Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.1951, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 01.07.1951, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLADSINS t ,4.. -**». r v * eða fleiri vikur, að leita læknis, og það enda þótt þeir hafi áður haft svipuð einkenni, sem hafa batnað. Röntgenskoðun getur þá skorið úr um það, hvort nokkuð alvarlegt sje á seiði, og sje nokkur vafi eftir þá skoðun, getur hálslæknir með sjer- stökum tækjum skyggnst niður í vjelindið alla leið niður í maga, og tekur sú skoðun, sem er fremur auðveld og hættulaus, þá allan vafa af. Sem betur fer eru þessi einkenni, sem jeg nú hef talið, langoftast öðru að kenna en krabbameini, t.d. slímhúðunarbólgum, taugasjúkdóm um, magakvillum o. fl., en eina ráðið til að fá fulla vitneskju um, hvort nokkuð alvarlegt er að, er rækileg skoðun. Finnist krabbamein í vjelindi á byrjunarstigi hefur þráfaldlega tekist að lækna það að fullu með geislalækningu. Á seinni árum er farið að fram- kvæma skurðaðgerðir á þeim hluta vjelindisins, sem liggur í brjósthol- inu, en þar er meinið oftast, og er þá sá hluti vjelindisins tekinn burtu, sem sjúkur er, og stúfarnir saum- aðir saman. Þannig hefur tekist að bjarga mörgum mannslífum, en varanlegur árangur er undir því kominn, að unt sje að gera það svo snemma i sjúkdómnum, að æxlis- frumur hafi ekki borist frá |iein- inu til lymfucitla, eða krabbamein- ið sjálft hafi ckki gripið yfir á ná- læg líffæri. Krabbamein í nefinu sjálfu er sjaldgæft. Það lýsir sjer með vax- andi nefstíflu, öðru megin í nefi og rennsli frá þeirri nös, er fram liða stundir. Útferðin getur þá vcrið blóði blönduð ööru hvoru, og smá- bhcðinga gctur orðið vart áður en nefstífia er orðin áberandi. Nokkru algengara er meinið í nefkoki, bak við nefið. Vex það oft- ast út frá öðrum hliðarvegg ncf- koksins og vcldur vaxandi nef- stíflu, fyrst þeim megin, sem æxlið situr, en síðar beggja vegna í nefi, þegar það er orðið svo stórt, að það fyllir nefkokið að mestu. Fylgir þessu talsvert nefrensli, sem oft cr blóðugt. Algengt er að æxli á þessum stað leggist fyrir mynni kokhlustarinn- ar, sem er einskonar loftleiðsla til eyrans, og veldur það hellu og suðu fyrir eyranu. Þetta einkenni getur komið löngu áður en það fer að bera á nefstiflu eða rennsli. Fyrir 4—5 árurn siðan kom til min maður um sextugt, með hellu fyrir vinstra eyra og talsverða stíflu í vinstri nös, ásamt nokkru rennsli úr þeirri nös. Jeg fann hjá honum æxli vinstra megin í nef- koki, skar það burtu og fekk það rannsakað. Reyndist það vera krabbamein. Sjúklingnum var gef- in kröftug röntgengeislun. Jeg hef fylgst með honum síðan, og þegar jeg skoðaði hann nú fyrir skömmu, sáust engin merki þess, að meinið væri að taka sig upp á ný. í svonefndum nefholum, einkum kjálkaholum er krabbamein engan vegin mjög sjaldgæft. Það gerir vart við sig með nefrennsli og stíflu annars vegar, og stundum smá- blæðingum frá nefi. Lengi framan af eru engir verkir. Meinsemd í kjálkaholu getur einnig gert vart við sig í munni, því aftari Irluti efra góms liggur undir botni kjálkahol- unnar og getur stundum orðið fyrir vexti krabbameinsins. Gómurinn stækkar þá oft og aflagast svo, að hafi sjúklingurinn t. d. gerfitennur, fara þær að sitja illa og særa. Það, sem við eigum einkum að hafa hugfast og læra af því, sem hjer hefur verið sagt um krabba- mein í nefi, nefkoki og ncfholum er, að hafi maður vaxandi nefstíflu og rennsli, annars vegar úr nefi, ekki síst ef það er blóði blandað, ber að fá það rannsakað hið bráð- asta. Einkum á þetta við fólk yfir 335 fertugt, en enginn aldur er þó ör- uggur. Langalgengustu orsakir þeirra einkenna, sem jeg nu hef talið eru góðkynja. afleiðingar kvefs, mein- laus æxli og aðrir lítilfjörlegir kvillar, en jafnvel þó svo sje er rjettast að fá úr því skorið hvað veldur. Krabbamein er sjaldgæft í eyr- um. í miðeyra og eyrnagangi kem- ur það helst fyrir þar, sem lang- varandi bólga hefur verið i mið- eyra, með meira eða minna stöð- ugri útferð árum eða áratugum saman. Slík eyru þurfa að sjálf- sögðu athugunar við hjá sjerfræð- ingi og getur hann þá, jafnhliða því sem hann gerir ráðstafanir til að stöðva útferð og lækna bólguna, ef unt er, athugað hvort byrjandi meinsemd kunni að leynast í eyr- anu. Byrjunareinkenni eru óljós, en verði útferð úr eyra blóðblönd- uð, sem ekki hefur verið það áður, ætti það að vekja grun um að ekki væri alt með feldu og að það gæti stafað frá æxli. Fyrir nokkrum árum rannsakaði jeg eyra ungs manns, sem hafði haft útferð úr öðru eyranu frá því hann var barn, en þá nýlega var farið að koma blóð í útferðinni, við og við. Jeg fann óreglulegt þykk- ildi og sár i miðjum eyrnagangi. Smásjárrannsókn á lítlum bita teknurn úr sárbarminum sýndi að þetta var krabbamein. Jeg^kar það burtu eins rækilega og tök voru á, og er sárin voru gróin fekk sjúk- lingurinn viðeigandi röntgenmeð- ferð. Síðan hefur meinið ekki gert vart við sig og tel jcg nokkurn veginn örugt að það geri það cklii úr þessu. Á ytra eyra er auðvelt að sjá hvort nokkuð er að. Hersli, þykk- ildi eða sár þar, sem ekki vill batna á skömmum tíma, þurfa athugunar við. Að lokum vil jcg aðeins segja

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.