Lesbók Morgunblaðsins - 13.07.1952, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
355
^4varp 44}
til l4euLiavílu
Kfcv !*■
Þora isorg
sem Fjallkonan.
yatwonunnar ut i\eijKfavwur
17. júní 1952
AfmælishátíS íslands bezta sonar,
æskunnar hátíð, tekur þig í fang.
Reykjavík, borgin bjartrar, stórrar
vonar,
borgin með nýjan skóg og fjöruþang.
Langt inn í fjærstu framtíð þig ég eygi,
fegurri æ með hverju ári, er líður.
Draumanna arma eftir þér ég tevgi,
Eilífðin handan logns og storma bíður,
Fagur var morgunn þinn á þjóðar vori,
þjóðin jafn glæsta minning aldrei sá.
Oft síðan dreyri draup úr hverju spori,
daganna þungu, er aldir liðu hjá.
Margvísieg saga falls og nýrrar
frægðar
faldar þitt höfuð björtum reynsluljóma.
Óska ég þér frama og gengis, auðs og
gnægðar, —
geymir þú æ hin fornu vé með sóma.
Fornheiiög vé — og fornar helgar
dyggðir
flétti þér æ sinn dýra rósakranz.
Verði þin áhrif út um breiðar byggðir
bæði til sæmdar þjóð og heilla lands.
tslenzka borg, skalt íslenzk jafnan
vera, —
íslenzkt og hreint þér liggi mál á
tungu.
Aga þinn hug við kyngi frosts og frera,
fegurðarþrána kenridu hinum ungu.
Blámóða dagsins sveipar f jarlæg f jöllin,
fagurt er um að lítast hér í Vík!
Yfir þér breiðist víðlend himin-höllin,
hvað þú ert nú af tærri fegurð rík!
Óskabarn mitt þú ert og vona-fylling
allt eins og fyrst, er mannleg augu sáu
á þína dýrð, og Ingólfs gifta og stilling
einkenni þenna stað við fjöllin bláu.
JAKOB JÓH. SMÁRI
fuðraði upp, en fyrir snarræði tókst
að hemja eldinn áður en mikið tjón
yrði af honum.
21. brann til kaldri kola sumarbú-
staður, sem Sundfélagið Ægir átti hjá
Hafravatni í Mosfellssveit.
* SLYSFARIR
5. Drengur á hjóli varð fyrir bíl í
Reykjavík og lærbrotnaði. Annar
drengur varð fyrir vörubíl hlöðnum
grjóti og slasaðist mikið.
Ungur maður á Suðureyri í Súganda-
firði var að vinna um borð í togaran-
um Röðli. Féll þá „blökk“ í höfuð hon-
um og beið hann þegar bana.
6. í Bolungavík varð 16árapilturmilli
vörubíls og sementshlaða og brotnaði
á báðum handleggjum.
12. Dreng var hrundið ofan af renni-
brautarpílli á leikvelli í Reykjavík og
handleggsbrotnaði hann. — Sama dag
féll maður ofan af þaki Gylta salarins
í Hótel Borg og slasaðist mikið.
15. Fimm ára drengur varð fyrir
kringlu, sem kastað var á íþróttavell-
inum í Reykjavík. Kom hún í höfuð
honum og brotnaði höfuðkúpan.
18. Herbíl hvolfdi hjá brúnni á Leir-
vogsá og beið einn hermaður bana.
27. Vildi það til í Siglufirði að
þrigja ára drengur féll í Hvanneyrará
og sogaðist með straumnum inn í hol-
ræsi sem ánni er veitt í undir veginn.
Barst hann svo niður í fjöru, en náð-
ist þar lifandi og lítið meiddur og þótti
það ganga kraftaverki næst.
í Hæstarétti var kveðinn upp dóm-
ur er ákvað 8 ára dreng 400.000 kr.
skaðabætur vegna lífstíðar örkmula, er
hann hafði fengið af þvi að verða undir
bíl fyrir þremur árum.
EIMSKIPAFÉLAGIÐ
Aðalfundur Eimskipafélags íslands
hófst í Reykjavík 7. júní. Hlutafé fé-
lagsins er nú kr. 1.680.000. Árið sem
leið varð 14,3 milljóna hagnaður á
rekstri eigin skipa félagsins, en 278.920
kr. tap á leiguskipum þess. Skuldlausar
eignir félagsins við seinustu áramót eru
taldar 66 milljónir króna.
Steinolía í Seyðisfirði. Úr hinu
sokkna skipi í Seyðisfirði náðust í þess-
um mánuði 3000 lestir af olíu. En þá
var hætt við björgunarstarfið í bili
vegna þess að yart varð við djúp-
sprengjur i skipinu, en hér er enginn,
sem kann að .fást við þær.
Nýr herforingi. Hinn 20. júní kom
hingað nýr yfirforingi bandaríska
setuliðsins. Hann heitir R. O. Brown-
field og er hershöfðingi í flugliðinu.
Stórstúkuþing. 53. þing Stórstúku
íslands IOGT var haldið hér í Reykja-
vík og stóð 4 daga. Voru þar um 80
fultrúar. Stórtemplar var kosinn Björn
Magnússon prófessor. Um sama leyti
var háð þing Unglingareglunnar á ís-
landi og sóttu það 27 fulltrúar.
Prestastefna Islands hófst í Reykja-
vík 19. júní og sóttu hana um 70 þjón-
andi prestar. Að henni lokinni var
aðalfundur Prestafélags íslands hald-
inn.
Magnús Gíslason skrifstofustjóri í