufólksins, sem í klettinum býr. Ekki veit jeg hvað við liggur, ef út af þessu er brugðið, en þess hefur jafnan verið vandlega gætt að slá ekki þarna. Er þó sagt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.