Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1954, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
43
Hljóðbylgjur
stúdentanna sé frá hinum Norður-
löndunum.
Frá stofnun stúdentaheimilisias
til byrjunar þessa árs höfðu alls
dvalið á stúdentaheimilinu 670
stúdentar, 536 Danir, 2 Færeying-
ar, 7 Finnar, 17 íslendingar, 63
Norðmenn og 35 Svíar. Miðað við
íbúatölu hafa þannig dvalið þar
fleiri íslendingar en frá nokkru
öðru Norðurlandanna utan Dan-
merkur, og má af því marka þá
vinsemd, sem stjórn stofnunarinn-
ar hefir sýnt íslandi. Auk þess
hafa 11 íslendingar, prófessorar og
frúr þeirra, dvalið í prófessora-
íbúðunum um lengri eða skemmri
tíma. Aðbúnaður allur á stúdenta-
heimilinu er með ágætum, her-
bergin rúmgóð með hinum bezta
húsbúnaði. Að undanförnu hefir
dvalarkostnaður stúdenta þar
numið d. kr. 135 á mánuði, allt
innifalið, svarar það til ca. 320 kr.
íslenzkra, og má af því marka, hver
kostakjör stúdentum eru þarna
búin.
Dagleg stjórn stúdentaheimilis-
ins annast efór (svarandi til
„Garðprófasts") og viceefór, en sá
síðarnefndi sér m. a. um reiknings-
hald stofnunarinnar.
Núverandi efór er próf. Niels
Nielsen en viceefór mag. Chr.
Westergaard-Nielsen. Báðir eru
þeir hinir ágætustu íslandsvinir og
fjölda íslendinga að góðu kunn-
ir. Hafa íslenzkir stúdentar og aðr-
ir íslendingar, er á Nordisk Kolleg-
um hafa dvalið átt þar hauka í
horni.
Höfundur þessara lína hefir haft
þá ánægju að dvelja tvívegis um
stundarsakir á stúdentaheimilinu í
hinu bezta yfirlæti. Eru línur þess-
ar skrifaðar í þeim tilgangi að
kynna lesendum Lesbókarinnar
þó lauslega sé þessa erlendu stofn-
un, er íslenzkum menntamönnum
hefir reynzt svo vel.
----
MANNLEGT eyra getur numið hljóð-
bylgjur sem hafa 20—20000 sveiflu-
hraða á sekúndu. Bylgjur með lægri
tíðni eða hærri tíðni heyra menn ekki.
En ýmsar skepnur, svo sem hundar og
rottur nema hljóðbylgjur, sem hafa
meiri tiðni en þetta.
Það er skammt síðan að mönnum
hugkvæmdist að hægt mundi að nota
þann kraft, sem fylgir háum hljóð-
bylgjum, og nú er svo komið að þær
eru notaðar á ótal vegu, og alltaf er
verið að finna upp nýar aðferðir við
notkun þeirra. Það er nú t. d. hægðar-
leikur að sjóða egg við hljóðbylgjur,
bræða málma og hreinsa loft og vatn.
Framleidd hefur verið hljóðbylgju-
vél, sem notuð er til þess að finna
steypugalla í járni, er ekki verða gén-
ir á yfirborði. Með þeim er líka hægt
að finna hvar galli eða skemmd er í
vél, án þess að taka þurfi vélina
sundur.
Læknar eru farnir að nota hljóð-
bylgjur til þess að finna hvað að mönn-
um gengur. Bylgjurnar fara hiklaust
í gegn um líkamsvefinn, en þær endur-
kastast ef þær reka sig á gallsteina,
bólgur o. s. frv. Meira að segja hefur
læknum tekizt að eyða gallsteinum í
tilraunadýrum með hljóðbylgjum og
með þeim hefur tekizt að hefta heila-
bólgu og krabbamein á byrjunarstigi.
Eins hafa þær reynzt vel við æðakölk-
un og'til þess að draga úr þjáningum
Þá hefur og verið fundin upp hljóð-
bylgjuvél, sem blandar málningu
miklu betur en áður var hægt, og ýmis-
legt annað, sem þarf að blanda vel,
svo sem ýmis meðul og efnablöndur.
Meira. að segja er hægt að blanda sam-
an vatni og olíu, svo að það aðskilji
sig ekki. Og með hljóðbylgjum er hægt
að bræða saman málma, sem aldrei
hefur tekizt að bræða saman fyr, og
gera þannig nýa blendimálma. Eins eru
þessar bylgjur betri en nokkuð annað
til þess að hreinsa málma.
Þá eru þvottavélar þar sem öfluggr
hljóðbylgjur „hrista“ þvottinn og ná
úr honum öllum óhreinindum. Þær eru
sagðar ódýrari en aðrar þvottavélar.
Þá eru og hljóðbylgjur notaðar til þess
að ná blettum úr þurrum fatnaði.
Með háum hljóðbylgjum er hægt að
hreinsa kolareyk úr loftinu, því að þær
hnoða hinar örsmáu eindir í reyknum
saman þangað til þær eru orðnar svo
þungar að þær falla til jarðar. Þá hef-
ur og tekizt að eyða þoku með þeim,
þannig að vætan í þokunni safnast í
dropa og fellur til jarðar.
Enn eru þær notaðar til þess að leið-
beina blindum mönnum. Er þá komið
fyrir í staf þeirra áhaldi, sem sendir
frá sér háar hljóðbylgjur, en þegar
þær rekast á vegg eða eitthvað annað,
endurkastast þær og eru þá heyranleg-
ar. Þannig vara þær blinda menn við
að reka sig á.
Þá hafa og vísindamenn við ameríska
háskóla gert ýmsar tilraunir með þær
í gróðurhúsum, og hefur það komið í
ljós, að bæði er hægt að hraða vexti
jurta með þeim og eins er hægt að
breyta jurtum.
Og meðal ótal annars má svo nefna:
gerilsneiðing mjólkur, niðursuðu mat-
væla, og síðast en ekki sízt, að þeir
sem hafa hljóðbylgjutæki í bílum sín-
um þurfa ekki að fara út úr bílnum til
að opna bílskúrinn. Þeir senda bara
hljóðbylgjuskeyti, og skúrinn opnast
sjálfkrafa.
Kennari: — Mig langar i .ikið til
þess að hrósa þér fyrir fin.ixarir.
Hvenær ætlarðu að gefa mér tæki-
færi til þess? ,
— Z —
Dómari: Jæja, enn eruð þér kom-
inn hér fyrir það að hafa barið á kon-
unni yðar. Voruð þér drukkinn rétt
einu sinni?
Ákærði: Nei, að þessu sinni hafði
hún yfirhöndina.
— Z —
Vesturheimsmaður var staddur í
Noregi og hann langaði til að gefa.
kunningja sínum einhverja hugmynd
um hvað Ameríka væri stór.
— Þú getur lagt á stað í bíl snemma
morguns í Kentucky og haldið stöð-
ugt áfram í sólarhring og samt ertu
enn í Kentucky.
— Já, ég skil það, sagði Norðmaður-
inn, við eigum marga slíka bílskrjóða
hér.