Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1954, Side 6
42 y*’* r
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Generalkonsul H. O. Lange
legustu iðnfyrirtækjum Dana. Hef-
ir þetta fyrirtæki blómgast svo frá
stofnun sinni, að hlutafé þess, er
í upphafi nam aðeins 70 þús. d. kr.
er nú 7.5 millj. d kr. Það hefir nú
verslunarsambönd um a^lan heim,
hefir stofnað dótturfélög í ýmsum
löndum, m. a. í Bandaríkjunum og
Kína. Arður hlutabréfa hefir að
jafnaði numið 10% frá stofnun fyr-
irtækisins, og er velta þess á Norð-
urlöndum einum nú 66 sinnum
meiri en öll veltan var fyrstu 5
árin fyrir stríð.
Árið 1940 ákvað stjórn verk-
smiðjunnar að leggja fram fé
til stofnunar stúdentaheimilis og
var hafizt handa um bygginguna
á sama ári. Var byggingin fullger
1942 og hafði kostað 5 millj. d. kr.
Á styrjaldarárunum var við
margskonar örðugleika að stríða
um rekstur stofnunarinnar, og í
lok styrjaldarinnar tók þýzka her-
námsliðið stúdentaheimilið til af-
nota sem spítala. Var því skilað
illa útleiknu, og tók viðgerð þess
alllangan tíma. En frá því er rekst-
ur þess gat hafizt að nýju helir
það jafnan verið fullskipað og
færri fengið vist þar en óskað
hafa.
H. O. Lange framkvæmdastjóri.
Af einstökum mönnum, er átt
hafa þátt í stofnun norræoa
stúdentaheimilisins, ber hæst nafn
H. O. Lange, stoínanda Nordisk
Fjerfabrik og framkvæmdastjóra
frá byrjun, en frá 1942 hefir haun
einnig verið formaður stjórnar fyr-
irtækisins.
H. O. Lange er fæddur í Kerte-
minde á Fjóni 1877. Var faðir hans
þar kaupmaður. Aðeins 23 áia
gamall varð hann framkvæmda-
stjóri hins nýja fyrirtækis, er hann
hafðj forgöngu um að stofna. Hefir
það undir stjórn hans blómgast svo
sem raun er á, og rakið hefir verið
hér að framan. H. O. Lange haíði
þegar á unga aldri mikinn áhuga
fyrir norrænni samvinnu, og það
var hann, s^m árið 1940 bar upp
þá tillögu, að Nordisk Fjerfabrik
skyldi minnast 40 ára afmælis síns
með því að stofna stúdentaheimili
fyrir allt að 130 stúdenta og skyldi
þriðjungur þeirra vera frá öðrum
Norðurlöndum en Danmörku.
Enda þótt stofnunin eigi sér ekki
langan aldur hefir margt norrænna
Chr. Westergaard-Nielsen
Próf. Niels Nielsen
stúdenta annarra en danskra þeg-
ar dvalið á stúdentaheimilinu, svo
sem nánar er sagt frá hér á eftir.
Hefir þetta verið hinum norrænu
stúdentum mikilvæg fjárhagsleg
hjálp. Hefir forseti íslands í til-
efni af þessu sæmt Lange fram-
kvæmdastjóra Fálkaorðunni og
svipaða viðurkenningu hefir hann
hlotið frá Norðmönnum og Svíum.
Mun varla ofsagt að margur hefir
hlotið slíka viðurkenningu fyrir
minni verðleika.
Starfsemi norræna
stúdentaheimilisins.
Norræna stúdentaheimilið er nú
sjálfseignarstofnun með eigm
stjórn, en Nordisk Fjerfabrik legg-
ur árlega fram sem gjöf 200 þús.
d. kr. til reksturs þess. Á því eru
130 stúdentaherbergi, auk 4 her-
bergja fyrir kandidata, er stunda
framhaldsnám og 2 íbúða fyrir
prófessora frá hinum Norðurlönd-
unum, er gestkomandi eru í Dan-
mörku. Samkvæmt áðursögðu er
gert ráð fyrir því, að þriðjungur