Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.1955, Side 4
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
f 400 ^
Hrífudalur, þar sem sagt er að Ingólfur hafi átt heima. Nú eru þarna nokkrir
bseir. (Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
dagslegt blóm á að líta, en það
hafði þó sitt sögulega gildi, því að
það var sprottið upp úr jarðvegi,
sem tekinn var rétt við bautastein-
inn. Og svo fékk konan tvær litlar
stúlkur í þjóðbúningum til þess að
afhenda forsetanum þessa gjöf. Ég
veit ekki hvers vegna hún afhenti
ekki gjöfina sjálf, máske hefur
henni fundizt þetta allt of tilkomu-
lítið handa svo göfugum gestum.
Ekki var viðstaða þarna löng og
var nú haldið áfram út að Klepps-
nesi, og eltu stóru bátarnir skipið.
Hjá Kleppsnesi eru klappir með
sjónum og góð vör, en skip geta
ekki lent þar. Skógarás er þar fyrir
ofan og nokkrir bæir á túnum und-
ir honum. Á hóli hjá þeim bænum,
er næst stendur sjónum, hafði
margt fólk safnazt saman með fjóra
stóra norska fána, en fyrir framan
sig á túninu hafði það strengt mál-
aðan íslenzkan fána milli tveggja
staura. Út að skipinu komu nokkrir
bátar, þar á meðal vélbátur fullur
af fólki, og var þar á lítil stúlka,
með stóran blómvönd handa
forsetafrúnni. Forsetahjónin fóru
þá í land til þess að heilsa upp á
fólkið, sem veitti svo hjartanlegar
móttökur. Vakti það mikla gleði
meðal fólksins, því að ekki hafði
verið gert ráð fyrir því að þarna
væri farið í land. Og forsetahjónin
iðruðust þess heldur ekki að hafa
komið þarna.
Þannig var koman til ættstöðva
þeirra Ingólfs og Hjörleifs.
Forsetafrúnni barst alls staðar
mikið af blómum, hvar sem farið
var um Noreg, og voru það oft
stórir og fagrir blómvendir. En mér
er nær að halda, að engin blóm
hafi glatt hana meira heldur en
pottblómið frá konunni í Hrífudal.
Og nú eru öll hin fögru blóm föln-
uð, nema það eitt. Það lifði, af því
að það var í mold. Og það var flutt
heim að Bessastöðum og þar dafn-
ar það vonandi vel og lengi í mold-
inni frá bautasteininum (á Arnar-
hóli) í Hrífudal í Dalsfirði á Fjöl-
um. Minnir þetta ekki á hina hug-
ljúfu sögu um Þórhadd goða á
Mærinni?
---/I | II
FLEIRI LANDNÁMSMENN
HÉÐAN
í sveitinni innar af firðinum, er
bærinn Gaular, þar sem Atli jarl
Kleppsnes, þar sem Hjörleifur á að hafa búið'. íslenzki fáninn málaði fremst
á hólnum. (Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).