Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1955, Síða 12
88
- LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Um mánaðamótin
stöðvuðust íslenzku
skipin hvert af öðru
vegna verkfalls. Hér
sjást nokkur þeirra
bundin við bryggju.
vegna umferðarslysa árið sem leið
námu rúmlega 13 millj. kr. (26.)
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi hef-
ur selt um 4000 lestir af tilbúnum
áburði til Frakklands (22.) Kom 3000
lesta þýzkt skip til þess að taka fyrstu
sendinguna og lá það við hina nýu
bryggju í Gufunesi meðan útskipun fór
fram (29.)
LANDHELGISBROT
Franskur togari var tekinn að veið-
um í landhelgi hjá Ingólfshöfða, og
farið með hann til Reykjavíkur. Þar
var hann dæmdur í 74 þús. kr. sekt
og afli og veiðarfæri upptækt (7. og 8.)
Belgiskur togari var tekinn í land-
helgi og fluttur til Vestmanneya. Þar
fekk hann 10 þús. kr. sept., afli og
veiðarfæri upptækt (15., 16.)
FRAMKVÆMDIR
Sogsvirkjunin fekk þingheimild til
lántöku með ábyrgð ríkissjóðs, allt að
100 millj. króna, og var nú virkjun
Efra-Sogsins boðin út (4.)
Hamiltonfélagið hætti nær allri
starfrækslu á Keflavíkurflugvelli, en
við taka íslenzkir verktakar (4. og 11.)
Miklar framkvæmdir voru í síma-
málum árið sem leið (6.)
Skóli ísaks Jónssonar í Reykjavík
tók til starfa í nýum og fullkomnum
húsakynnum (8.)
Tekin var í notkun í Reykjavík
stærsta skipadráttarbraut landsins, 70
metra löng. Slippfélagið hefur komið
henni upp. Er hægt að taka þar á land
öll íslenzk skip nema stærstu skip
Eimskipafélagsins (9.)
Næsta verkefni Happdrættis Háskól-
ans er að koma upp veglegri byggingu
fyrir Náttúrugripasafnið (12.)
Kjölur var lagður að björgunarskútu
Norðurlands og er búizt við að hún
geti hlaupið af stokkunum í vor (13.)
Mikill áhugi er meðal útgerðarmanna
að fá báta úr stáli. Eru nú tveir slíkir
bátar í smíðum fyrir íslendinga í Hol-
landi. Bæði Landsmiðjan og Stálsmiðj-
an hafa í hyggju að hefja smíði 50—60
lesta stálbáta (15.)
Varðskipið Þór hefur fengið nýa rat-
sjá og ljósmyndunartæki í sambandi
við hana. Stendur skipið nú betur að
vígi en áður í baráttu sinni við land-
helgisbrjóta (23.)
Hafin er útgáfa á norrænum þing-
tíðindum, þar sem getið er hins helzta,
er gerist á þjóðþingum hinna fimm
norrænu ríkja (26.)
Höfðakaupstaður hefur nú fengið
rafmagn frá rafstöðinni á Sauðanesi
hjá Blönduósi (28.)
Hafnarframkvæmdum í Vestmann-
eyum er nú svo langt komið, að stærstu
skip íslenzka verslunarflotans geta
siglt þar inn í höfnina og lagzt við
bryggju (28.)
MENN OG MÁLEFNI
Valdimar Björnsson ráðherra í
Minnesota kom hingað í kynnisför (11.)
Lögreglan á Akureyri telur að hér-
aðsbann á áfengi hafi gert mikið gagn
þar (18.)
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari fékk
gullmedalíu Listaháskólans danska og
3000 kr. námstyrk fyrir myndastyttu
sem hún nefnir Sonur (19.)
Þegar er farið að undirbúa hópferðir
heðan til Norðurlanda, Miðjarðarhafs-
landa og Vesturheims á þessu ári (20.
og 27.)
Davíð Stefánsson skáld átti sextugs-
afmæli. Var afmælisdagur hans helg-
aður móðurmálskennslu í öllum skól-
um landsins (21.)
Landgræðslusjóði hafa verið tryggð-
ar tekjur með því að lagt er 20 aura
aukagjald á vindlingapakka. Búizt er
við að tekjur af þessu geti numið hálfri
milljón króna eða meira (22.)
■>■■■ >• . . ... fi. í’/ W -V;